Írakar tengdust víst al-Kaída 17. júní 2004 00:01
George W. Bush Bandaríkjaforseti dró í gær í efa fullyrðingar nefndar, sem rannsakar hryðjuverkaárásirnar 11. september, um að ekki væri að sjá að nein tengsl hefðu verið á milli íraskra stjórnvalda og al-Kaída. "Það var samband milli Íraks og al-Kaída," sagði Bush að loknum fundi með ráðherrum sínum. "Þessi ríkisstjórn sagði aldrei að árásirnar 11. september hefðu verið samvinnuverk Saddams og al-Kaída," sagði hann. "Við sögðum að það hefðu verið samskipti milli Saddams Husseins og al-Kaída. Til dæmis hittu fulltrúar írösku leyniþjónustunnar bin Laden, leiðtoga al-Kaída, í Súdan," bætti Bush við. Um fundinn í Súdan sagði rannsóknarnefndin að hann hefði átt sér stað en ekkert komið út úr honum. Osama bin Laden hefði farið fram á stuðning Íraka en þeir ekki svarað honum. Þá héldu hvort tveggja Dick Cheney varaforseti og Colin Powell utanríkisráðherra héldu því fram að leiðtogi árásarmannana 11. september hefði hitt íraskan leyniþjónustumann skömmu fyrir árásirnar. Mjög hefur verið dregið í efa að sá fundur hafi átt sér stað en niðurstaðan var eftir sem áður sú að meirihluti Bandaríkjamanna trúði því að Írakar hefðu átt þátt í árásunum 11. september. Samkvæmt skoðanakönnun í apríl síðast liðnum töldu 49 prósent Bandaríkjamanna enn að sannað hefði verið að Írakar hefðu stutt al-Kaída, 36 prósent töldu að svo væri ekki. Skýrsla rannsóknarnefndarinnar hefur vakið hörð viðbrögð. Leiðarahöfundur New York Times segir að Bush verði að biðja bandarísku þjóðina afsökunar á því að hafa blekkt hana. Þar segir að það óheiðarlegasta sem Bush gerði í að sannfæra Bandaríkjamenn um þörfina fyrir innrás í Írak hafi verið að tengja hana baráttunni gegn hryðjuverkum þegar flestir sérfræðingar töldu engin tengsl milli Íraka og al-Kaída. Leiðarahöfundur Washington Post telur viðbrögð við skýrslunni of hörð en atyrðir Cheney þó fyrir að halda á lofti hugmyndum um stuðning Íraka við al-Kaída löngu eftir að allir aðrir í stjórninni hafi séð að sér.
Erlent Fréttir Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Sjá meira