Tvær sprengjuárásir í Tyrklandi 24. júní 2004 00:01
Að minnsta kosti þrír létust og fimmtán særðust í sprengingu í strætisvagni í Istanbúl í Tyrklandi í dag. Þá særðust þrír í minni sprengingu fyrir utan hótel í Ankara í dag. Árásirnar eru taldar tengjast leiðtogafundi NATO sem verður í Istanbúl í næstu viku. Sprengingarnar tvær urðu með aðeins tveggja klukkustunda millibili. Síðari sprengingin, sem átti sér stað í strætisvagni í Istanbúl, var mun öflugri en sú fyrri í Ankara. Strætisvagninn var á leið framhjá háskólasjúkrahúsinu í Istanbúl þegar sprengjan sprakk. Þrír farþega vagnsins létust og fimmtán særðust í sprengingunni sem eyðilagði allan framhluta strætisvagnsins. Aðeins tveimur klukkustundum áður sprakk sprengja um 25 metrum fyrir utan Hilton hótelið í Ankara þar sem þrír særðust, þar af tveir lögreglumenn. Ekki er vitað hver ber ábyrgð á árásinni í Istanbúl en grunur leikur á að árásarmaðurinn sé átján ára karlmaður sem steig úr strætisvagninum aðeins örskömmu áður en sprengjan sprakk. Öfgahópur Marxista hefur lýst tilræðinu í Ankara á hendur sér. Talið er að sprengjuárásirnar í dag tengist leiðtogafundi NATO sem fram fer í Istanbúl í næstu viku þar sem meðal annarra verða viðstaddir George Bush, sorseti Bandaríkjanna, Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Jaques Chirac, forseti Frakklands. Fjöldi sprengjuárása hefur átt sér stað í Tyrklandi undanfarið og leggja þarlendir ráðamenn allt kapp á að herða öryggisgæslu fyrir leiðtogafundinn. Stórt svæði í miðborg Istanbúl verður girt af auk þess sem eftirlitsflugvélar munu sveima yfir borginni dagana sem fundurinn stendur yfir.
Erlent Fréttir Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Sjá meira