Glæsilegur kvartmílubíll 6. ágúst 2004 00:01
Tryllitæki þessarar viku er Subaru Impreza STi árgerð 2003. Bíllinn er eins konar fjölskylduhobbí hjá Guðlaugi Má Halldórssyni og foreldrum hans. Foreldrar hans eiga bílinn en Guðlaugur keppir í kvartmílu á honum. Áður átti fjölskyldan Subaru Imprezu árgerð 1999 og voru byrjuð að fikta aðeins í honum. Þau keyptu síðan þennan nýja frá Ingvari Helgasyni hér á Íslandi á síðasta ári og komu sér strax í samband við Roger Clark, breskt fyrirtæki sem sér um að breyta bílum. Bretarnir höfðu reyndar ekki pláss fyrir bílinn þá en tóku hann að sér þar sem bíll af þessari tegund var ekki til í Bretlandi. Þeir sjá ekki eftir því þar sem bílnum og Guðlaugi hefur gengið mjög vel í kvartmílunni. Guðlaugur hefur keppt mikið hér heima og er nýkominn frá Bretlandi þar sem hann keppti á mjög stóru móti. Þar gekk honum mjög vel og lenti í sjöunda sæti af alls 130 keppendum. Bíllinn er með tveggja lítra vél og skilar 532 hestöflum. Hann er búinn að vera í yfirhalningu hjá Roger Clark og búið er að breyta honum talsvert. Bíllinn er enn með standard gírkassa og drif en búið er að skipta um driföxla og gera allt í vélinni miklu sterkara. Vélin er því sambærileg og í rallíbílum sem keppa í heimsmeistarakeppninni. Roger Clark hefur líka stutt vel við bakið á Guðlaugi og fjölskyldu og kom með þeim á stóra mótið í Bretlandi á dögunum. Að sögn Guðlaugs er bíllinn mjög skemmtilegur og honum finnst afskaplega gaman að keppa í kvartmílu þó að sportið sé ansi dýrt.
Bílar Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira