Tæplega hundrað konur á Íslandi skráðar á vefsíðu fyrir fylgdarþjónustu Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 10. desember 2015 18:45
Tæplega hundrað konur sem segjast vera staðsettar á Íslandi eru skráðar á alþjóðlega vefsíðu fyrir fylgdarþjónustu. Á síðunni kemur fram að auðvelt sé að verða sér úti um fylgdarkonu í Reykjavík. Lögregla fær reglulega ábendingar um slikar síður, en rannsóknir á þeim skila venjulega ekki árangri. Hátt í þrjátíu þúsund konur eru skráðar á vefsíðuna cityoflove.com, en í lýsingu síðunnar segir að hún sé ætluð viðskiptamönnum sem ferðast mikið og eru að leita sér að fylgdarþjónustu. Síðan hefur verið starfrækt í tíu ár en á hana eru skráðar hátt í þrjátíu þúsund konur frá 92 löndum, þar á meðal Svíþjóð, Noregi og Íslandi. 86 konur segjast vera staðsettar í Reykjavík og 9 í Hafnarfirði en þær hafa ýmist verið skráðar á síðuna í lengri eða skemmri tíma, einhverjar í um eitt ár. Á vefsíðunni kemur fram að í Reykjavík sé auðvelt að verða sér úti um fylgdarþjónustu á hvaða tíma sólarhrings sem er. Fylgdarkonur sé meðal annars að finna á skemmtistöðum í miðbænum. Síðan gefur sig út fyrir að vera ætluð fyrir fylgdarþjónustu, eða svokallað escort, en þegar nánar er skoðað er augljóst að hún er hugsuð fyrir vændi. Flestar kvennanna sem skráðar eru á Íslandi gefa þannig upp tímaverð í íslenskum krónum. Hálftíma, klukkutíma og þar fram eftir götum. Þá koma fram á síðunni ýmsar persónuupplýsingar, hæð kvennanna, þyngd þeirra, hárlitur og íslensk símanúmer. Fréttastofa hringdi í nokkur númeranna sem gefin eru upp á síðunni og voru þau flest virk. Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, kannaðist ekki við umrædda vefsíðu þegar fréttastofa hafði samband við hann í dag. Lögreglu berast þó reglulega ábendingar um síður af þessu tagi og er reynt að fylgja því eftir eins og hægt er. Árni segir þó að slík mál séu erfið viðureignar og skila rannsóknir á þeim því venulega ekki miklu, meðal annars vegna þess að í þeim tilvikum sem konurnar hafa verið með íslensk símanúmer hafa þær verið með frelsiskort sem ekki er hægt að rekja. Þá séu konurnar oft aðeins staddar tímabundið hér á landi.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira