Samkomulag á síðustu stundu 12. júní 2004 00:01
Það þurfti fimm tilraunir en á síðustu stundu náðist loks samkomulag um hvernig kveðið skyldi á um völd Íraksstjórnar og samskipti hennar við fjölþjóðlega herliðið sem verður áfram í Írak eftir að hernámi þess lýkur formlega um næstu mánaðamót. Deilum um það hversu miklu bráðabirgðastjórnin mun ráða um hernaðaraðgerðir í Írak lauk með því að Bandaríkjamenn og Bretar samþykktu þá breytingu á ályktunartillögu sinni að kveða á um öryggissamstarf Íraka og fjölþjóðahersins. Sú breyting gengur mun skemmra en krafa Frakka, Þjóðverja og fleiri ríkja um að Írakar fengju neitunarvald á meiriháttar hernaðaraðgerðir fjölþjóðaherliðsins. Þess í stað heita Bandaríkjamenn og Bretar því að hafa samráð við Íraka um öryggisaðgerðir. Ályktunin var tekin fyrir á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gær og var búist við að hún yrði samþykkt samhljóða en fundinum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Fyrr í gær sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti að samhljóða samþykkt sýndi heiminum að ríkin sem eiga sæti í því ætluðu sér að "vinna saman að því að tryggja að Írak sé frjálst, friðsamlegt og lýðræðislegt". Utanríkisráðherra Frakklands, Michel Barnier, sagði Frakka hafa viljað sjá að skýrar væri kveðið á um samskipti íraskra stjórnvalda og fjölþjóðahersins en að margar umbætur hefðu verið gerðar á ályktuninni frá því hún var upphaflega lögð fram. Því gætu Frakkar sætt sig við hana. Hoshyar Zebari, utanríkisráðherra Íraks, fagnaði því að samþykkt áætlunarinnar myndi veita bráðabirgðastjórn landsins það alþjóðlega lögmæti sem hún þarfnaðist til að vinna sér traust írösku þjóðarinnar og nágrannaríkja. "Þýðing þessarar samþykktar fyrir okkur Íraka er sú að með henni hverfur hugmyndin um hernám, sem ég verð að segja að hafi verið meginástæðan fyrir mörgum af þeim erfiðleikum sem við höfum gengið í gegnum frá frelsun landsins," sagði hann. Samþykkt ályktunarinnar þýðir þó ekki að vandamálum Íraka sé lokið. Allt að ár getur liðið þar til fullgild stjórnvöld, kosin á grundvelli nýrrar stjórnarskrár, tekur við völdum. Þá hefur ekkert lát orðið á ofbeldi í landinu nema síður sé. Bardagar og hryðjuverkaárásir hafa aukist eftir því sem styst hefur í valdaafsalið og verður eitt stærsta verkefni Íraka á næstunni að kveða vígamenn í kútinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Sjá meira