Tókýó enn dýrasta borg heims 14. júní 2004 00:01
Enn er langdýrast að búa í Tókýó og bæði Moskva og Pétursborg eru orðnar dýrari en New York. Þetta er samkvæmt samantekt Mercer Human Resource Consulting sem unnin er fyrir ríkisstjórnir og stórfyrirtæki sem þurfa að senda starfsmenn sína til tímabundinnar dvalar víða um heim. Upplýsingarnar gefa því ekki mynd af því hvar dýrast er fyrir heimamenn að búa. Gerður er listi yfir 50 dýrustu borgirnar og er verðlagið miðað út frá verðlagi í New York sem gefið er hundrað punktar. New York er nú í tólfta sæti yfir dýrustu borgirnar en Tókýó er með rúma 130 punkta. Fjörutíu og átta punktum munar á Tókýó og ódýrustu borginni á listanum sem er Aþena í Grikklandi. London er í öðru sæti og Moskva í því þriðja en þær eru álíka dýrar. Listi tíu dýrustu borganna er annars eftirfarandi: 1. Tókýó 2. London 3. Moskva 4. Osaka 5. Hong Kong 6. Genf 7. Seoul 8. Kaupmannahöfn 9. Zurich 10. Pétursborg Af borgum sem hafa stokkið upp listann frá í fyrra má nefna Istanbúl, Róm, Ríga, Berlín og Amsterdam. Ef dæmi eru tekin í hina áttina, þar sem nú er ódýrara að búa en í fyrra, má nefna Hanoi í Víetnam, Chicago, San Francisco og Singapore. Reykjavík er ekki að finna á þessum lista, og heldur ekki á 150 borga lista Mercher fyrirtækisins, sem líklega bendir til þess að fyrirtækið telji ekki svara kostnaði að gera slíka markaðsrannsókn hér á landi. Lífsgæði í borgunum eru líka metin og þá er allt annað uppi á teningnum því þar er Tókýó í 33. sæti og London í 34. sæti og Moskva og Pétursborg komast ekki á blað. Borgir í norðvestanverðri Evrópu eru þar áberandi í efstu sætum og því næst ástralskar og borgir á Nýja-Sjálandi. Bandarískar borgir eru frekar neðarlega á fimmtíu borga listanum yfir lífsgæði.
Erlent Fréttir Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Sjá meira