Lögin komin til þjóðarinnar 16. júlí 2004 00:01 Fjölmiðlalögin - Jónas Jóhannsson héraðsdómari Síðastliðinn föstudag var birtur í Fréttablaðinu greinarstúfur, frá mér kominn, þar sem ég fjallaði vítt og breitt um rúðuþurrkur. Það eitt væri ekki í frásögur færandi ef ekki væri fyrir þá tilviljun, að svo virðist sem þeir, sem greininni var þó beint til, hafi ekki lesið hana. Er það miður. Af því tilefni og einnig í ljósi þjóðfélagslegrar umræðu, sem farið hefur fram undanfarna daga, um 26. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, vil ég leyfa mér að koma hér að viðauka við fyrri blaðagrein. Svo sem þá var rakið, en hefur líklega ekki komið nægilega skýrt fram af minni hálfu, þá dregur Alþingi vald sitt frá íslensku þjóðinni, þ.e. borgurum þessa lands, sem fyrrum voru ranglega nefndir "þegnar". Má því eflaust um kenna þegar hér bjó þjóð, sem var kúguð af yfirvaldi og vissi ekki betur en að hún væri fædd til að þóknast ríkisvaldi, í stað þess sem rétt er, að ríkisvald er leitt af þjóð. Sagan sýnir að þjóðfélög hafa þrifist án ríkisvalds, en ekki veit ég dæmi þess að ríkisvald hafi komið til án þjóðar. Glöggskyggn maður myndi nú spyrja: "Hvernig má þetta vera?" Svarið er einfalt. Valdið er komið frá borgurunum. Þaðan er það runnið og þangað mun það ávallt hverfa. Án borgara er ekki til Alþingi. Alþingi mitt er annars vegar gamalt hús, sem stendur nú við Austurvöll og hins vegar ákveðið valdatæki, sem þjóðin býr yfir og kýs á fjögurra ára fresti 63 samborgara mína til að fara með "á daglegum basis" eins og sumir segja. Ég tók þátt í síðustu alþingiskosningum. Þess vegna get ég ekki skorast undan ábyrgð. Ábyrgð mín, sem borgara þessa lands, felst meðal annars í því að láta heyra í mér þegar kjörnir fulltrúar mínir hafa brugðist þeim skyldum og þeirri ábyrgð, sem þeir leiða frá mér. Eins og sakir standa get ég því miður ekki beðið fram að næstu alþingis-kosningum með að láta rödd mína heyrast. Líkur nú formála eða "prologus"eins og ég og allir hinir lögfræðingarnir lærðu á sínum tíma í lagadeild og gætu eflaust slett fram á latínu í opinberri umræðu, í þeim veikburða tilgangi að þyrla ryki í augu upplýstrar þjóðar. Til að forðast þann stimpil samborgara minna að vera álitinn lýðskrumari eða á annan hátt að vera tengdur við "keypt" álit stjórnmálaflokka eða annarra ráðandi afla þessa lands mun ég hér á eftir gæta þess að fara ekki með neitt, sem ekki stenst skoðun hvers sjálf hugsandi manns. Ég viðurkenni, að Alþingi hafi lagasetningarvald, í umboði borgara þessa lands. Ég viðurkenni, að alþingismenn hafi "rétt til að flytja frumvörp til laga" samkvæmt 38. gr. stjórnarskrárinnar, í mínu umboði. Hitt viðurkenni ég ekki, frekar en þið ágætu samborgarar mínir, að vald Alþingis sé engum takmörkunum háð, eins og nú er haldið fram af hálfu stjórnarherranna. Framsóknarmenn virðast þó vera að átta sig smátt og smátt á þessari augljósu staðreynd. Til upprifjunar. Þegar forseti Íslands synjaði um staðfestingu laga nr. 48/2004 (fjölmiðlalaga) hratt hann af stað ferli samkvæmt 26. gr. stjórnarskrárinnar, í skjóli valds síns samkvæmt 2. gr. hennar. Það ferli verður ekki stöðvað af Alþingi, hvorki með því að "afturkalla" lögin né heldur með því að breyta þeim eða fella úr gildi með nýjum lögum. Tilvitnuð 38. gr. stjórnarskrárinnar, sem nú er haldið á lofti, kemur þessu máli ekkert við. "Uss og bamm", þið sem reynið að plata borgarana með slíku bulli. Valdið er núna komið til þjóðarinnar. Það er farið úr höndum Alþingis og það er farið úr höndum forseta. Um gildi fjölmiðlalaganna til frambúðar fer nú einungis eftir því hvort þjóðin samþykki í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem boðað skal til eftir 26. gr. stjórnarskrárinnar, að lögin skuli halda gildi sínu. Ella falla þau niður dauð og ómerk. Fyrir því eru þau einföldu rök, að frá þeim tímapunkti, til góðs eða ills fyrir okkur borgarana, þegar forseti synjaði um staðfestingu laganna, þá missti Alþingi forræði yfir lögunum. Umboð þess til að fjalla um lögin hefur verið afturkallað. Þeir sem þykjast vera í vafa um þetta skulu hafa hugfast, að ef vafi leikur á því hvernig túlka beri skýrt ákvæði 26. gr. stjórnarskrárinnar, þá nýtur þjóðin vafans, en ekki einhver ríkisstjórn úti í bæ. Stjórnarskráin er jú okkar eign, en ekki ríkisstjórnarinnar. Það veldur mér vissum vonbrigðum að hæstvirtir prófessorar í lögum, Eiríkur Tómasson og Sigurður Líndal, skuli af kurteisi við ríkisstjórnina gefa henni ranglega undir fótinn, að til sé leið til að "sleppa billega" undan þeirri skömm, sem ríkisstjórnin hefur valdið mér og mínum samborgurum, með því að hleypa þeirri hugsun að í kolli ráðherra, að með því að "afturkalla" fjölmiðlalögin eða fella þau sjálfstætt úr gildi með nýjum lögum, sem lúti þá eingöngu að þeim ólögmæta tilgangi, þá sé ef til vill allt í lagi. Það er nú barasta aldeilis ekki svo. Hin umþrættu lög eru komin til umsagnar þjóðarinnar, í kjölfar synjunar forseta um staðfestingu þeirra og það vald okkar borgaranna til að ákveða hvort lögin skuli halda gildi eður ei verður aldrei, já ég segi aldrei úr höndum okkar tekið. Ég skora á hvern þann lögspeking, sem ríkisstjórnin getur teflt fram, að hnekkja þessu áliti mínu og þjóðarinnar, með rökum sem standast skoðun. Þá er ég ekki að tala um órökstuddar fullyrðingar í gagnstæða átt og/eða tilvísanir til annarra ákvæða stjórnarskrárinnar, settar fram "á flottan hátt" í fjölmiðlum. Gefið þjóðinni nú tækifæri til að svara mótrökum. Þau hafa engin komið fram til þessa. Þegar herra Ólafur Ragnar Grímsson var fyrst kjörinn réttmætur forseti þessa lands kaus ég, eins og fleiri dyggir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, annan frambjóðanda en þann sem kjörinn var. Svo heitt var mér í hamsi á umræddum tíma, að á heimili mínu var ekki rætt um annað á tímabili en hvað tæki við ef "Óli grís" kæmist til valda. Börnin fóru því miður ekki varhluta af neikvæðu umtali mínu í garð forseta míns. Skömmu eftir kjör hans hélt fjölskyldan í sumarfrí til Spánar. Einhvers staðar yfir miðju Atlantshafi gall þá við í fjögurra ára dóttur minni: "Það er eins gott pabbi, að við erum að fara til Spánar, fyrst að Óli svín er orðinn forseti." Sælir eru saklausir. Ég vil biðja þig, herra forseti, þótt seint sé fram komið, afsökunar á fyrrum illmælgi í yðar garð. Þér eruð forseti minn. Ég treysti á yður. Höfundur er borgari og héraðsdómari. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein Skoðun Skoðun Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Sjá meira
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar