Viðskipti innlent
Álagning og framlegð hækkar hjá Högum Félagið fer úr rekstrartapi í rekstrarhagnað. Framlegð í matvöru enn óviðunandi. Baugur hefur keypt hlut Stoða í Högum. Viðskipti innlent 1.11.2006 09:17
Grettir kaupir áfram í Avion Grettir fjárfestingafélag keypti í gær tæplega 23 prósenta hlut í Avion Group og hefur þar með eignast yfir 34 prósent hlutafjár í félaginu. Nemur kaupverðið 14,6 milljörðum króna. Fyrir mánuði átti Grettir ekki nema um eitt prósent í Avion. Viðskipti innlent 1.11.2006 09:17
Umfangsmesti viðskiptasamningurinn til þessa Hoyvikssamningurinn milli Íslands og Færeyja, sem tekur gildi í dag, er umfangsmesti viðskiptasamningur sem við höfum gert við aðra þjóð. „Samningurinn tekur til alls sem viðkemur Evrópska efnahagssvæðinu að viðbættu fullu frelsi varðandi landbúnaðarafurðir," segir Friðrik Jónsson, sendiráðunautur á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Viðskipti innlent 1.11.2006 09:17
Kreditkort lækkar gjöld á seljendur Kreditkort hf. hefur lækkað ábyrgðar- og þjónustugjöld vegna Mastercard kreditkorta úr 2,5 prósentum í 2,2 prósent. Þóknun þessi er háð veltu og getur því lækkað eftir því sem velta seljenda er meiri. Lægst getur hún farið í eitt prósent. Viðskipti innlent 1.11.2006 09:17
Ýsan sjaldan dýrari Meðalverð á fiski hækkaði um 3 krónur á kíló á fiskimörkuðum landsins í síðustu viku. Á mörkuðum seldust 1.421 tonn af fiski og var meðalverðið 161,88 krónur á kíló. Í vikunni á undan var kílóverðið mjög hátt og því ljóst að verðið er í hæstu hæðum. Viðskipti innlent 1.11.2006 09:17
Um 90% félaga skiluðu ekki inn reikningi á réttum tíma Hlutfallinu er öfugt farið í Danmörku, Noregi og Svíþjóð samkvæmt tölum frá Lánstrausti. Um 22% félaga hafa ekki skilað inn ársreikningi vegna reikningsársins 2004. Viðskipti innlent 1.11.2006 09:17
Áhætta fylgir frekari stóriðjuframkvæmdum Talsverð áhætta fylgir því að fara í frekari stóriðjuframkvæmdir áður en hagkerfið hefur náð að jafna sig eftir yfirstandandi framkvæmdir, eins og bent er á í nýrri Haustskýrslu hagdeildar Alþýðusambands Íslands. Viðskipti innlent 1.11.2006 09:17
Aldrei meiri væntingar Neytendur hafa aldrei haft meiri væntingar til efnahags- og atvinnuástandsins en nú. Að minnsta kosti ekki ef marka má væntingavísitölu Gallup sem aldrei hefur mælst hærri, ef leiðrétt er fyrir árstíðarsveiflu. Viðskipti innlent 1.11.2006 09:17
Avion Group kaupir í Atlas Avion Group hefur fyrir hönd dótturfélags síns Eimskips Atlas Canada, Inc. eignast 85,8 prósent hlutafjár í kanadíska frystigeymslufyrirtækinu Atlas Cold Storage Income Trust eða samtals 56,2 milljónir bréfa að nafnverði á genginu 7,5 kanadíska dali á hlut. Viðskipti innlent 31.10.2006 14:59
Verðbólga minnkaði innan OECD Verðbólga innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) mældist 2,1 prósent á ársgrundvelli í september samaborið við 3 prósent mánuðinn á undan. Verðbólgan er líkt og fyrri mánuði næstmest hér á landi. Viðskipti innlent 31.10.2006 11:00
Mikil velta á verðbréfamarkaði Innlendir aðilar keyptu erlend verðbréf fyrir 102 milljarða krónur á fyrstu níu mánuðum ársins. Þar er meirihluti þeirra eða um 64 milljarðar króna í hlutabréfum. Nettókaupin það sem af er ári eru mun meiri en á sama tímabili undanfarin ár, að sögn greiningardeildar Glitnis. Viðskipti innlent 31.10.2006 10:35
Promens gerir tilboð í norskt fyrirtæki Promens hf hyggst gera valfrjálst tilboð um kaup á öllu hlutafé norska plastfyrirtækisins Polimoon ASA, sem skráð er í Kauphöllinni í Osló. Tilboðið hljóðar upp á 32,50 norskar krónur á hlut, sem jafngildir heildarvirði hlutafjár Polimoon upp á 1.279 milljónir norskra króna eða 13,4 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 31.10.2006 10:29
Hagnaður Glitnis tæplega tvöfaldaðist Glitnir banki skilaði 8,8 milljarða króna hagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er 1,2 milljarða króna lækkun á milli fjórðunga. Til samanburðar nam hagnaður bankans á sama tíma fyrir ári 4,8 milljörðum króna. Hagnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins nemur 28,9 milljörðum króna sem er tæp tvöföldun á milli ára. Viðskipti innlent 31.10.2006 09:05
Fjármálaeftirlitið höfðar mál Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur ákveðið að höfða dómsmál til ógildingar úrskurði kærunefndar frá því í sumar varðandi Sparisjóð Hafnarfjarðar (SPH). Kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu að Samkeppniseftirlitinu hefði verið óheimilt að takmarka atkvæðisrétt ákveðinna einstaklinga í Sparisjóði Hafnarfjarðar við fimm prósent. Viðskipti innlent 31.10.2006 06:30
Afkoman undir væntingum Stoðtækjafyrirtækið Össur skilaði 5,7 milljóna dala hagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til 387 milljóna íslenskra króna á tímabilinu samanborið við rúmar 274 milljónir króna í hagnað á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 31.10.2006 06:00
Afkoma Össurar undir væntingum Stoðtækjafyrirtækið Össur skilaði 5,7 milljóna dala hagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til 387 milljóna íslenskra króna á tímabilinu samanborið við rúmar 274 milljónir króna í hagnað á sama tíma í fyrra. Afkoman er rétt undir væntingum stjórnenda fyrirtækisins. Viðskipti innlent 30.10.2006 15:11
FME höfðar dómsmál vegna SPH Stjórn Fjármálaeftirlitsins (FME) hefur ákveðið að höfða dómsmál til að ógilda úrskurði kærunefndar frá mánaðamótum júlí og ágúst á þessu ári þess efnis að eftirlitinu hafi verið óheimilt að takmarka atkvæðisrétt ákveðinna einstaklinga í Sparisjóði Hafnarfjarðar við 5 prósent. Forstjóri FME segir málið reyna á grundvallarþætti hlutverk og getu FME til að stuðla að traustri fjármálastarfsemi hér á landi. Viðskipti innlent 30.10.2006 13:02
Spá óbreyttum stýrivöxtum Seðlabankinn ákveður stýrivexti á fimmtudag samhliða útgáfu Peningamála. Greiningardeild Glitnis reiknað með að bankinn haldi vöxtum sínum óbreyttum en útilokar ekki 25 punkta hækkun. Stýrivextir Seðlabankans standa í 14 prósentum í dag. Viðskipti innlent 30.10.2006 11:03
Avion Group selur eignir fyrir 34 milljarða Avion Group hefur samþykkt tilboð frá hópi fjárfesta upp á 450 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði 30,6 milljarða íslenskra króna, í XL Leisure Group, leiguflugs- og ferðaþjónustuhluta Avion, auk 51 prósents hluta í Avion Aircraft Trading fyrir 51 milljónir dala eða 3,5 milljarða krónur. Viðskipti innlent 30.10.2006 10:30
Hagar töpuðu 121 milljón Verslunarfyrirtækið Hagar, móðurfélag fjölda verslana, m.a. Hagkaupa, Bónuss, 10-11, tapaði 121 milljón króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er engu að síður betri afkoma en á sama tíma í fyrra en þá tapaði félagið 708 milljónum króna. Viðskipti innlent 30.10.2006 10:04
Hagnaður NIB minnkar Norræni fjárfestingabankinn (NIB) skilaði tæplega 90 milljóna evra hagnaði á fyrstu átta mánuðum ársins. Þetta jafngildir 7,7 milljörðum íslenskra króna, sem er 27 milljónum evrum eða 2,3 milljörðum krónum minna en á sama tíma í fyrra. Lánahlutfall til Íslands var hátt á tímabilinu. Viðskipti innlent 27.10.2006 10:38
Besti fjórðungur Kaupþings Kaupþing skilaði 67,2 milljarða króna hagnaði á fyrstu níu mánuðum ársins. Þar af nam hagnaðurinn á þriðja fjórðungi ársins 35,4 milljörðum króna, sem er 27,5 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Þetta er besti ársfjórðungurinn í sögu bankans frá upphafi. Viðskipti innlent 27.10.2006 09:39
Peningaskápurinn ... Franski auðkýfingurinn Bernard Arnault og belgíski milljarðamæringurinn Albert Frere eru sagðir íhuga að stofna fjárfestingasjóð sem mun meðal annars kaupa framleiðslu á Aston Martin-bílum frá bandaríska bílaframleiðandanum Ford. Viðskipti innlent 27.10.2006 00:01
Landsbankinn selur í Straumi-Burðarás og Gretti Landsbanki Íslands hefur selt 6,76 prósenta hlut sinn í Straumi-Burðarási Fjárfestingabanka hf til fjárfestingafélagsins Grettis hf. á genginu 17,3. Virði hlutanna nemur rétt rúmum 12 milljörðum króna. Þá keypti Landsbankinn 9,9 prósenta hlut í TM af Gretti hf. á genginu 41. Landsbankinn seldi sömuleiðis allan hlut sinn í Gretti ehf. eða alls 35,39 prósent. Viðskipti innlent 26.10.2006 15:25
Forstjóraskipti hjá Kögun Breytingar hafa verið gerðar á yfirstjórn Kögunar hf., dótturfélags Dagbrúnar. Gunnlaugur M. Sigmundsson hefur látið af störfum sem forstjóri Kögunar og hefur Bjarni Birgisson tekið við starfi hans. Þá hefur Jóhann Þór Jónsson verið ráðinn fjármálastjóri Kögunar hf. Viðskipti innlent 26.10.2006 15:15
Minni hagnaður á fjórðungnum Hagnaður Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka á þriðja ársfjórðungi minnkaði talsvert á milli ára. Bankinn skilaði 1.549 milljóna króna hagnaði á þriðja ársfjórðungi en 6.473 milljónum króna á sama tíma í fyrra og nemur samdrátturinn 76 prósentum á milli ára. Greiningardeild KB banka spáði því að bankinn myndi skila 5 milljörðum króna á tímabilinu. Viðskipti innlent 26.10.2006 10:05
Afkoma Bakkavarar yfir væntingum Bakkavör Group hf. skilaði 4,6 milljarða króna eða 34,9 milljóna punda hagnaði á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta er 68 prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. Þá nam hagnaður félagsins 2 milljörðum króna eða 15 milljón pundum á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem er 70 prósenta aukning á milli ára. Hagnaðurinn á þriðja ársfjórðungi er 3 milljón pundum meira en greiningardeild KB banka hafði spáð. Viðskipti innlent 26.10.2006 09:45
Hagnaður Landsbankans eykst um 16 prósent Hagnaður Landsbanka Íslands nam 26,2 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta er 16 prósenta aukning frá síðasta ári. Bankastjórar Landsbanks segja afkomuna góða og hafi aðstæður á sviði erlendrar fjármögnunar batnað eftir ákveðinn óróa í byrjun árs. Þá nam hagnaður bankans á þriðja ársfjórðungi rúmum 5,7 milljörðum króna sem er 2,1 milljarði minna en greiningardeild KB banka reiknaði með. Viðskipti innlent 26.10.2006 09:20
Peningaskápurinn ... Í Kaupmannahöfn hafa borgaryfirvöld tekið tæknina í sína notkun og samkeyra um þessar mundir loftmyndir af borginni og fasteignaskrá með það fyrir augum að finna viðbyggingar sem reistar hafa verið í óleyfi, eða án þess að tilkynnt væri um það. Viðskipti innlent 26.10.2006 00:01
Ný skrifstofa Eimskips á Ítalíu Eimskip opnar nýja skrifstofu á Ítalíu 1. nóvember næstkomandi. Starfsemi Eimskips á Ítalíu hefur til þessa farið fram í gegnum umboðsaðila félagsins Thos. Carr í Mílan en frá og með opnun nýju skrifstofunnar munu starfsmenn þess félags heyra undir Evrópusvið Eimskips. Viðskipti innlent 25.10.2006 11:36