Heilbrigðismál

Fréttamynd

Eigum við að borga það?

Börn með krabbamein, styrktarfélag fagnar 35 ára afmæli í dag. Fyrstu tæpu 35 árin hét félagið Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna en í byrjun afmælisársins var ákveðið að skipta um nafn og merki.

Skoðun
Fréttamynd

Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag

1. september 2026 fer í sögubækurnar sem dagurinn sem samkynhneigðir karlmenn máttu í fyrsta sinn gefa blóð á Íslandi. Bjarni Snæbjörnsson leikari fagnaði þessum áfanga með ferð í Blóðbankann og leyfði fréttastofu að fylgjast með. 

Innlent
Fréttamynd

Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld

Landspítalinn segir stöðuna varðandi sjúklinga með færni- og heilsumat ekki hafa verið betri það sem af er þessari öld. Síðastliðna 12 mánuði hafa 244 ný hjúkrunarrými fyrir aldraða verið opnuð.

Innlent
Fréttamynd

Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman

Landsréttur hefur ógilt frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjaness í máli læknisins Skúla Tómasar Gunnlaugssonar. Ákæra á hendur honum fyrir manndráp fær því efnismeðferð.

Innlent
Fréttamynd

SÁÁ missir for­stjóra og yfir­lækni

Framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ ætlar að hætta störfum en bæði forstjóri samtakanna og fagstjóri hættu í síðasta mánuði. Lækningastjórinn tilkynnti starfsfólki um þetta í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Setja körlum aldurs­tak­mark í frjósemismeðferð

Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að setja körlum sem ætla sér að nýta sínar eigin kynfrumur í frjósemismeðferðir á vegum ríkisins aldurstakmark. Aldurstakmarkið verður 55 ár en fyrir konur er það fjörutíu ár. Nýja aldurstakmarkið tekur gildi um áramótin.

Erlent
Fréttamynd

„Ef ég hefði ekki farið upp á heilsu­gæslu þá hefði ég ekki fengið heila­blóð­fall“

„Ég sætti mig við að fólk geti gert mistök og er fljót að fyrirgefa. Það sem ég get ekki sætt mig við er ef enginn vill síðan taka ábyrgð eða fara almennilega yfir hvað gerðist. Ég vil bara að það sé horft á málið eins og það er og að allar upplýsingar komi fram,“ segir Soffía Adda A. Guðmundsdóttir. Atburðarás sem hófst um hádegi 13. febrúar 2025 leiddi til þess að hún fékk heilablóðfall sem breytti lífi hennar til frambúðar.

Lífið
Fréttamynd

Á morgun mega hommar gefa blóð

Á morgun mega allir óháð kyni eða kynhneigð gefa blóð þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra tekur gildi. Sérstök skimun var innleidd hjá Blóðbankanum sem hafði gefið góða raun.

Innlent
Fréttamynd

Þyrluútköllum fjölgað veru­lega milli ára

Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, segir ekki hægt að verðleggja þyrluútkall en þegar ferðamenn hafa sýnt mikið ábyrgðarleysi hafi Landhelgisgæslan reynt að innheimta í gegnum tryggingar. Það hafi þó ekki sýnt góðan árangur. Útköllum hefur fjölgað verulega síðustu ár. 

Innlent
Fréttamynd

Kjartan Hreinn aftur að­stoðar­maður Ölmu

Alma D. Möller hefur ráðið Kjartan Hrein Njálsson sem aðstoðarmann sinn. Hann hefur störf 27. ágúst. Síðustu sjö ár hefur Kjartan Hreinn starfað hjá embætti landlæknis sem aðstoðarmaður landlæknis, þar með talið með Ölmu á meðan hún var landlæknir.

Innlent
Fréttamynd

Hvar er heil­brigðis­kerfið mitt?

Ég þarf að deila upplifun minni af bráðamóttökunni í Fossvogi síðustu tvo sólarhringa, því ég á mjög erfitt með að sætta mig við að þetta sé það sem við teljum ásættanlega heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

Skoðun
Fréttamynd

Settu saman fyrsta ís­lenska fjölerfðamengið

Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa sett saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið, eins konar kort sem gefur nákvæmari mynd af breytileika í erfðaefni Íslendinga en áður hefur þekkst. Aðferðin greinir sex prósentum fleiri erfðabreytileika og hefur þegar leitt í ljós áður óþekktan breytileika sem margfaldar líkur á að greinast með Parkinsonsveiki fyrir sextugt.

Innlent
Fréttamynd

„Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“

Auður Helgadóttir Möller greindist með ristilkrabbamein í fyrra, aðeins 47 ára gömul. Hún taldi sig lausa við meinið eftir aðgerð en þá kom annað æxli í ljós. Til að losna við það þurfti að taka stóran part af ristlinum og allan endaþarminn og er Auður því með varanlegt stóma. Hún lætur þó ekki deigan síga, talar opinskátt um ferilið og Stómu litlu, eins og hún kallar stómað sitt.

Lífið
Fréttamynd

Hættu við ADHD-greiningu vegna vímu­efna­neyslu barnsins

Kærunefnd vöru og þjónustukaupa vísaði í sumar frá máli foreldris sem fór með barnið í ADHD-greiningu en fékk hana ekki vegna vímuefnaneyslu barnsins. Barnið fékk þannig ekki greininguna og foreldrið þess ekki endurgreiðslu. Nefndin taldi málið utan valdssviðs síns.

Innlent
Fréttamynd

Efna til söfnunar í minningu Hennings

Blásið hefur verið til söfnunar fyrir ungt fólk með fíknivanda á Norðurlandi. Foreldrar ungs manns sem sjálfur glímdi við fíknivanda segjast hafa fengið að finna sárt úrræðaleysið á eigin skinni.

Lífið
Fréttamynd

„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“

Hópur Korpúlfa, sem er félag eldri borgara í Grafarvogi, ætlar að hlaupa saman í Reykjavíkurmaraþoninu. Hópurinn safnar fyrir félaginu og félagsstarfinu sem þau skipuleggja. Formaður segir mikilvægt að halda fólki í virkni eftir að það hættir að vinna og mikil áhersla sé lögð á það hjá Korpúlfi að fólk geti fundið sér eitthvað við hæfi.

Innlent
Fréttamynd

Klukku­tíma bröns getur kostað marga daga í rúminu

Helga Fanney Edwardsdóttir Finnsson var hraust, virk og í krefjandi starfi við Háskólann í Lúxemborg þegar hún fékk einkirningasótt árið 2015. Hún sneri fljótt aftur til vinnu en náði sér aldrei að fullu og fékk síðar greiningu á ME. Næstu fjögur árin hélt hún fast í vinnuna á meðan íþróttir, félagslíf og samvera með fjölskyldu hurfu smám saman úr lífi hennar.

Lífið