Erlent

Sprenging í kjarnorkuveri

Fimm af tíu starfsmönnum kjarnorkuvers í Japan, sem voru fluttir í skyndingu á sjúkrahús eftir gufusprenging varð í kjarnorkuveri í borginni Mihama í nótt, eru látnir. Gufusprenging varð við einn kjarnakljúfinn en stjórnvöld staðhæfa að engin geislavirk efni hafi lekið út. Ekki er nánar tilgreint í hverju bilunin liggur. Myndin er af kjarnorkuverinu í Mihama.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×