Erlent
Mikið um neyslu áfengis meðal ófrískra kvenna Talið er að á hverju ári fæðast tæplega 400 börn í Danmörku með skaðleg einkenni sem rakin eru til áfengisneyslu móður á meðgöngu. Þar af fæðast um 70-100 börn með alvarleg einkenni sem munu há þeim alla ævi samkvæmt umfjöllun Politiken. Heilbrigðisyfirvöld í Danmörku íhuga átak gegn drykkju ófrískra kvenna en um 80% danskra kvenna drekka áfengi einhvern tíman á meðgöngu og er tíðnin sú hæsta innan Evrópusambandsins. Erlent 24.7.2006 09:15
Íbúar í Queens orðnir langþreyttir á rafmagnsleysi Um 6.000 íbúar í Queens í New York hafa nú verið í viku án rafmagns. Eftir að rafmagnið fór af í hitabylgju sem gengið hefur yfir. Raforkufyrirtækið á svæðinu hefur unnið hörðum höndum að viðgerðum en 19.000 af 25.000 heimilum hafa nú fengið rafmagn. Íbúarnir sem enn hafa ekkert rafmagn eru orðnir þreyttir og pirraðir og hafa beðið fylkisstjóra New York ríkis að grípa inn í og sjá til þess að viðgerðir gangi hraðar. Erlent 24.7.2006 08:45
Fastur í vatnsstokk í fimmtíu tíma Ungur indverskur drengur átti heldur eftirminnilegan afmælisdag í gær þegar honum var bjargað úr vatnsveitustokk, eftir um fimmtíu tíma dvöl í prísundinni. Drengurinn átti sex ára afmæli og var að leik í heimabæ sínum Aldeharhi, þegar hann féll niður í stokkinn. Erlent 24.7.2006 08:32
Flóttamönnum fjölgar í Damaskus Fjöldi flóttamanna sem streymir til Sýrlands frá Líbanon heldur áfram að aukast. Flóttafólkið dvelur í búðum sem settar hafa verið upp í kringum höfuðborgina, Damaskus. Ráðmenn í Ísrael sögðu í gær að ríkisstjórn Ísraels vildi að alþjóðlegt friðargæslulið hefði eftirlit með því að skæruliðar Hizbollah verði fluttir frá suðurhluta Líbanon. Erlent 24.7.2006 08:15
Fljúgandi listaverk drepur tvo Tveir létust og tólf manns slösuðust þegar risastórt uppblásið listaverk losnaði úr festingum sínum á sunnudag. Slysið varð í Durham-sýslu í Englandi samkvæmt fréttavef BBC. Erlent 24.7.2006 08:00
Árásir Ísraela fordæmdar Yfirmaður Neyðarhjálpar SÞ fordæmir loftárásir Ísraelsmanna sem mannréttindabrot. Um 600.000 Líbanir hafa flosnað upp frá heimilum sínum. Skotið var á líbanska flóttamenn í suðurhluta landsins í gær. Erlent 24.7.2006 07:45
Bjargað eftir fimmtíu tíma Litlum dreng var bjargað úr átján metra djúpri holu á Indlandi í gær. Drengurinn hafði mátt dúsa í holunni í tæpar fimmtíu klukkustundir eða síðan á föstudaginn. Erlent 24.7.2006 07:15
Nútímaþrælabúðir starfræktar á Ítalíu Pólskir og ítalskir lögreglumenn frelsuðu um eitt hundrað Pólverja úr þrælahaldi á Ítalíu í mánuðinum. Tuttugu og fimm voru handteknir í lögregluaðgerðinni, en hún var árangur hálfs árs langrar rannsóknar. Erlent 24.7.2006 07:00
Barist gegn félagslegu misrétti Fríverslunarsamtök rómönsku Ameríku, Mercosur, bættu Venesúela formlega í sinn hóp á fundi í Argentínu í síðustu viku. Þetta er ein mesta stækkun samtakanna frá stofnun þeirra árið 1991 og eru nú þrjú stærstu hagkerfi Suður-Ameríku; Brasilía, Argentína og Venesúela, saman komin í þeim. Erlent 24.7.2006 06:30
Ísraelar á sjálfseyðingarbraut Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, lýsti því yfir í gær að Ísraelsmenn hefðu „þrýst á sjálfseyðingarhnapp“ með aðgerðum sínum í Líbanon. Hann útskýrði orð sín ekki nánar, en gaf til kynna að múslimaríki og önnur gætu einangrað Ísraelsríki á einhvern hátt. Yfirmaður herráðs Írana hafði tilkynnt daginn áður að Íranar mundu alls ekki blanda sér í stríðið í Mið-Austurlöndum. Erlent 24.7.2006 06:30
Skógareldar æ algengari Loftslagshlýnun hefur valdið því að skógareldum, kjarreldum og fleiri brunum úti í náttúrunni fjölgar. Vísbendingum um þetta fjölgar stöðugt, hvort sem litið er til Bandaríkjanna, Síberíu eða Ástralíu. Erlent 24.7.2006 06:15
Saddam lagður á sjúkrahús Eftir sautján daga langt hungurverkfall þótti ástand Saddams Hussein svo slæmt að hann var færður á spítala í gær. Hann neitar enn að innbyrða heilar máltíðir en fær nú næringu í gegnum slöngu. Erlent 24.7.2006 05:45
Vilja fá sína eigin hersveit Um 500 súnnímúslimar hópuðust saman fyrir framan helsta helgidóm súnnía í Bagdad eftir reglulegar föstudagsbænir síðustu viku og kröfðust þess að borgarhverfi þeirra fengi sína eigin hersveit. Erlent 24.7.2006 05:30
Hafa tekið tvo bæi í Sómalíu Hundruð eþíópískra hermanna fóru í fyrradag inn í sinn annan bæ í Sómalíu til að styðja stjórn stríðsherra í landinu. Eþíópísk stjórnvöld neita að hafa sent herlið inn í landið en íbúar og starfsmenn Sameinuðu þjóðanna eru á öðru máli. Auk þess sveima herþyrlur um svæðið, en engin slík er í eigu sómalska hersins. Erlent 24.7.2006 05:00
Saddam neyddur til að borða Sextán daga löngu hungurverkfalli Saddams Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, lauk í dag þegar Bandaríkjamenn sem hafa hann í haldi tóku að neyða ofan í hann mat. Aðallögfræðingur Saddams er æfur yfir framgöngu þeirra og sagði hann í samtali við Reuters-fréttastofuna að ætlun þeirra væri að brjóta niður vilja hans. Erlent 23.7.2006 14:32
Á sjötta tug Íraka féll í morgun Á sjötta tug Íraka liggur í valnum eftir að tvær bílsprengjuárásir voru gerðar í borgunum Bagdad og Kirkuk í morgun. Fyrri sprengjan sprakk í Sadr-hverfinu í höfuðborginni þar sem sjíar eru þorri íbúanna. Erlent 23.7.2006 10:15
Jarðskjálfti skekur Sulawesi Jarðskjálfti af stærðinni 6,6 reið yfir indónesísku eynna Sulawesi nú á tíunda tímanum. Að svo stöddu er ekki vitað um manntjón eða hvort flóðbylgja hafi myndast í kjölfar skjálftans. Erlent 23.7.2006 09:48
Hætta árásum á Ísrael Uppreisnarmenn á Gaza hafa fallist á að hætta flugskeytaárásum á Ísrael og tók einhliða vopnahléð gildi aðfaranótt sunnudags, að sögn palestínsks embættismanns. Erlent 23.7.2006 09:00
Saur á samkynhneigða Saur og eggjum var kastað að hópi samkynhneigðra og stuðningsmanna þeirra í Ríga í Lettlandi þegar fólkið var að koma úr guðsþjónustu í gær. Réttur í Ríga úrskurðaði á föstudag að ekki skyldi leyfa skrúðgöngu samkynhneigðra í borginni og hafði fjöldi baráttufólks um réttindi samkynhneigðra safnast saman í kirkjunni. Erlent 23.7.2006 09:00
Rafmagnslaust sex daga í röð Uppreisnarmenn á Gaza hafa fallist á að hætta flugskeytaárásum á Ísrael og tók einhliða vopnahléð gildi aðfaranótt sunnudags, að sögn palestínsks embættismanns. Erlent 23.7.2006 08:45
Helmingur barnakláms hýstur á bandarískum vefsvæðum Rétt rúmlega helmingur barnaklámmynda á netinu kemur frá Bandaríkjunum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá bresku eftirlitsstofnuninni Internet Watch Foundation Erlent 23.7.2006 08:45
Dýrt að fæða fyrir tímann Meira en hálf milljón barna fæðist fyrir tímann í Bandaríkjunum á ári hverju. Kostnaðurinn við að sinna veikburða börnum sem fæðast fyrir tímann er um 2.000 milljarðar króna á ári hverju þar í landi. Erlent 23.7.2006 08:00
Rússar ógna samstöðu stórveldanna Andstaða Rússa við orðalag í uppkasti að ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um kjarnorkumál Írans ógnar samstöðu stórveldanna sex um hvernig skuli bregðast við mótþróa Írans við að stöðva auðgun úrans. Bandaríkin, Kína, Bretland, Frakkland, Þýskaland og Rússland ákváðu hinn 12. júlí að hefja viðræður á ný um aðgerðir Sameinuðu þjóðanna, í kjölfar þess að Íranar neituðu að svara hvort þeir myndu verða við vilja stórveldanna sex og fá í staðinn ýmis vilyrði. Erlent 23.7.2006 07:45
Vill að refsingu verði frestað Michael Lenz, rúmlega fertugur ásatrúarmaður og fangi á dauðadeild í Virginíuríki í Bandaríkjunum, hefur farið fram á það við Hæstarétt Bandaríkjanna að dauðarefsingu hans verði frestað vegna þess að kviðdómendur í máli hans flettu upp í Biblíunni meðan réttarhöldin stóðu yfir. Erlent 23.7.2006 07:30
19 hið minnsta látnir eftir jarpskjálfta í Kína Að minnsta kosti nítján manns eru sagðir hafa farist í jarðskjálfta í Kína í morgun. Skjálftinn var af stærðinni 5,1 á Richter og átti upptök í Yunnan-héraði í suðvesturhluta landsins. Erlent 22.7.2006 19:04
Kona lést þegar fíll stappaði á henni Kvenkyns dýrahirðir við fílaverndarsvæði í Tennessee í Bandaríkjunum lést þegar tæplega fjögurra tonna fíll gekk berserksgang og stappaði á honum. Félagi konunnar fékk einnig að kenna á fótum fílsins og slasaðist alvarlega. Erlent 22.7.2006 14:15
Votta leiðtoga rauðu kmeranna virðingu sína Hundruð Kambódíumanna hafa í dag vottað Ta Mok, einum af leiðtogum hinna illræmdu rauðu kmera, virðingu sína en hann andaðist í gær. Hann er sakaður að hafa í stjórnartíð rauðu kmeranna á áttunda áratug síðustu aldar stýrt einhverjum umfangsmestu þjóðarmorðum sögunnar en 1,7 milljónir Kambódíumanna dóu á valdatíma þeirra. Erlent 22.7.2006 13:22
Liðsflutningar til landamæranna halda áfram Liðsflutningar Ísraela til líbönsku landamæranna halda áfram en ekki er þó gert ráð fyrir allsherjarinnrás í Líbanon að svo stöddu. Bandaríkjamenn hafa hraðað vopnasendingum til Ísraels undanfarna daga. Erlent 22.7.2006 10:01
Neyðarástand í Líbanon Rauði krossinn hefur lýst yfir neyðarástandi í Líbanon. Þetta er ekki lengur árás á Hizbollah-samtökin, þetta er árás á líbönsku þjóðina, segir forseti landsins. Börn eru nærri þriðjungur fórnarlambanna. Erlent 22.7.2006 09:00
Tuttugu látnir í Evrópu Hitabylgjan í Evrópu hefur að öllum líkindum orðið um tuttugu manns að bana, þar á meðal 15 mánaða gömlu barni og 94 ára konu. Fjórir hinna látnu dóu á vinnustað, tveir við íþróttaiðkun og tveir voru heimilislausir á götum úti. Erlent 22.7.2006 09:00