Stoppuðu flugræningja og slepptu 22. júlí 2004 00:01
Tveimur klukkustundum áður en ein af flugvélunum sem var rænt 11. september 2001 lenti á bandaríska varnarmálaráðuneytinu tóku flugvallarstarfsmenn fjóra af fimm flugræningjum til hliðar vegna grunsemda sem vöknuðu og málmleitartækis sem fór í gang. Leit á mönnunum leiddi ekkert í ljós og því var þeim hleypt í gegn. Í kjölfarið rændu þeir flugvélinni og flugu henni á varnarmálaráðuneytið. Þetta kemur fram í lokaskýrslu nefndarinnar sem hefur rannsakað aðdraganda hryðjuverkárásanna í New York og Washington. Sérfræðingar segja öryggisgæslu á Dulles flugvelli í Washington, sem mennirnir fóru um, ekki hafa gert meira en að uppfylla lágmarkskröfur í mesta lagi. Flugræningjunum hafi verið hleypt í gegn án þess að fyrir lægi ástæða þess að málmleitartækin fóru af stað. Það væri óásættanlegt. 58 farþegar, sex manna áhöfn og 125 starfsmenn varnarmálaráðuneytisins létu lífið í árásinni. Bandaríkin gátu ekki varið sig gegn árásinni 11. september vegna þess að stjórnvöld höfðu ekki tekið nægilega mikið mark á þeirri ógn sem stafaði af al-Kaída. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndarinnar. Tom Kean, formaður nefndarinnar, sagði að ekkert af því sem stjórnvöld gerðu til að berjast gegn al-Kaída hafi orðið til að trufla eða seinka árásunum. "Þeir brutust í gegnum varnir öflugasta ríkis heims. Þeir ollu þjóð okkar miklu óbærilegu sálrænu tjóni og á sama tíma kollvörpuðu þeir heimsmyndinni sem við bjuggum við," sagði Kean um hryðjuverkamennina. Þrátt fyrir að fundið sé að viðbrögðum stjórnvalda eru hvorki núverandi né fyrrverandi forseti, George W. Bush eða Bill Clinton, sakaður um að hafa brugðist. Mælt er með því að komið verði á fót einni stofnun sem hefur yfirumsjón með starfsemi leyniþjónustustofnana. Með því megi bæta varnir Bandaríkjanna gegn hryðjuverkaárásum í framtíðinni.
Erlent Fréttir Mest lesið Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Hafnaði úti í fjöru Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Fleiri fréttir Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra Sjá meira