Erlent
Karlmaður handtekinn Lík af þungaðri konu fannst í vikunni á floti við Ekerö, skammt fyrir utan Stokkhólm. Að sögn lögreglu var konan myrt fyrir mörgum mánuðum og í fyrstu var ekkert annað vitað um hana en að hún hefði líklega verið af erlendu bergi brotin og komin rúma sjö mánuði á leið. Erlent 8.8.2006 07:00
Stækkaði brjóstin í útlöndum Norsk kona hefur verið kærð fyrir að ljúga því að tryggingafélagi sínu að hún hafi neyðst til að ganga undir aðgerð á eggjastokkum sínum á meðan hún var í fríi í Dóminíska lýðveldinu í fyrra. Í raun lét hún bara stækka brjóst sín. Þetta kemur fram á fréttavef Aftenposten. Erlent 8.8.2006 06:30
Vopnahléstillögu hafnað Líbanar höfnuðu tillögum Frakka og Bandaríkjamanna um vopnahlésályktun sem lögð var fram um helgina. Ísraelskir embættismenn voru almennt ánægðir með ályktunina þar sem hún heimilar Ísraelsher að beita hernum í varnaðarskyni. Erlent 8.8.2006 06:15
Halda ástandi Castros leyndu Fidel Castro er nú á batavegi eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna innvortis blæðinga í síðustu viku. Varaforseti Kúbu, Carlos Lage, sagði á sunnudag að líðan Castros væri góð og hann myndi snúa aftur til starfa innan fárra vikna. Erlent 8.8.2006 06:00
Mikil skelfing grípur um sig Tæplega 200 manns leituðu á slysavarðsstofu í borginni Lenz í Austurríki á miðvikudag vegna ótta við kóngulóarbit. Eingöngu átta voru greindir með „hugsanleg einkenni“ og segja læknar kóngulóarfælni hafa brotist út í landinu. Erlent 8.8.2006 05:30
Fá ekki að ganga í skóla Um 7.000 börn og ungmenni í Rúmeníu eru smituð af HIV-veirunni og segja mannréttindahópar þau vera fórnarlömb fordóma í eigin landi. Börnin gangi ekki í skóla og njóti hvorki þjónustu tannlækna né fái rétt lyf við sjúkdómi sínum. Erlent 8.8.2006 05:00
Chavez fær ekki Saab-vopn Sænski hergagnaframleiðandinn Saab ætlar að hætta að selja vopn til Venesúela vegna banns Bandaríkjastjórnar við vopnasölu til stjórnar Hugo Chavez. Þetta kemur fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. Erlent 8.8.2006 04:00
Boðar meiri landhernað Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Amir Peretz varnarmálaráðherra funduðu í gær með hershöfðingjum í norðurhéruðum landsins og töluðu um frekari landhernað í Líbanon. „Ég færi ykkur allan styrk og allan stuðning,“ sagði Olmert á fundinum. „Við munum ekki stoppa.“ Erlent 8.8.2006 03:00
Beðið eftir niðurstöðu friðarviðræðna Amir Peretz, varnarmálaráðherra Ísraels, sagði í dag að Ísraelsher myndi herða árásir á Hizbollah-samtökin ef niðurstaða fæst ekki innan skamms í friðarviðræðunum. Ráðherrar Arabalanda komu saman í dag í Beirút og ræddu átökin í Líbanon. Erlent 7.8.2006 18:47
Lopez Obrador vill endurtelja atkvæði að fullu Frambjóðandi vinstrimanna í nýafstöðnum forsetakosningum í Mexíkó hafnar niðurstöðu hæstaréttar landsins um að fyrirskipa endurtalningu atkvæða einungis að hluta. Andres Manuel Lopez Obrador hvatti stuðningsmenn sína í gær til þess að halda áfram mótmælaaðgerðum sínum í miðborg Mexíkóborgar, þar sem tugþúsundir manna hafa stöðvað bæjarlíf undanfarna daga. Kosningarnar fóru fram 2. júlí og samkvæmt opinberum niðurstöðum hlaut hægrimaðurinn Felipe Calderon nauman meirihluta. Erlent 7.8.2006 10:15
Ellefu manns létust í Suður-Líbanon Friðarviðræðrur vegna átakanna Líbanon falla í skuggann af stanslausum árásum Hizbollah-liða og Ísraelshers. Ellefu óbreyttir borgarar létust í árásum Ísraelshers á Suður-Líbanon í morgun. Erlent 7.8.2006 10:04
Átján slösuðust þegar stigi hrundi í Hollandi Að minnsta kosti átján manns slösuðust, þar af þrír alvarlega, þegar stigi við skipaskurð í Hollandi hrundi í gærkvöldi. Fjöldi manns stóð í stiganum þegar slysið varð. Erlent 7.8.2006 09:20
Castro á batavegi Varaforseti Kúbu segir að Fídel Castro forseti sé á batavegi. Carlos Lage sagði í viðtali við fréttamenn í Bólivíu að Castro hefði gengist undir flókna skurðaðgerð vegna innvortist blæðinga. Erlent 7.8.2006 09:17
Vill útrýma kjarnorkuvopnum Borgarstjórinn í Hiroshima hvatti til þess í dag að öllum kjarnorkuvopnum yrði útrýmt. 61 ár er í dag liðið síðan kjarnorkusprengju var varpað á borgina. Erlent 6.8.2006 19:00
Ekkert lát á átökum Hizbollah og Ísraelshers Ekkert lát virðist vera á átökum Hizbollah-liða og Ísraelshers. Hizbollah-skæruliðar skutu fjölda eldflauga á norðurhluta Ísreals í morgun með þeim afleyðingum að tíu manns létu lífið og níu særðust. Seinni partinn í dag lést einn maður og 30 særðust í eldflaugaárás á borgina Haifa. Erlent 6.8.2006 18:51
Náðu aftur stjórn yfir Muttur Stjórnarherinn í Sri Lanka segist vera búinn að ná stjórn yfir bænum Muttur í norðausturhluta landsins en harðir bardagar hafa geysað þar á milli stjórnarhersins og Tamíl-Tígranna undanfarna daga. Rún Ingvarsdóttir. Erlent 6.8.2006 12:25
Sautján manns létust í átökum Ísraelshers og Líbanons í morgun Alls dóu sautján manns í átökum Ísrealshers og Hizbollah-skæruliða í morgun. Ísraelar segja tillögu Bandaríkjamanna og Frakka um að binda endi á átökin vera mikilvæga. Þó segjast þeir ekki munu stöðva árásirnar á næstu dögum. Erlent 6.8.2006 12:09
Óásættanlegt að hætta að auðga úran Stjórnvöld í Íran segja nýjustu ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna varðandi kjarnorkuáætlun landsins vera óásættanlega. Í ályktuninni er þess krafist að Íranar hætti að auðga úran. Stjórnvöldum er gefinn frestur til ágústloka til að hætta við kjarnorkuáætlun sína, ella verði landið beitt efnahagslegum og pólitískum þvingunum. Asefi, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, sagði ályktunina ólöglega og ganga gegn réttindum Írans. Hann sagði þó að Íranar myndu taka þátt í samningaviðræðum til að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Hins vegar sagði Ali Larijani, yfirmaður samninganefndar Írana, í dag að stjórnvöld myndu frekar víkka út kjarnorkuáætlun sína en hætta við hana, í mótmælaskyni við ályktunina. Erlent 6.8.2006 11:59
Flóð í Eþíópíu Sjötíu manns létust í morgun í Eþíópíu þegar áin Dire Dawa flæddi yfir bakka sína. Að minnsta kosti fimmtíu manns slösuðust alvarlega og yfir hundrað hús eyðilöggðust. Unnið er að björgun íbúa í þorpum í nágrenni árinnar. Erlent 6.8.2006 11:00
Átök í rénum í bænum Muttur Stjórnarherinn í Sri Lanka segist vera búinn að ná stjórn yfir bænum Muttur í norðausturhluta landsins. Þúsundir hafa flúið bæinn eftir harða bardaga þar síðustu daga. Í síðustu viku lokuðu Tamíl tígrarnir fyrir vatn til bæja sem stjórnarherinn ræður yfir í norðausturhlutanum. Seinni partinn í gær dró úr átökunum en enn er ekki búið að leysa vandamál varðandi vatnsskort. Stjórnarherinn og Tamíl tígrarnir undirrituðu samning um vopnahlé árið 2002 eftir tæplega tveggja áratuga borgarastríð þar í landi. Bardagar hafa þó verið tíðir, sérstaklega í kringum bæinn Muttur sem er undir stjórn hersins en á svæði Tamíl tígranna. Erlent 6.8.2006 10:16
Samkomulag sem miðar að friði Sendiherrar Frakka og Bandaríkjanna náðu samkomulagi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag um ályktanartillögu sem miðar að því að binda endi á átökin í Líbanon. Erlent 5.8.2006 18:53
Allt fullt á Akureyri nema búðarhillurnar Akureyri er vinsælasti staðurinn þessa verslunarmannahelgina en þangað hafa átján þúsund manns lagt leið sína. Öll tjaldstæði eru fullnýtt og farið að bera á vöruskorti í höfuðstað Norðurlands. Erlent 5.8.2006 18:45
Fjögurra bíla árekstur Árekstur varð við Sandskeið á öðrum tímanum í dag. Samkvæmt fyrstu upplýsingum frá lögreglu lentu fjórir bílar í árekstrinum en ekki er vitað hversu alvarleg slys á fólki eru. Erlent 5.8.2006 14:17
Ísraelsher herðir árásir sínar Ísraelsher herti árásir sínar í Líbanon í morgun. Að minnsta kosti fjórir létust í loftárásum á suðurhluta Beirúts og sjö létust í árásum í hafnarborginni Týrus. Erlent 5.8.2006 12:41
Allt fullt á Akureyri Akureyringar eru orðnir að minnihlutahóp í eigin heimabæ en skipuleggjendur hátíðahalda þar telja að átján þúsund manns hafi lagt leið sína í bæinn. Mikil ölvun var þar í nótt og talsvert um ryskingar. Erlent 5.8.2006 12:40
Fjórir létust í árásum Ísraelshers á Gaza Fjórir Palestínumenn létust í árásum Ísraelshers á suðurhluta Gaza í morgun. Tveir hinna látnu voru systkini á aldrinum fimmtán og sautján ára. Hundrað og sjötíu Palestínumenn og einn ísraelskur hermaður hefur látist frá því að Ísraelsher hóf árásir sínar í lok júní. Í dag og á morgun verður landamærastöð á landamærum Gazasvæðisins og Egyptalands opnuð svo hægt verði að koma nauðsynjum inn á Gazasvæðið en þetta er í annað sinn frá því að hernaðaraðgerðir Ísraela á Gasasvæðinu hófust sem landamærastöðin er opnuð. Erlent 5.8.2006 10:16
Tveir grunaðir handteknir Lögreglan í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum handtók í gær tvo menn í tengslum við raðmorð sem skelft hafa íbúa borgarinnar í meira en ár. Mennirnir eru taldir tengjast máli leyniskyttu sem kölluð er „The Serial Shooter“ en ekki öðrum fjöldamorðingja sem gengur undir nafninu Baseline-morðinginn. Erlent 5.8.2006 08:00
Ræða leiðir til að binda enda á átökin Fulltrúar stórveldanna í öryggisráði SÞ héldu í gær áfram viðræðum um leiðir til að binda enda á átökin í Líbanon. Ágreiningur ríkir enn um hvort skuli koma á undan, vopnahlé eða friðargæslulið. Ísraelar héldu áfram loftárásum og sprengiflaugahríð Hizboll Erlent 5.8.2006 07:45
Ríkisstjórnin krafin svara Nú, þegar aðeins rúmur mánuður er til þingkosninga í Svíþjóð, kröfðust þingmenn bæði stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka þess í gær að ríkisstjórnin skýrði stefnu sína í kjarnorkumálum í kjölfar þess að slökkt hefur verið á helmingi allra kjarnaofna í landinu. Erlent 5.8.2006 07:00
Þingmanni dæmdar bætur Kviðdómur í Edinborg úrskurðaði í gær að dagblaðið News of the World skyldi greiða skoska stjórnmálamanninum Tommy Sheridan 200.000 sterlingspund, andvirði 26,6 milljóna króna, í miskabætur fyrir meiðyrði, en blaðið hafði flutt ítrekaðar uppsláttarfréttir af meintu kynsvalli og kókaínneyslu þingmannsins. Erlent 5.8.2006 06:45