Bílsprengja í Bagdad 14. júní 2004 00:01
Öflug bílsprengja grandaði að minnsta kosti þrettán manns í Bagdad í morgun. Mikil reiði ríkir vegna tilræðisins og er óttast að frekari árásir verði gerðar. Árásin var með sama hætti og margar fyrri árásir; bíl hlöðnum sprengiefnum er ekið inn í miðja bílaþvögu á háannatíma og hann sprengdur í loft upp. Fimm hundruð kíló af sprengiefni skilja eftir sig ummerki: sundurtætta bíla, á sjöunda tug slasaðra og þrettán látna. Svo virðist sem skotmark tilræðismannsins hafi verið bílalest erlendra verktaka á leið til vinnu en Bandaríkjamaður, tveir Bretar, Frakki og einn útlendingur til voru á meðal fallinna og í það minnsta átta Írakar létust. Múgurinn snerist gegn bandarískum hermönnum og lögreglusveitum á staðnum og lauk viðskiptum þeirra með því að hermenn og lögregla hurfu af vettvangi. Talsmenn yfirvalda í Bagdad telja víst að hópur Abus Musabs al-Zarqawis, sem stjórnar aðgerðum al-Qaeda í Írak, standi á bak við verknaðinn. Nú er rúmur hálfur mánuður þangað til ný íröksk ríkisstjórn tekur við völdum í landinu. Undanfarna daga hafa sjálsmorðsárásir, morð á stjórnmálamönnum og árásir á lögreglustöðvar verið daglegt brauð. Óttast er að þetta ástand, ofbeldið og ringulreiðin, muni enn versna.
Erlent Fréttir Mest lesið Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Erlent Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Innlent Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Erlent „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ Innlent „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Innlent Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Innlent Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal Innlent Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Innlent Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Erlent Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Erlent Fleiri fréttir Níu látnir er Taíland og Kambódía skiptast á loftárásum Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Biden hraunar yfir Clooney: „Hann má fokka sér“ Segjast hafa fengið rangar líkamsleifar Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Hundrað hjálparsamtök segja hungursneyð breiðast út um Gasa-svæðið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Ozzy Osbourne allur Hitinn víða yfir 50 stig og vatnsforðinn að þorna upp Brú skóf þakið af tveggja hæða rútu Ísraelar segja yfirlýsingu 28 ríkja úr takti við raunveruleikann Ríkisstjórn Bandaríkjanna og Harvard takast á fyrir dómstólum Nítján látnir eftir að herflugvél brotlenti á skólabyggingu Rússar opnir fyrir friðarviðræðum en hyggist ekki slá af kröfum sínum Hátt í sjötíu drepnir í biðröð eftir mat Ökumaðurinn skotinn af vitnum á vettvangi Flóðbylgjuhætta eftir stærðarinnar skjálfta í Rússlandi Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Sjá meira