Takmörkuð bjartsýni leiðtoga 17. júní 2004 00:01
Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins leitast í dag við að ná samkomulagi um helstu deilumál sín sem hafa komið í veg fyrir að sátt hefur náðst um stjórnarskrá sambandsins. Þeir hófu tveggja daga fund sinn í gær en voru lítt bjartsýnir. "Ég er ekki sérlega bjartsýnn. Við eigum enn eftir að ljúka mjög erfiðum málum," sagði Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands sem er í forsæti Evrópusambandsins. Helstu deilumálin eru annars vegar kosningakerfið sem er notað við að taka ákvarðanir og hins vegar spurningin um hvort minnast eigi á guð í stjórnarskránni. Einfalda á kosningakerfið en deilt er um með hvaða hætti eigi að gera það. Írar lögðu fram tillögu um að við ákvarðanatöku þyrfti stuðning minnst fjórtán ríkja með 65 prósent íbúa Evrópusambandsins. Pólverjar og Spánverjar vilja að fleiri þjóðir þurfi að samþykkja mál svo stórþjóðirnar verði ekki of valdamiklar. Að auki á að afnema þá reglu að hvert ríki eigi sinn fulltrúa í framkvæmdastjórn sambandsins. Þjóðarleiðtogarnir ræða einnig hver sé heppilegasti eftirmaður Romano Prodi, forseta framkvæmdastjórnarinnar, og hvort fella eigi niður neitunarvald einstakra ríkja í skattamálum, félagsstefnu og dómsmálum.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Erlent Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Innlent Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Erlent Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Innlent Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Erlent Þórdís Lóa ætlar ekki fram Innlent Fordæma ummæli Musk á mótmælum gegn útlendingum Erlent Tvíburarnir fengu ár í viðbót Innlent Brueckner neitar að ræða við bresk lögregluyfirvöld Erlent Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Innlent Fleiri fréttir Stórauka útgjöld til varnarmála Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Fordæma ummæli Musk á mótmælum gegn útlendingum Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Svarar til saka fyrir morð á „blóðuga sunnudeginum“ AfD þrefalda fylgi sitt í fjölmennasta sambandslandinu Brueckner neitar að ræða við bresk lögregluyfirvöld Kalla rússneska sendiherrann á teppið Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Fordæmir notkun fánans í þágu ótta og rasisma Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Drónaárás á eina stærstu olíuvinnslu Rússlands Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Á þriðja tug slasaðir eftir gassprengingu í Madríd Hundrað þúsund mótmæla hælisleitendum í Lundúnum „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Útnefnd forsætisráðherra Nepal fyrst kvenna Ekkja Kirk tjáir sig eftir morðið Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Hefja frumkvæðisathugun á dauðsföllum tengdum bóluefnum Allsherjarþingið ályktar um palestínskt ríki NATO eflir varnir í austri Erna Solberg hættir Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Trump segist nokkuð viss um að grunaður morðingi hafi verið handsamaður Bandaríkjastjórn fargar getnaðarvörnum fyrir 9,7 milljónir dala Sjá meira