Tugir látast í fjölda árása 24. júní 2004 00:01
Hver dagurinn á fætur öðrum ber í för með sér nýja staðfestingu þess að ótti manna við árásir í aðdraganda valdaafsals hernámsliðsins í Írak ætti við rök að styðjast. Varla líður sá dagur að ekki berist tíðindi af árásum og morðum og var gærdagurinn einn sá blóðugasti. Um níutíu manns létu lífið í árásum á fjölda staða í Írak og á fjórða hundrað særðist. Mest var mannfallið í Mósúl. Þar létust 45 einstaklingar hið minnsta og á þriðja hundrað særðist í röð sprengjuárása. Víða var ráðist á lögreglustöðvar og virtust íraskir lögreglumenn eiga í miklum vanda við að verjast árásarmönnum. Maður í búningi lögreglumanns sprengdi sjálfan sig í loft upp við varðstöð í Bagdad og banaði fjórum íröskum hermönnum. Ráðist var að herbílalest sem átti leið um Bagdad og einum hermanni banað. Andspyrnumenn réðust á fjórar lögreglustöðvar í borginni, vopnaðir vélbyssum, handsprengjum og sprengjuvörpum. Þar tókst lögreglumönnum að halda aftur af árásarmönnum. Hörðustu bardagarnir áttu sér stað í Baqouba, norðaustur af Bagdad. Þar féllu tvær bandarískir hermenn og sjö særðust. Bandarískar herflugvélar vörpuðu sprengjum á andspyrnumenn nærri fótboltavelli borgarinnar en ekki fengust fréttir af mannfalli í þeirra röðum. Andspyrnumenn náðu tveimur lögreglustöðvum í borginni á sitt vald og eyðilögðu heimili lögreglustjórans. Þegar líða tók á daginn sáust fáir á ferli í borginni aðrir en hermenn og andspyrnumenn. Samtök sem tengjast al-Kaída hafa lýst ábyrgð á árásunum á hendur sér. "Við munum ráða niðurlögum þeirra. Við myljum þá duftinu smærra," sagði Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar sem tekur formlega við völdum á miðvikudag, um þá sem staðið hafa fyrir árásum síðustu daga. Hann sagði markmið árásarmanna aðeins eitt, að skemma fyrir lýðræðisferlinu.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Fleiri fréttir Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Sjá meira