Óttast ekki framtíðina 24. nóvember 2004 00:01
Vopnfirðingar óttast ekki framtíðina þótt útgerðarrisinn HB-Grandi við Faxaflóa sé að kaupa útgerðarfyrirtækið Tanga, en atvinnulíf bæjarins og afkoma snýst um fyrirtækið. Stjórnir HB-Granda, Tanga á Vopnafirði og Svans í Reykjavík samþykktu allar samruna félaganna inn í HB- Granda í gær og bíða þessar ákvarðanir nú hluthafafunda. HB-Grandi eykur þar með enn forskot sitt sem stærsta útvegsfyrirtæki hér á landi í kvótum talið. Efnahagsreikningur félagsins stækkar við þetta um rúmlega fjóra og hálfan milljarð og verður rúmlega 26,5 milljarðar króna. Hagur Vopnafjarðarhrepps, sem var ráðandi hluthafi í Tanga, vænkast um leið til muna og skip HB-Granda munu í vaxandi mæli landa á Vopnafirði, einkum uppsjávarfiski, þannig að atvinna ætti að verða jafnari þar. Sveitarfélagið og einstakir heimamenn lögðu allt undir í fyrra þegar ráðist var í kaup á hlut Eskju í Tanga til að styrkja stöðu Tanga í heimahögum, en einmitt þau kaup reyndust svo forsendan fyrir samrunanum við HB Granda. HB Grandi á meðal annars nokkur öflug fjölveiðiskip, auk fjölveiðiskips Tanga, en mun styttra er á kolmunna og síldarmið frá Vopnafirði en frá Faxaflóa. Þar að auki er loðnuveiðin oft mest fyrir austan land. Bræðsla og fiskiðjuver Tanga liggja því mjög vel við þessum miðum. Efnahagur Vopnafjarðarhrepps var á mörkum þess að lenda í gjörgæslu félagsmálaráðuneytisins en með sölunni snýst dæmið nú við og efnahagur sveitarfélagsins verður góður.
Fréttir Innlent Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Sjá meira