Bullur valda óeirðum 16. júní 2004 00:01
Óeirðir brutust út, aðra nóttina í röð, á Albúfeira-ströndinni í Portúgal, þar sem breskar fótboltabullur halda til. Fjöldi Íslendinga nýtur sólarinnar á sömu slóðum, og ráðleggja fararstjórar þeim að halda sig fjarri þeim stöðum sem Bretarnir eru með læti. Skömmu eftir að leik Englands og Þýskalands lauk með jafntefli í gær mættu hundruð fótboltaáhugamanna í megin skemmtistaðagötuna á Albúfeira til að fagna. Þeir sungu fótboltasöngva og stöðvuðu umferð. Innan skamms æstust leikar, ölvunin jókst og kalla varð á lögreglu til að skakka leikinn. 34 voru handteknir eftir að bullurnar tóku að kasta flöskum og plaststólum á lögreglumenn sem fylgdust með og gættu öryggis. Á milli þrjú- og fjögurhundruð manns tóku þátt í ólátunum. Tveir Bretar og einn lögreglumaður slösuðust lítillega. Helgi B. Sigurðsson, fararstjóri á Albúfeira, segir fjölda íslenska ferðamanna hafa orðið vara við ólætin í gær og fyrrinótt. Helgi segir einhverja Íslendinga hafa orðið vara við ólætin sem verða yfirleitt á götu sem Íslendingar kalla Laugarveginn. Yfirleitt verði lætin eftir miðnætti. Helgi segir fararstjóra hafa gefið ferðamönnum skýrar leiðbeiningar. Þeir ráðleggi þeim að vera ekki á Laugarveginum eftir miðnætti, og forða sér ef þeir verða varir við ólæti. Breskir fótboltaáhugamenn hafa löngum verið barnanna verstir, þegar að skrílslátum kemur, og hefur alþjóða knattspyrnusambandið varað breska landsliðið við, og hótað því að liðið geti verið bannað frá alþjóðakeppni valdi áhangendur þess vandræðum. Talsmenn breska knattspyrnusambandsins segja að bullurnar hafi ekkert með knattspyrnu að gera, heldur séu þetta einfaldlega ungir og villtir karlar í fríi á stað þar sem áfengið sé ódýrt. Það höndli þeir ekki og verði sér til skammar með þessum afleiðingum.
Erlent Fréttir Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Sjá meira