Mál aldarinnar í Belgíu 17. júní 2004 00:01
Hataðasti maður Belgíu, Marc Dutroux, var í dag dæmdur fyrir að ræna sex stúlkum og fyrir að myrða tvær þeira og vitorðsmann sinn. Dutroux viðurkenndi að hafa rænt stúlkunum og nauðgað þeim en sagðist ekki vera morðingi. Dutroux var handtekinn í ágúst árið 1996, þannig að mál hans hefur tekið hátt í átta ár. Í garði hans fundust líkamsleifar tveggja stúlkna og sýndu krufningarskýrslur að þær hefðu orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi og barsmíðum. Lík karlkyns vinar Dutroux og tveggja átta ára stúlkna fundust í öðru húsi í eigu hans. Stúlkurnar höfðu dáið úr hungri. Þeim hafði líka verið nauðgað ítrekað. Dutroux rændi stúlkunum og hélt þeim nauðugum í klefa sem hann byggði í kjallaranum. Það var ekki fyrr en í þriðju heimsókn lögreglu að húsinu sem aðgangur að klefanum fannst. Þar voru tvær aðrar stúlkur, hin tólf ára gamla Sabine Dardenne og hin fjórtán ára Laetizia Delhez. Þær báru báðar vitni í réttarhöldunum gegn Dutroux. Þegar Dutroux bað Dardenne afsökunar á því að hafa nauðgað henni fyrir réttinum sagði hún honum að fara til helvítis. Fá mál ef nokkur hafa vakið jafn mikla reiði meðal Belga, landsmenn héldu nánast í heild sinni út á götur árið 1997 til að mótmæla slælegum vinnubrögðum lögreglu. Meðal annars vakti mikla reiði að ítekuðum tilkynningum um barnsgrát frá heimili Dutroux hafði ekki verið sinnt, og ekki bætti úr skák að Dutroux slapp úr haldi lögreglu um tíma. Árið 1989 var Dutroux dæmdur fyrir að nauðga fimm ungum stúlkum en hann sat einungis inni þrjú ár af fimmtán ára dómi. Eftir að dómur féll í dag er hins vegar líklegt að hann fái aldrei að njóta frelsins aftur.
Erlent Fréttir Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Sjá meira