Erlent

Hvalfriðunarsinnar anda léttar

Tillaga Japana um að heimila leynilegar atkvæðagreiðslur í Alþjóðahvalveiðiráðinu var felld á ársfundinum í Sorrento í gær. Japanar hóta að segja sig úr ráðinu, verði hvalveiðar í atvinnuskyni ekki leyfðar í síðasta lagi árið 2006.  Andstæðingar hvalveiða önduðu léttar, en þeir óttuðust að stefna Alþjóðahvalveiðiráðsins myndi breytast í meginatriðum og meirihluti fengist fyrir því að leyfa hvalveiðar að nýju. Tillaga formanns hvalveiðiráðsins, um að leyfa aftur hvalveiðar, verður tekin fyrir á fundinum í dag



Fleiri fréttir

Sjá meira


×