Erlent

Fangarnir vinsælir í Danmörku

Danskir fangar virðast vinsælir, í það minnsta er kapphlaupið hafið í Danmörku um hvaða sveitarfélag fær nýtt fangelsi til sín. Áformað er að reisa nýtt fangelsi á austurhluta Danmerkur og mun það skapa um 250 til 300 störf. Samkvæmt dagblaðinu Information hefur sem dæmi sveitarfélagið Ringsted sent bréf til dómsmálaráðherra landsins þar sem staðsetningin er dásömuð, og bent á það að það taki aðeins fjörutíu mínútur að keyra til bæði Óðinsvéa og Kaupmannahafnar. Búist er við að átökin skili sér til þingmanna danska þingsins og komi til með að valda deilum um staðsetningu hins nýja fangelsis, en framkvæmdir hefjast árið 2008.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×