Skoðun

Mótsagnir

Fjölmiðlamálið - Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor - Ólafur Ragnar Grímsson lýsti yfir því á þingi 1995, að hann vildi setja lög til að tryggja dreift eignarhald á fjölmiðlum. Margir aðrir vinstri menn hafa látið í ljós svipaðar skoðanir. Nýlega synjaði Ólafur Ragnar lögum, sem hafa þennan tilgang, staðfestingar. Vinstri menn fagna. - Ólafur Ragnar Grímsson skrifaði í kennslubók 1977, að synjunarvald forsetans væri dauður bókstafur. Hann kenndi það, og hið sama gerðu aðrir kennarar í stjórnmálafræði. Nú hefur Ólafur Ragnar notað þetta vald, og sumir kennarar í stjórnmálafræði virðast ekkert sjá athugavert við það. - Samfylkingarfólk hefur óspart vitnað til þeirra Ólafs Jóhannessonar og Bjarna Benediktssonar um það, að forseti hafi raunverulegt synjunarvald. Það hefur hins vegar lítt haldið á lofti þeirri skoðun Ólafs og Bjarna, að ólíklegt væri og óeðlilegt, að forseti beitti þessu valdi. - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og aðrir forsvarsmenn R-listans settu þá reglu í almennri atkvæðagreiðslu um flugvallarmálið, að niðurstaðan yrði ekki bindandi, nema 75% atkvæðisbærra manna tækju þátt í henni. Sama fólk berst harðlega gegn hugmyndum um svipaða reglu í hugsanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu vegna synjunar forseta. - Samfylkingarfólk kvartar sárhneykslað undan því, að fjölmiðlalögin beinist gegn ákveðnu fyrirtæki og afgreiðslu þess hafi verið hraðað. Sama fólk beitti sér fyrir lögum gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis í febrúar og fyrir því að afgreiða þau lög á tveimur sólarhringum. - Sigurður Líndal stakk upp á því, að fjölmiðlalögin yrðu felld úr gildi og ný fjölmiðlalög samþykkt í haust. Nú segir hann, að ekki megi fella fjölmiðlalögin úr gildi og samþykkja ný fjölmiðlalög síðsumars. - Steingrímur J. Sigfússon sagði, að eðlilegt væri að binda útvarpsleyfi við fyrirtæki, sem ekki hefðu meira en 10% markaðshlutdeild annars staðar. Nú á að breyta fjölmiðlalögunum í þá veru. Hann berst áfram gegn þeim. Þessar mótsagnir veita vísbendingar um, að málstaðurinn sé ekki góður.



Skoðun

Skoðun

Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðar­efni

Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar

Sjá meira


×