Uppstokkun í ríkisstjórn Noregs 18. júní 2004 00:01
Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, stokkaði upp í ríkisstjórn sinni í morgun. Hann kynnti Haraldi Noregskonungi breytingarnar fyrir stundu. Tveir nýir ráðherrar voru kynntir til sögunnar. Varaformaður Kristilega þjóðarflokksins, Knut Arild Hareide sem er einungis 31 árs, verður nýr umhverfisráðherra, og Thorhild Widvey verður nýr olíu- og orkumálaráðherra en hún var aðstoðarráðherra í norska utanríkisráðuneytinu. Aðrar breytingar sem Bondevik hefur gert á ríksstjórn sinni eru þær að Dagfinn Hoybraten, sem gegnt hefur embætti heilbrigðisráðherra, verður félags- og atvinnumálaráðherra, en Ansgar Gabrielsen, verður færður úr viðskiptaráðuneytinu yfir í heilbrigðisráðuneytið. Áður en ljóst var hvaða breytingar yrðu gerðar töldu norskir fjölmiðlar að Gabrielsen yrði látinn fjúka en hann virðist sloppinn. Annar ráðherra sem er sloppinn er Svein Ludvigsen sjávarútvegsráðherra en líklegt var talið að honum yrði skipt út. Í stól viðskiptaráðherra sest Börge Brende, sem var umhverfisráðherra. Tveir ráðherrar þurfa síðan að taka pokann sinn, þau Ingjerd Schou, fulltrúi Hægri flokksins, sem gegndi embætti félagsmálaráðherra, og Einar Steensnes, fulltrúi Kristilega þjóðarflokksins, en hann var olíu- og orkumálaráðherra. Þau hverfa til baka á norska Stórþingið. Kjell Magne Bondevik segist sannfærður um að þessi uppstokkun muni styrkja norsku ríkisstjórnina en hann kynnti Haraldi Noregskonungi breytingarnar nú fyrir hádegi. Þetta eru fyrstu breytingarnar sem gerðar eru á stjórninni síðan haustið 2001 og fylgja þær í kjölfar breytinga á forystu bæði Kristilega þjóðarflokksins og Hægri flokksins.
Erlent Fréttir Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Sjá meira