Stærri og sterkari Rottweiler 25. júní 2004 00:01 "
Lagið heitir Peningar og það er sami Rottweiler keimurinn af þessu lagi þó að það sé ekkert voðalega gróft," segir Lúlli í XXX Rottweiler hundum en hljómsveitin hefur nýlokið við gerð myndbands við nýtt lag sem kemur í spilun innan tíðar. "Við höfum átt í smá vandræðum með að fá lögin okkar spiluð út af textunum og myndböndin hafa verið bönnuð í sjónvarpinu svo að við tónuðum þetta aðeins niður. Lagið kemur samt ekkert út á neinum helvítis sumarsafndisk. Við verðum að hita upp fyrir 50 Cent tónleikana í ágúst og við vildum bara gera lag til að minna aðeins á okkur." Þorsteinn í Rottweiler segir að lagið hafi verið sent út til Erps og hann tekið upp sinn part þar og sent aftur heim. "Þetta er frábært lag og show-ið verður svakalegt. Það verða sprengingar á sviðinu og svo verða myndböndin okkar sýnd á risastóru tjaldi fyrir aftan okkur í takti við lögin. Dj Deluxe mun þeyta skífum að baki okkur og svo erum við með gestarappara sem heitir Unnar og býr í Danmörku. Þetta er harðasti íslenski rapparinn, hann hefur bæði verið skotinn og stunginn. Kjarri Kamoflage úr Bæjarins bestu er síðan með okkur í nýja laginu og hann er að koma mjög sterkur inn." En hvernig kom það til að þeir voru fengnir til að spila á undan 50 Cent? "Við vorum spurðir vegna þess að við erum stærsta hip hop hljómsveit Íslandssögunnar," segir Lúlli. En hvor fer seinna á svið Rottweiler eða Quarashi? "Ég veit það ekki hvað finnst þér? " Ja, ég veit það nú ekki. Líklega þið vegna þess að þið eruð meira Bling bling eins og 50. "Nákvæmlega, ég er fullkomlega sammála þér. Við erum miklu meira hip hop band, meira real eins og maður segir, Quarashi er meira rokk eða þannig en þeir er mjög vinsælir og þetta er góðir kunningjar okkar og vinir svo að það skiptir svo sem engu hvort bandið fer fyrr eða seinna á svið." En hvað ætliði að segja við 50 Cent ef þið hittið hann? "Ætli við spyrjum hann ekki hvort að við fáum að taka mynd af honum og Bent berum að ofan. Bent er að lyfta mjög mikið þessa dagana og er orðinn vel massaður. Hann er ekkert á sterum eða neitt svoleiðis, étur bara prótein og dót og er orðinn vel sterkur. Páll Rósinkrans tekur hann alla vega ekki aftur í sjómann eins og hann gerði í Rokkstjörnum Íslands." 50 Cent tónleikarnir verða 11. ágúst og miðasala byrjar nú í byrjun júlí.
Menning Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“