Lífið

Nýtt tímarit um heimili og mat

„Íslendingar hafa alltaf hugsað vel um heimili sín og þeim þykir mörgum gaman að elda,“ segir innanhúshönnuðurinn Halla Bára Gestsdóttir en hún og eiginmaður hennar, Gunnar Sverrisson ljósmyndari, vinna nú að stofnun nýs veftímarits um heimili og mat.

Lífið

Best og verst klæddu á Met-ballinu

Rauða dreglinum var rúllað út í New York í vikunni er hið árlega galakvöld Metropolitan-safnsins fór fram. Þangað sækir fræga fólkið og keppist við að skarta sínu fegursta með misjöfnum árangri. Best klæddu konur kvöldsins að mati Fréttablaðsins voru meðal annars leikkonan unga Camilla Belle, fyrirsætan Karolina Kurkova og poppstjarnan Rihanna. Þær sem þóttu hins vegar skjóta vel yfir markið í kjólavali voru Kristen Stewart, sem nýlega hlaut titilinn best klædda kona Bretlands og tískufyrirmyndin Chloe Sevigny. Stundum er vert að muna tískuregluna "minna er meira“ til að koma í veg fyrir tískuslys.

Tíska og hönnun

Keypti Galtarvita

Tónleikar til styrktar Galtarvita verða haldnir í Gamla bíói í kvöld og munu sveitir á borð við Tilbury og Hjaltalín stíga á svið um kvöldið. Allur ágóði tónleikanna rennur í uppbyggingu á listasmiðju á staðnum.

Lífið

Greta Salóme frumsýnir kjólinn í dag

Fatnaðurinn sem Eurovisionfararnir Greta Salómeog Jónsi klæðast í Aserbaidsjan verður opinberaður í beinni útsendingu á aðdáendasíðu Gretu Salóme á Facebook klukkan 16 í dag. Þær Rebekka Ingimundardóttir og Elma Bjarney Guðmundsdóttir eiga heiðurinn af klæðaburði íslenska hópsins í ár og bíða margir spenntir eftir því hverju hann mun klæðast á sviðinu í Bakú. Vinir Sjonna, sem kepptu í Eurovision í fyrra, ætla að einnig að taka lagið og koma fólki í Eurovision-gírinn.

Lífið

Tekur sig ekki of hátíðlega

Það leikur enginn vafi á því að Sharon Osbourne tekur sjálfa sig ekki of hátíðlega þrátt fyrir að lifa og hrærast í Hollywood. Hún var mynduð afslöppuð á ferðinni í gær í Los Angeles í Kaliforníu í gær í svörtu pilsi, og kamellitaðri preysu. Þá stillti hún sér upp ásamt dóttur sinni, Kelly, á rauða dreglinum í svartri dragt og ljósbláum topp. Takið eftir hvað hún er sæt.

Lífið

Glamúr í gær - hversdagsleiki í dag

Leikkonan Jessica Biel var mynduð á röltinu um Soho hverfið í New York í gær með vinkonu glæsileg eins og ávallt. Hún var glæsileg og hversdagslega klædd í svörtum leðurstígvélum. Þá var leikkonan alls ekki síðri með unnusta sínum Justin Timberlake á rauða dreglinum í síðkjól síðustu helgi. Endalausar getgátur eru uppi um brúðkaupið þeirra en slúðurheimurinn vestan hafs heldur því fram að parið ætli að gifta sig á Ítaliu.

Lífið

Vilja sýna ferðamönnum næturlífið

„Við höfum tekið eftir aukinni eftirspurn eftir þjónustu á borð við þessa frá útlendingum niðri í bæ,“ segir Darri MacMahon, annar eigandi hins nýstofnaða fyrirtækis Reykjavík by Night.

Lífið

Fagnar vorinu í Eldborginni

„Við ætlum að fagna vorinu,“ segir Raggi Bjarna sem heldur Vorkvöld í Reykjavík í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn 12. maí. „Harpan er staðurinn fyrir svona tónleika. Þarna er líka hægt að horfa á Akrafjallið og Esjuna.“

Lífið

Stefna þvert yfir Grænlandsjökul

Vilborg Anna Gissurardóttir og Valdimar Halldórsson eru lögð af stað í mikla ævintýraferð á Grænlandi þar sem förinni er heitið um 540 km leið yfir Grænlandsjökul. Áætlaður leiðangurstími er um fjórar vikur.

Lífið

Einu sinni ónytjungur

Gamanleikarinn Jason Segel fer með eitt af aðalhlutverkunum í kvikmyndinni Jeff Who Lives at Home sem leikstýrt er af bræðrunum Jay and Mark Duplass. Segel segist eiga margt sameiginlegt með persónu sinni, ónytjungnum Jeff.

Lífið

Börn eru blessun

Jennifer Lopez á tvíburana Max og Emme en segist vel geta hugsað sér að eignast fleiri börn í framtíðinni.

Lífið

Funheit lína Fendi

Ef myndirnar eru skoðaðar af haustlínu tískuhússins Fendi má sjá yfirhönnuðinn Karl Lagerfeld mæta á sviðið í lok sýningar....

Tíska og hönnun

Bjargaði mannslífi

Leikkonan Mila Kunis kom manni til aðstoðar á laugardag þegar hann fékk flogakast. Maðurinn var við störf á heimili leikkonunnar þegar atvikið átti sér stað.

Lífið

Útidúr til Kanada

Kammerpoppsveitin Útidúr er á leiðinni í tónleikaferð til Kanada. Þar spilar hún ásamt þarlendu hljómsveitinni Brasstronaut. Tónleikaferðin hefst 29. maí í Bresku-Kólumbíu og lýkur 22. júní í Montreal. Alls verða tónleikarnir tuttugu talsins hjá þessari tólf manna hljómsveit.

Lífið

Avengers sló aðsóknarmet

Ofurhetjumyndin The Avengers er tekjuhæsta opnunarmynd allra tíma í Norður-Ameríku. Hún halaði inn 200 milljónir dollara, eða um 25 milljarða króna. Fyrra metið átti Harry Potter and the Deathly Hallows Part 2 sem þénaði 169 milljónir dollara síðasta sumar. Á eftir henni koma The Dark Knight og Spider-Man 3 en báðar ofurhetjur þeirra mynda, Batman og Spider-Man snúa aftur í nýjum myndum í sumar.

Lífið

Óttast farsímaleysi

Nomophobia kallast það er fólk hræðist að vera úr símasambandi við aðra og samkvæmt nýrri rannsókn eru um 66 prósent Breta haldnir þessari fælni.

Lífið

Kasólétt sjónvarpsstjarna

How I Met Your Mother leikkonan, Alyson Hannigan var mynduð kasólétt fyrir utan spítala í vikunni en nú styttist í fæðingu barns hennar og eiginmannsins, Alexis Denisof Eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni er Alyson kasólétt.

Lífið

Geislandi mamma Beyonce

Beyonce Knowles og unnusti hennar Jay-Z mættu í útgáfuhóf hjá Ericu Reid höfund bókarinnar The Thriving Child í gær. Eins og sjá má í myndasafni geislaði af nýbökuðum foreldrunum. Þá má einnig sjá X Factor dómarann L.A. Reid en hann er eiginmaður höfundarins Ericu.

Lífið

Mikil aðsókn á Skjaldborg

"Það er greinilegt að hátíðin er að festa sig í sessi,“ segir Tinna Ottesen, einn aðstandenda heimildarmyndahátíðarinnar Skjaldborgar sem fer fram dagana 25.-28. maí. Þetta er í sjöunda sinn sem kvikmyndaáhugamenn flykkjast til Patreksfjarðar um hvítasunnuhelgina. Hátíðinni hefur borist metfjöldi umsókna í ár en dagskráin sjálf skýrist á næstu dögum. Tinna segist fagna auknum áhuga á heimildarmyndagerð á Íslandi.

Menning

Jennifer Love Hewitt sumarleg og sæt

Leikkonan, Jennifer Love Hewitt var brosandi og hress þegar ljósmyndarar smelltu nokkrum myndum af henni í New York í gær. Jennifer var sumarleg með bera leggi í háum hælum, fagurbláu pilsi og með hnút í hári.

Lífið

Síðustu dagar Nasa

Eins og kunnugt er styttist í að tónleikastaðurinn vinsæli Nasa við Austurvöll loki dyrum sínum í hinsta sinn. Tónlistarfólk landsins kveður staðinn flest með trega og hafa Gusgus-liðar lýst sambandi sínu við Nasa sem ástarsambandi. Gusgus mun halda tvenna kveðjutónleika á staðnum um næstu helgi og þá mun Skálmöld spila þar á miðvikudaginn kemur.

Lífið

Sofia Vergara á lausu

Leikkonan Sofia Vergara, 39 ára, er hætt með unnusta sínum til tveggja ára, Nick Loeb. Slúðurheimurinn vestan hafs heldur því fram að parið hafi rifist stöðugt og hætt saman annan hvern dag...

Lífið

Vilhjálmur og Kate kíktu út

Vilhjálmur prins og Kate Middleton sáust yfirgefa veitingarstað í London í gærkvöldi en þau eyddu kvöldinu með góðum vinum. Að vanda var Kate glæsileg í alla staði og að þessu sinni klæddist hún hvítu sem ætlar að verða vinsæll litur þetta sumarið.

Lífið

Svalur Johnny Depp

Leikarinn Johnny Depp gekk hröðum skrefum ásamt fylgdarliði með kúrekahatt og sólgleraugu eins og sjá má á myndunum þegar hann yfirgaf sjónvarpsstöð í Hollywood...

Lífið

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ekki vantar áhugann og troðfullt var af fólki á ósköp venjulegri tíusýningu á The Raid: Redemption um síðustu helgi, og var meira að segja gömlum eldhússtól laumað inn í sal til þess að einn til viðbótar gæti notið ærslagangsins.

Gagnrýni

Jakob Frímann endurkjörinn

Jakob Frímann Magnússon hefur verið endurkjörinn formaður Félags tónskálda og textahöfunda, FTT, til næstu tveggja ára. Þetta var ákveðið á aðalfundi félagsins sem var haldinn í Hörpu.

Lífið