
Lífið
Tvær plötur á sama deginum

Bandaríkjamaðurinn Nelly ætlar að verða fyrsti rapparinn til að gefa út tvær plötur á sama deginum. Um er að ræða plöturnar Sweat og Suit sem koma út þann 14. september. Bruce Springsteen og Guns 'n' Roses hafa áður leikið þennan leik en aldrei rappari á borð við Nelly. "Ég átti svo mikið efni að fyrst vildi ég gefa út tvöfalda plötu," sagði Nelly. "Síðan fannst mér betra að gefa út tvær plötur sitt í hvoru lagi til að sýna aðdáendum mínum það besta frá báðum hliðum Nelly." Að sögn rapparans verður meiri áhersla lögð á klúbbastemmningu á Sweat en Suit verður meira sexí og heitari, í anda lagsins Dilemma sem hann söng með Kelly Rowland úr Destiny´s Child. "Þegar ég kom fyrst fram á sjónarsviðið rappaði ég mikið um heimabæ minn," sagði Nelly. "Núna er ég að segja frá miklu fleiri hlutum. Ég held að báðar plöturnar sýni vöxt minn, bæði sem tónlistarmaður og persóna." Fyrsta smáskífulagið af Sweat verður Flap Your Wings í upptökustjórn Neptunes. Fyrsta smáskífulagið af Suit verður aftur á móti My Place, sem er ný útgáfa af laginu Come Go With Me með Teddy Pendergrass.