Frá degi til dags 6. júlí 2004 00:01 Orðasafn Steingríms J. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, bætti enn einni fjólunni við skrautlegt orðasafn sitt í gær þegar hann hljóp á eftir Halldóri Blöndal þingforseta úr þingsalnum í Alþingishúsinu og kallaði hann „djöfulsins aumingja“. Ekki er langt síðan hann kallaði Davíð Oddsson forsætisráðherra „gungu“ og „druslu“ í ræðustól á Alþingi. Auðvelt er að fordæma svona orðanotkun en þingmanninum til málsbóta má segja að framkoma ráðamanna var í bæði skiptin fyrir neðan allar hellur. Í fyrra skiptið rauf forsætisráðherra hefð og neitaði að koma í þingsalinn til að hlýða á umræður og bar við að hann væri upptekinn á fundi; en sagt er að hann hafi þá verið flissandi í hliðarsal. Í seinna skiptið, í gær, töldu þingmenn að Halldór Blöndal hefði á ósvífinn hátt brotið þingsköp með því að meina þingmönnum að ræða um fundarstjórn forseta. Á tunglinu 1964? „Hver tók myndina af Armstrong þegar hann tók „fyrstu“ skrefin á tunglinu? Var þá ekki einhver annar búin að labba á tunglinu til að mynda hann?“ Þannig var spurt á Vísindavef Háskóla Íslands fyrir nokkru síðan. Í löngu svari reyndu fræðimenn háskólans að hrekja vinsælar samsæriskenningar um að þessi fyrsta mannaða tunglferð árið 1969 hafi verið fölsuð í myndveri Bandaríkjastjórnar. En nú hafa komið fram upplýsingar sem kunna að leiða til þess að þeir verði að endurskoða svör sín. Í Morgunblaðinu í gær, þar sem sagt er frá heimsókn Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra til Lyndons B. Johnson Bandaríkjaforseta sumarið 1964, kemur fram að mynd af Armstrong á tunglinu hafi verið til í Hvíta húsinu fimm árum fyrir tunglferðina og hafi Bjarni fengið hana að gjöf. Orðrétt segir: „Bjarni gaf Bandaríkjaforseta Guðbrandsbiblíuna... og Lyndon B. Johnson gaf íslenska forsætisráðherranum ræðusafn sitt, gullbakka og mynd af Armstrong á tunglinu“ [leturbreyting okkar]. Sannarlega athyglisvert! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Sjá meira
Orðasafn Steingríms J. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, bætti enn einni fjólunni við skrautlegt orðasafn sitt í gær þegar hann hljóp á eftir Halldóri Blöndal þingforseta úr þingsalnum í Alþingishúsinu og kallaði hann „djöfulsins aumingja“. Ekki er langt síðan hann kallaði Davíð Oddsson forsætisráðherra „gungu“ og „druslu“ í ræðustól á Alþingi. Auðvelt er að fordæma svona orðanotkun en þingmanninum til málsbóta má segja að framkoma ráðamanna var í bæði skiptin fyrir neðan allar hellur. Í fyrra skiptið rauf forsætisráðherra hefð og neitaði að koma í þingsalinn til að hlýða á umræður og bar við að hann væri upptekinn á fundi; en sagt er að hann hafi þá verið flissandi í hliðarsal. Í seinna skiptið, í gær, töldu þingmenn að Halldór Blöndal hefði á ósvífinn hátt brotið þingsköp með því að meina þingmönnum að ræða um fundarstjórn forseta. Á tunglinu 1964? „Hver tók myndina af Armstrong þegar hann tók „fyrstu“ skrefin á tunglinu? Var þá ekki einhver annar búin að labba á tunglinu til að mynda hann?“ Þannig var spurt á Vísindavef Háskóla Íslands fyrir nokkru síðan. Í löngu svari reyndu fræðimenn háskólans að hrekja vinsælar samsæriskenningar um að þessi fyrsta mannaða tunglferð árið 1969 hafi verið fölsuð í myndveri Bandaríkjastjórnar. En nú hafa komið fram upplýsingar sem kunna að leiða til þess að þeir verði að endurskoða svör sín. Í Morgunblaðinu í gær, þar sem sagt er frá heimsókn Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra til Lyndons B. Johnson Bandaríkjaforseta sumarið 1964, kemur fram að mynd af Armstrong á tunglinu hafi verið til í Hvíta húsinu fimm árum fyrir tunglferðina og hafi Bjarni fengið hana að gjöf. Orðrétt segir: „Bjarni gaf Bandaríkjaforseta Guðbrandsbiblíuna... og Lyndon B. Johnson gaf íslenska forsætisráðherranum ræðusafn sitt, gullbakka og mynd af Armstrong á tunglinu“ [leturbreyting okkar]. Sannarlega athyglisvert!
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun