Erlent
Fékk stálrör í gegnum sig miðjan og lifið það af Kínverskur byggingaverkamaður lifði það af að fá fjögurra metra langt stálrör í gegnum sig miðjan við framkvæmdir á dögunum. Erfiðlega gekk að koma honum í sjúkrabíl og í hendur lækna. Erlent 27.6.2006 12:45
Bush gagnrýnir New York Times Bush Bandaríkjaforseti ganrýndi í gær dagblaðið New York Times harðlega fyrir að birta í síðustu viku frétt um að bandaríska leyniþjónsutan hefði fengið aðgang að alþjóðlegum gagnabanka um bankaviðskipti. Erlent 27.6.2006 12:45
Þrjú tonn af kókaíni gerð upptæk í Kólumbíu Lögreglan í Kólumbíu sýndi fjölmiðlum í gær tæplega þrjú tonn af kókaíni sem hún gerði upptæk á dögunum. Talið er að flytja hafi átt allan farminn til Evrópu. Kókaínið fannst grafið í jörðu nærri bænum Necocli í norðurhluta Kólumbíu en enginn hefur verið handtekinn vegna málsins enn sem komið er. Erlent 27.6.2006 10:09
Forseti Austur-Tímor fundar með ráðherrum landsins Gusmao, forseti Austur-Tímor, átt í morgun fund með helstu ráðherrum í ríkisstjórn landsins. Þar var rædd skipan bráðabirgðastjórnar en Alkatiri, forsætisráðherra, sagði af sér í gær. Erlent 27.6.2006 10:03
Skæruliðar láta friðargæsluliða SÞ lausa Skæruliðar í Afríkuríkinu Kongó létu í morgun lausa tvo nepalska friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna sem þeir höfðu haft í haldi í mánuð. Fimm friðargæsluliðar eru þó enn í haldi skæruliðanna. Mennirnir sem fengu frelsi í morgun eru við ágæta heilsu. Erlent 27.6.2006 10:00
Krefjast þess að Guantanamo verði lokað Hópur mótmælenda kom saman í gær fyrir utan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York til að krefjast þess að Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu verði lokað. Erlent 27.6.2006 10:00
Evrópublaðið fundar í dag vegna skýrslu um fangaflugs CIA Evrópuráðið kemur saman til fundar í dag til að ræða skýrslu rannsóknarnefndar ráðsins um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar. Þar verður meðal annars hlýtt á vitnisburð manna sem segjast hafa sætt pyntingum þegar þeir voru í haldi Bandaríkjamanna. Erlent 27.6.2006 09:45
3 tonn af kókaíni gerð upptæk Lögreglan í Kólumbíu sýndi fjölmiðlum í gær tæplega þrjú tonn af kókaíni sem hún gerði upptæk á dögunum. Talið er að flytja hafi átt allan farminn til Evrópu. Erlent 27.6.2006 08:45
Ekki víst að Chirac óski eftir endurkjöri Jacques Chirac tilkynnir ekki fyrr en á næsta ári hvort hann ætli aftur að bjóða sig fram til forseta næsta vor. Þetta kom fram í sjónvarpsviðtali í gær. Erlent 27.6.2006 08:39
Fjörtíu féllu í sprengjuárás Að minnsta kosti fjörutíu féllu og hátt í níutíu særðust þegar spregjur sprungu á fjölförnum mörkuðum í tveimur borgum Íraks í gærkvöldi. Mannskæðari árásin var gerð í borginni Bakúba, norð-austur af Bagdad, þar sem sprengja hafði verið fest við reiðhjól. Borgin er eitt helsta vígi súnní-múslima. Erlent 27.6.2006 08:15
Olmert fer ekki að kröfum mannræningja Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísrael, neitaði í morgun að láta palestínska fanga lausa í skiptum fyrir ísraelska hermanninn sem herskáir Palestínumenn rændu í fyrradag. Erlent 27.6.2006 08:00
Raunverulegt sprengiefni Sænska lögreglan hefur staðfest að efnið sem bundið var um mitti grátandi Norðmanns í Stokkhólmi á sunnudaginn var virkt sprengiefni. Málið þykir allt hið kynlegasta og var Norðmaðurinn, sem er á þrítugsaldri, settur í geðrannsókn eftir að sprengjubeltið var leyst af honum. Erlent 27.6.2006 07:30
G-8 gagnrýni skort á lýðræði Mikhaíl Kasjanov, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, hvetur leiðtoga G-8 ríkjanna til að gagnrýna rússnesk stjórnvöld fyrir þá þróun í átt frá lýðræði sem hann segir hafa átt sér stað. Erlent 27.6.2006 07:00
Óvopnaður Íraki myrtur Tveir hermenn hafa verið ákærðir vegna morðs á óvopnuðum Íraka nálægt borginni Ramadi í febrúar. Þetta upplýsti bandaríski herinn um helgina. Erlent 27.6.2006 07:00
Gróðurhúsaáhrifin af mannavöldum Bandaríska vísindaakademían kynnti fyrir skemmstu niðurstöður viðamikillar rannsóknar sem Bandaríkjaþing hafði óskað eftir, sem sýna að hitinn á jörðinni hefur ekki verið hærri í að minnsta kosti tvö þúsund ár. Hlýnunin undanfarna áratugi á sér engin söguleg fordæmi seinasta árþúsund, að því er fram kemur í niðurstöðunum. Erlent 27.6.2006 06:45
Pyntingar niðurlægja alla sem láta þær viðgangast Evrópusambandið hvatti í gær öll ríki til þess að undirrita alþjóðasamning gegn pyntingum. Í yfirlýsingu Evrópusambandsins segir að pyntingar séu ekki aðeins "grimmilegar, ómannúðlegar og niðurlægjandi" fyrir hvern þann sem fyrir þeim verður, heldur einnig fyrir alla sem fremja slíkan verknað og líka fyrir þau samfélög sem "láta sér lynda slíka óhæfu." Erlent 27.6.2006 06:15
Krefst rannsóknar á morði Jan Eliasson, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hvetur stjórnvöld í Sómalíu til að rannsaka með hraði morðið á sænska myndatökumanninum Martin Adler. Utanríkisráðherrann fordæmdi morðið og sagði að erlent fjölmiðlafólk væri augu alþjóðasamfélagsins í landinu. Erlent 27.6.2006 05:45
Syngur ekki góða spænsku George W. Bush Bandaríkjaforseti kann ekki nóg í spænsku, að sögn talsmanns hans í Hvíta húsinu. Fyrir vikið getur hann ekki sungið spænsku útgáfuna af bandaríska þjóðsöngnum, sem er kölluð "Nuestro himno." "Forsetinn talar spænsku, en ekki nógu vel," sagði Scott McClellan, talsmaður forsetans. Erlent 27.6.2006 05:30
Hafna nýrri stjórnarskrá Tillögu fyrrverandi ríkisstjórnar Ítalíu að víðtækum stjórnarskrárbreytingum var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór í gær og fyrradag. Erlent 27.6.2006 05:15
Dönsuðu af fögnuði Forsætisráðherrann Alkatiri lét undan þrýstingi og sagði af sér. Nóbelsverðlaunahafinn Jose Ramos-Horta segir stutt í nýja ríkisstjórn. Erlent 27.6.2006 05:00
Útilokar með öllu að semja Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, útilokar allar samningaviðræður við herskáa Palestínumenn sem hafa ungan ísraelskan hermann í haldi sínu. Erlent 27.6.2006 04:45
Koma upp nýju eldflaugavarnarkerfi Yfirvöld í Japan og Bandaríkjunum hafa komið sér saman um að setja upp PAC-3 eldflaugar á herstöð Bandaríkjanna á eyjunni Okinawa í Japan. Ákvörðunin var tekin í ljósi meintra tilrauna Norður-Kóreumanna til að skjóta á loft eldflaug í tilraunaskyni. Erlent 27.6.2006 04:15
Reynt að smygla hreisturdýrum frá Taílandi 245 hreisturdýr fundust í dag í flugfarmi á alþjóðaflugvellinum í Bangkok í Taílandi. Dýrin eru í útrýmingarhættu en eru álitin hollt og gott sælgæti í Kína og í Víetnam og afurðir úr þeim þykja hafa lækningamátt. Erlent 26.6.2006 22:00
Mona Lisa fær rödd Síðustu fimm hundruð árin hefur Móna Lísa brosað sínu leyndardómsfulla brosi án þess að mæla orð af munni. Þangað til nú. Erlent 26.6.2006 21:00
Vísuðu ólöglegum Kínverjum á brott Yfirvöld í Úkraínu vísuðu í dag 87 Kínverjum úr landi er upp komst um tilraun þeirra til að fara ólöglega yfir landamærin við Ungverjaland og Slóvakíu á leið sinni til Ítalíu. Ítalía er lokaáfangastaður margra ólöglegra innflytjenda frá Kína. Erlent 26.6.2006 20:30
Sprengjan var ekta Norðmaðurinn, sem fannst gyrtur sprengjubelti á bílastæði í einu af úthverfum Stokkhólms í gær, kom til Svíþjóðar fyrir helgi til að innheimta fíkniefnaskuld. Erlent 26.6.2006 19:15
Skógarbjörninn skotinn Björninn Bruno, sem þvælst hefur um fjallahéruð Bæjaralands undanfarnar vikur, var felldur í dag. Erlent 26.6.2006 19:00
Skæruliðarnir setja fram kröfur Ísraelsk stjórnvöld undirbúa víðtækar hernaðaraðgerðir gegn palestínskum skæruliðum sem í gær tóku ísraelskan hermann í gíslingu. Þeir segja að engar upplýsingar verði gefnar um afdrif hans fyrr en palestínskar konur og börn verði látin laus úr fangelsum Ísraela Erlent 26.6.2006 18:45
Flóð og aurskriður urðu 18 til viðbótar að bana í Kína Ekkert lát er á miklum rigningum og flóðum í Kína. Í gær létust minnst átján manns og átján til viðbótar er saknað eftir að 250 millimetra úrkomu á einum degi, sem olli skyndiflóðum og aurskriðum sem ruddu niður húsum og öðrum mannvirkjum. Erlent 26.6.2006 18:00
Brenndu 60 tonn af eiturlyfjum Í tilefni af alþjóðadeginum gegn eiturlyfjum sýndu yfirvöld í Íran afstöðu sína gegn eiturlyfjum í verki með því að brenna rúmlega 60 tonn af eiturlyfjum á almannafæri í Tehran í dag. Efnin voru úr vörslu lögreglunnar sem hún hafði gert upptæk í ýmsum eiturlyfjaáhlaupum. Erlent 26.6.2006 17:32