Að umgangast báða foreldra 19. júlí 2004 00:01 Forsjá barna - Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði Í grein sem Ottó Sverrisson skrifar í blaðið þann 14. júlí sl. kemur fram að ekki sé tekið á máli þeirra barna sem ekki njóta nægilegrar samvista við báða foreldra. Ég tek heils hugar undir skrif Ottós og undra það að ekki skuli koma víðtækari þrýstingur frá þjóðfélaginu, börnum til hjálpar. Hér er að sjálfsögðu átt við þegar báðir aðilar eru hæfir til að hugsa um börn sín. Á þingi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja var fyrir sjö árum samþykkt ályktun um forsjár- og umgengismál og hefur tvívegis verið hnykkt á henni. Ályktunin sem samþykkt var á 40. þingi bandalagsins árið 2003 hljóðar svo: "Fertugasta þing BSRB hvetur yfirvöld til þess að hraða afgreiðslu í forsjár- og umgengnisréttarmálum og hafa ætíð hagsmuni barnanna í fyrirrúmi. Börnum skal tryggður réttur samkvæmt íslenskum barnalögum, lögum um vernd barna og ungmenna og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um samvistir við báða foreldra". Hér er um að ræða nauðsynlegan gjörning, en galli er á gjöf Njarðar. Þessari ályktun hefur á engan hátt verið fylgt eftir hvorki fyrr né nú. Það er mín skoðun að hafi svo stór samtök virkilegan áhuga á því sem ályktunin fjallar um væru íslensk börn kannski farin að sjá fram á að samneyti við báða foreldra yrðu raunveruleg. Í það minnsta gætu slík samtök komið málinu á hreyfingu. Það er deginum ljósara að börn geta ekki barist óstudd við þau öfl sem hamla þeim að umgangast báða foreldra eins og lög kveða á um eða mannsæmandi þykir. Við erum aftarlega á merinni hvað þetta varðar og eigum langt í land með að geta sagt að slíkt bjóða Íslendingar ekki börnum sínum. Innan þingsins hefur það verið Samfylkingin sem hefur tekið á málinu, en að mínu viti ekki af nægilegum sannfæringarkrafti. Það er tími til kominn að þjóðfélagið í heild mótmæli þessari meðferð á saklausum börnum sem óvart hafa lent í deilu foreldra og eru aðalskotmark reiðinnar. Leyfum hamingjusömum börnum að vaxa úr grasi og njóta beggja foreldra þar sem þess er kostur, nóg er af hinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað er hægt að semja um? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson Skoðun Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir Skoðun Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026 Sigurbjörg Ottesen Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson Skoðun Á hvaða vegferð erum við? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir skrifar Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar Skoðun Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Skoðun Borgum ekki skuldir óreiðuríkja Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hvað er hægt að semja um? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð erum við? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026 Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsum stærra Magnús Lyngdal Magnússon skrifar Skoðun Leigufélög eignast fasteignamarkaðinn, fjárfestar eignast Garðabæ Baldur Jezorski skrifar Skoðun Mannauðsvald stjórnar meiru en margir halda skrifar Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Liðbólgusjúkdómar – fræðsla skiptir máli Katrín Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson skrifar Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson skrifar Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Forsjá barna - Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði Í grein sem Ottó Sverrisson skrifar í blaðið þann 14. júlí sl. kemur fram að ekki sé tekið á máli þeirra barna sem ekki njóta nægilegrar samvista við báða foreldra. Ég tek heils hugar undir skrif Ottós og undra það að ekki skuli koma víðtækari þrýstingur frá þjóðfélaginu, börnum til hjálpar. Hér er að sjálfsögðu átt við þegar báðir aðilar eru hæfir til að hugsa um börn sín. Á þingi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja var fyrir sjö árum samþykkt ályktun um forsjár- og umgengismál og hefur tvívegis verið hnykkt á henni. Ályktunin sem samþykkt var á 40. þingi bandalagsins árið 2003 hljóðar svo: "Fertugasta þing BSRB hvetur yfirvöld til þess að hraða afgreiðslu í forsjár- og umgengnisréttarmálum og hafa ætíð hagsmuni barnanna í fyrirrúmi. Börnum skal tryggður réttur samkvæmt íslenskum barnalögum, lögum um vernd barna og ungmenna og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um samvistir við báða foreldra". Hér er um að ræða nauðsynlegan gjörning, en galli er á gjöf Njarðar. Þessari ályktun hefur á engan hátt verið fylgt eftir hvorki fyrr né nú. Það er mín skoðun að hafi svo stór samtök virkilegan áhuga á því sem ályktunin fjallar um væru íslensk börn kannski farin að sjá fram á að samneyti við báða foreldra yrðu raunveruleg. Í það minnsta gætu slík samtök komið málinu á hreyfingu. Það er deginum ljósara að börn geta ekki barist óstudd við þau öfl sem hamla þeim að umgangast báða foreldra eins og lög kveða á um eða mannsæmandi þykir. Við erum aftarlega á merinni hvað þetta varðar og eigum langt í land með að geta sagt að slíkt bjóða Íslendingar ekki börnum sínum. Innan þingsins hefur það verið Samfylkingin sem hefur tekið á málinu, en að mínu viti ekki af nægilegum sannfæringarkrafti. Það er tími til kominn að þjóðfélagið í heild mótmæli þessari meðferð á saklausum börnum sem óvart hafa lent í deilu foreldra og eru aðalskotmark reiðinnar. Leyfum hamingjusömum börnum að vaxa úr grasi og njóta beggja foreldra þar sem þess er kostur, nóg er af hinu.
Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar
Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar
Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun