Erlent

Ótti við fuglaflensu í austur Tyrklandi

Óttaslegnir foreldrar í Tyrklandi flykkjast nú með börn sín á sjúkrahús vegna ótta við að þau hafi sýkst af fuglaflensu. Þrjú börn úr sömu fjölskyldu í Austur-Tyrklandi hafa látist af völdum fuglaflensu og fjórir eru sagðir þungt haldnir. Þetta eru fyrstu dauðsföllin af völdum sjúkdómsins utan Asíu.

Erlent

NIB má fjármagna verkefni í Úkraínu

Norræni fjárfestingabankinn (NIB) hefur skrifað undir samstarfssamning við Úkraínu. Eftir að samningurinn hefur verið staðfestur mun NIB, sem alþjóðleg fjármálastofnun, geta fjármagnað verkefni í Úkraínu.

Erlent

Charles Kennedy hvattur til afsagnar vegna drykkjuvanda

Einn helsti ráðgjafi Charles Kennedy, leiðtoga Frjálslyndra demókrata í Bretlandi, hefur hótað að segja af sér ef Kennedy hættir ekki sem leiðtogi flokksins. Kennedy viðurkenndi í gær að hann ætti við áfengisvanda að stríða en ætlaði ekki að víkja þrátt fyrir háværar þar um.

Erlent

Nístandi kuldi í Kína

Vetur konungur hefur heldur betur látið til sín taka í norðvesturhluta Kína að undanförnu. Mikil snjókoma og nístandi kuldi herjar á íbúa Xinjiang-héraðs og hefur frost mælst niður í fjörutíu og þrjár gráður. Þá er sums staðar sextíu sentímetra jafnfallinn snjór.

Erlent

Líðan Sharons hefur versnað

Líðan Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur versnað til mikilla muna í morgun. Þórir Guðmundsson, fréttamaður NFS, er nýlentur í Jerúsalem þar sem hann fylgist grannt með þróun mála. Hann segir allt í mikilli óvissu um líðan Sharons.

Erlent

Sharon aftur undir hnífinn

Nú fyrir nokkrum mínútum var byrjað að undirbúa aðgerð á Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, eftir að hann gekkst undir heilaskönnun, að því er Reuters-fréttastofan greinir frá, en ekki liggja fyrir nánari upplýsingar að svo stöddu.

Erlent

Þrettán látnir í óeirðum í fangelsi í Hondúras

Þrettán fangar létust í óeirðum í hámarksöryggisfangelsi í Hondúras. Upp úr sauð eftir að til átaka kom á milli tveggja hópa fanga og skiptust þeir á skotum með fyrrgreindum afleiðingum. Ekki er ljóst hvernig fangarnir komust yfir byssur. Tekist hefur að ná tökum á ástandinu en uppþot sem þessi eru tíð í fangeslum í Hondúras.

Erlent

Mikið fannfergi í Japan

Tvær aldraðar konur létust í Japan þegar hús þeirra gaf sig undan snjóþunga í borginni Hakusan, 300 kílómetra norðvestur af Tókýó. Eiginmaður annarrrar konunnar slapp lítið meiddur frá slysinu. Gríðarlega ofankoma hefur verið í Hakusan að undanförnu og var um eins og hálfs metra jafnfallinn snjór í borginni í morgun.

Erlent

Námuverkamaður settur í súrefnismeðferð

Eini verkamaðurinn sem lifði af þegar sprenging varð í kolanámu í Vestur-Virginíu fyrr í vikunni hefur verið fluttur á sjúkrahús í Pittsburgh í Pennsylvaníu til súrefnismeðferðar. Læknar segja ástand Randals McCloy yngri enn alvarlegt en hann er í dái og hugsanlegt er að hann hafi hlotið heilaskaða.

Erlent

Tuttugu látnir eftir að gistihús hrundi í Mekka

Að minnsta kosti tuttugu biðu bana og tæplega sextíu eru slasaðir eftir að átta hæða gistihús hrundi til grunna í Mekka í Sádi-Arabíu í gær. Byggingin var nánast tóm þegar slysið varð en margir voru á ferðinni nálægt gistihúsinu og urðu því undir brakinu. Um eitt þúsund björgunarsveitarmenn leita nú að fólki í rústum byggingarinnar.

Erlent

Ítölskum gíslum sleppt í Jemen

Fimm ítölskum ferðamönnum sem rænt var í Jemen á nýársdag var sleppt í morgun, eftir því sem yfirvöld í Jemen greina frá. Það voru menn af tilteknum ættbálki í landinu sem rændu fólkinu en þeir kröfðust þess að ættingjum sínum yrði sleppt úr fangelsi.

Erlent

Sharon enn haldið sofandi í öndunarvél

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, er enn haldið sofandi í öndunarvél eftir heilablóðfallið sem hann fékk í fyrradag. Sharon gekkst undir sjö tíma langa aðgerð vegna heilablæðingarinnar í fyrrinótt og segja læknar við Hadassah-sjúkrahúsið í Jerúsalem, þar sem forsætisráðherrann dvelur, að honum verði haldið sofandi næstu tvo sólarhringana.

Erlent

Ein glæsilegasta íshátíð í heimi

Í yfir tvo áratugi hefur kínverska borgin Harbin boðið gestum og gangandi upp á eina glæsilegustu íshátíð í heimi. Þúsundir manna söfnuðust saman þegar hátíðin var sett í dag í tuttugasta og annað sinn, en þar er að finna einstaklega fallegar byggingar gerðar úr ís.

Erlent

Námuverkamaðurinn sem bjargaðist liggur enn í dái

Eini námuverkamaðurinn sem bjargaðist eftir að hafa lokast inn í Sago kolanámunni í Virginíu fylki fyrr í vikunni, liggur enn í dái. Læknar óttast að maðurinn hafi hlotið heilaskaða vegna slyssins. Alls fórust 12 námuverkamenn þegar sprenging varð í námunni.

Erlent

Svarstýnir á bata

Læknar Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, eru svartsýnir á að hann nái bata eftir heilablóðfallið sem hann fékk í gærkvöldi. Talsmaður Hamas-samtakanna segir gott að losna við Sharon, einn versta og grimmasta leiðtoga heimsins. Ehud Olmert, aðstoðarforsætisráðherra landsins, hefur tekið við völdum.

Erlent

Fjármálaráðherra Noregs hvetur norska neytendur til að sniðganga vörur frá Ísrael

Fjármálaráðherra Noregs, Kristin Halvorsen, hefur hvatt norska neytendur til að sniðganga vörur frá Ísrael. Hún segir að með því geti fólk tjáð óánægju sína með meðferð Ísraela á Palestínumönnum. Flokkur hennar, Sósíalistik venstreparti, fer af stað með herferð til stuðnings Palestínumönnum í næsta mánuði og herferðin fær fullan stuðning fjármálaráðherra.

Erlent

Grunaður stríðsglæpamaður handtekinn í Bosníu-Herzegovínu

Dragomir Abazovic, sem grunaður er um stríðsglæpi í Bosníustríðinu, var handtekinn í gær á heimili sínu í Rogatica í Bosníu-Herzegovínu. Friðargæsluliðar Evrópusambandsins réðust til atlögu á heimili hans og særðu hann, eiginkonu hans og son þeirra. Eiginkona hans lést og bæði Abazovic og sonur hans eru særðir.

Erlent

Enginn slasaðist í sprengjuárás sem gerð var á rútu í Kosovo

Enginn slasaðist þegar sprengju var kastað á rútu sem var á ferð í Pristina í Kosovo í gærkvöldi. Rútan er mikið skemmd og þykir mildi að enginn þeirra 55 farþega sem voru í rútunni, hafi slasast. Þetta er önnur sprengjuárásin á innan við mánaðartímabili sem er gerð á rútu á þessari leið, frá bænum Dragas til Belgrad, höfuðborgar Serbíu.

Erlent

Á annað hundrað fallnir í árásum

Á annað hundrað manns hafa farist og meira en 200 særst í ofbeldisverkum í Írak það sem af er degi. 225 hafa látist af völdum árása frá áramótum og nær 300 slasast. Vikan sem nú er að líða er því orðin ein sú blóðugasta frá því innrásin í Írak hófst í mars 2003.

Erlent

Segja örn hafa drepið tvö þúsund hreindýr

Norskir hreindýrabændur fengu í fyrra greiddar bætur frá ríkinu vegna tvö þúsund dýra sem þeir segja að örn hafi drepið. Frá þessu er greint í norska blaðinu Verdens Gang. Alls fengu þeir 250 milljónir króna í bætur vegna 11.400 hreindýra sem annaðhvort örninn eða önnur rándýr eiga að hafa drepið.

Erlent

Læknar svartsýnir á bata Sharons

Ariel Sharon liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Ísrael. Hann fékk heilablóðfall í gærkvöldi og læknar eru svartsýnir á bata. Ehud Olmert aðstoðarforsætisráðherra hefur tekið við stjórn landsins.

Erlent

Yfir fjörtíu manns fallnir í írak í dag

Að minnsta kosti fjörtíu manns hafa fallið í sprengjuárás í borginni Karbala í sunnanverðu Írak í morgun og tala látinna gæti enn átt eftir að hækka. Þá eru um sextíu særðir. Maður með sprengiefni bundin um sig sprengdi sig í loft upp í mannþröng nærri einu af helstu helgiskrínum sjíamúslima. Sprengjuárásin í morgun er önnur árásin á jafn mörgum dögum. Í gær særðust þrír í bílsprengjuárás, sú var fyrsta árásin sinnar tegundar í Karbala í rúmlega ár.

Erlent

Sharon liggur þungt haldinn

Ariel Sharon liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Ísrael. Hann fékk heilablóðfall í gærkvöldi og læknar eru svartsýnir á bata. Ehud Olmert aðstoðarforsætisráðherra hefur tekið við stjórn landsins

Erlent

Í það minnsta 80 fórust

Í það minnsta 31 fórst og 30 særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Ramadi í Írak í morgun. Karlmaður sprengdi sig og viðstadda þá í loft upp fyrir framan ráðningarstöð hers og lögreglu. Þetta er önnur mannskæða árásin í Írak í morgun.

Erlent

Dæmd fyrir að bjóða flensusprautur án leyfis

Hjúkrunarkona í Minnesota-ríki í Bandaríkjunum hefur verið dæmd í níu mánaða fangelsi fyrir að bjóða flensusprautur án leyfis á háskólalóð. Hún sprautaði um fjörtíu manns með útvötnuðu bóluefni sem ekkert gagn var í. Hún drýgði bóluefnið með saltvatni og hafði heilar 36 þúsund krónur upp úr krafsinu.

Erlent

Lík þess síðasta sem var saknað fundið

Björgunarmenn hafa fundið lík síðustu manneskjunnar, sem vitað er til þess að hafi verið saknað, í rústum skautahallar sem féll saman á mánudag í Þýskalandi. Alls létust því 15 manns í slysinu, þar af tólf börn.

Erlent