Innlent

Þrjú innbrot á meðan löggustöðin er lokuð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
„Hérna hefur verið sólarhringsvakt í áratugi. Þetta er áratugaafturför. Hérna er hávertíð, hundruð manna að vinna allan sólarhringinn en ekki lögregla nema hluta sólarhringsins. Í stærsta útgerðarbæ landsins."

Þetta segir Pétur Steingrímsson, varðstjóri hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í samtali við Vísi. Grétar Ómarsson, íbúi í Vestamannaeyjum, skrifaði innanríkisráðherra bréf í gær. Þar sagði hann frá því hvernig hann rak unga hettuklædda menn af lóð nágranna síns aðfaranótt þriðjudags. Í símtali sínu til Neyðarlínunnar hafi hann fengið þær upplýsingar að engin lögregla væri á vakt.

„Það er allt rétt sem kemur fram í þessu bréfi," segir Pétur. Hann bendir á að þrjú innbrot hafi verið framin undanfarnar vikur í Eyjum.

„Við höldum því fram að þau séu öll framin á þessum tíma sem stöðin er lokuð. Þau eru öll óupplýst," segir Pétur.

Hann segir lögreglustöðinni vera lokað klukkan þrjú á nóttunni á virkum dögum og sé lokuð til sjö. Um helgar loki stöðin klukkan sex um morguninn en opni aftur klukkan tíu. Þannig loki lögreglustöðin rétt eftir að öldurhúsunum er lokað sem sé skrýtið.

„Á góðviðrisdögum á sumrin þá er fullt af fólki í bænum og það fer ekkert heim um leið og pöbbunum er lokað," segir Pétur. Hann bendir á að ef kalla þurfi út lögreglumann taki það lágmark stundarfjórðung fyrir hann að koma sér á fætur, hafa sig til og mæta á vettvang.

Hann segist hálfundrandi á því að íbúar í Vestmannaeyjum hafi ekki áttað sig á stöðu mála fyrr því svona hafi vaktirnar verið í tæp tvö ár. Á sama tíma hefur lögreglumönnum í Eyjum verið fækkað úr ellefu í átta.

„Við erum að missa þrjá menn. Það er verið að skerða öryggi okkar úti á vettvangi," segir Pétur. Hann bætir við að áður hafi verið þrír menn á næturvakt en séu nú tveir. Niðurskurðurinn komi einnig niður á dagvaktinni.

„við vorum tveir á dagvöktum en nú bara einn fyrir utan yfirlögregluþjóninn og lögreglufulltrúa sem sinnir rannsóknum. Þetta er örugglega svona víða á landinu," segir Pétur.


Tengdar fréttir

Hettuklæddir menn en engin lögga á vakt

Grétar Ómarsson, íbúi í Vestmannaeyjum, hefur sent innanríkisráðherra, Ögmundi Jónassyni, skriflega fyrirspurn vegna atviks sem kom upp á Heimaey aðfaranótt þriðjudags.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×