Framkvæmdi hugmynd Hitler 14. júní 2004 00:01
Einræðisherrann Adolf Hitler gældi við það tæpum 60 árum áður en það raunverulega gerðist að láta flugvélar hlaðnar sprengiefnum fljúga á skýjakljúfa í New York. Voru hugmyndir hans það langt komnar að búið var að þjálfa flugmenn og teikna flugvélarnar, sem hlutu nafnið Amerikabomber. Reyndi Hitler mikið að hefja framleiðslu vélanna við lok stríðsins þegar fyrirséð var að þýski herinn væri á undanhaldi á flestum vígstöðvum en gafst ekki nægilegt tóm til. Albert Speer, æðsti yfirmaður hergagnaframleiðslu Þjóðverja, minntist þess í dagbók sinni árið 1947 hvernig Hitler umturnaðist þegar talið barst að árásum vélanna á New York. "Það var næstum eins og æði gripi hann þegar hann lýsti draumórum sínum um að sjá New York brenna til grunna. Hann ímyndaði sér hvernig skýjakljúfarnir myndu loga eins og kyndlar eftir árásirnar og hrynja svo til jarðar meðan eldarnir mynduðu ljóðræna birtu við dökkan himininn." Hugmyndin um Amerikabomber byggðist á að framleidd yrði risastór flutningavél með langt flugþol sem borið gæti aðra minni flugvél langleiðina yfir Atlantshafið. Í nánd við Bandaríkin yrði minni vélinni sleppt en samkvæmt teikningum sem fundist hafa þótti ekki ástæða til að hafa vopn né lendingarbúnað í þeim. Sú vél gæti flogið afar hratt svo næsta ómögulegt væri að skjóta hana niður af loftvarnabyssum eða árásarvélum. Flutningavélinni yrði snúið við til Þýskalands þar sem næsta sprengjuvél yrði fest við hana og átti þannig að vera hægt að senda vélar með reglulegu millibili yfir hafið. Teikningar af umræddum vélum hafa nýlega litið dagsins ljós eftir áratuga geymslu en prófessor við háskóla í Berlín fann þær og kom á framfæri við fjölmiðla. Þykir mörgum þetta staðfesting á þýsku hugviti en margt af því sem þýskir verkfræðingar uppgötvuðu í seinni heimsstyrjöldinni er enn þann dag í dag notað víða í iðnaði hvers konar.
Erlent Fréttir Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Sjá meira