

Ásókn í að komast að á golfvelli á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei verið meiri og bitist er um rástímana. Sekúndum eftir að opnað hefur verið fyrir skráningu eru allir tímar bókaðir; ýmsum til mikillar mæðu.
Farþegum frá alls 164 ríkjum eða svæðum verður gert að dvelja í sóttvarnahúsi við komuna til Íslands með möguleika á undanþágu frá og með 18. maí. Áður var 131 ríki eða landsvæði á listanum en krafan nær til svæða þar sem nýgengi smita er 500 til 699 og hlutfall jákvæðra sýna er undir fimm prósent.
Spennandi ferðir um Langjökul eru í boði hjá Mountaineers of Iceland.
Sóttvarnarlæknir segir að mun fleiri komi nú til landsins en gert hafi verið ráð fyrir. Hann skilar heilbrigðisráðherra minnisblaði um aðgerðir á landamærum á næstunni. Best væri ef hægt væri að taka á móti öllum án þess að slaka á sóttvarnarkröfum.
Baðlónið Sky Lagoon opnaði í síðasta mánuði úti á Kársnesi í Kópavogi og hefur nánast verið uppselt í lónið síðan þá.
Aðalgönguleiðin að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli, svokölluð A-leið, er núna orðin mun greiðfærari og hættuminni en áður. Leiðin var lokuð í gær meðan unnið var að framkvæmdum en opnuð á ný í gærkvöldi.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa sett fram aðgerðir til að hraða viðspyrnu ferðaþjónustunnar. Er það innlegg samtakanna fyrir komandi kosningabaráttu en framkvæmdastjórinn segir að fylgst verði með því hvernig flokkarnir taki tillögurnar.
Glóandi gjall, sem þeytist hátt til himins úr eldgígnum á Fagradalsfjalli, hefur náð að kveikja gróðurelda í yfir eins kílómetra fjarlægð og var gossvæðið af þeim sökum lokað í dag. Kapp er nú lagt á bæta göngustíginn vegna tíðra slysa, með tveimur til þremur ökklabrotum á dag.
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 5.800 í aprílmánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Eru það sex sinnum fleiri brottfarir en í apríl 2020, þegar brottfarir voru tæplega eitt þúsund.
Tíu ferðamenn sem komu til landsins frá Spáni í gær var snúið til baka í morgun. Fólkið var ósátt við að mega ekki dvelja hér og sagðist hafa keypt farmiða þegar Spánn var grænt land. Aðstoðaryfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir það ekki skipta máli heldur hvort land sé skilgreint hættusvæði þegar fólk kemur til landsins.
Tíu manns, sem komu með flugi frá Spáni í gær, eru í haldi á Keflavíkurflugvelli þar sem þeir uppfylla ekki skilyrði þess að koma til landsins.
Metfjöldi er í komu farþegaflugvéla til landsins, frá því að faraldurinn hófst, í dag og á morgun. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli breytti verklagi fyrir helgi til að takast á við fjölda komufarþega og var afgreiðsluhraðinn tvöfaldaður.
Búist er við methelgi í komu farþegaflugvéla um helgina og gætu ferðamenn þurft að bíða klukkustundunum saman á meðan landamæraverðir fara yfir vottorð þeirra allra. Heilbrigðisráðherra segir svokölluð hraðpróf vera til skoðunar til að flýta fyrir ferlinu.
Slysavarnadeildin Þórkatla hefur komið upp sölugámi, sem kallast Ellubúð, við göngustíginn, sem liggur að gosstöðvunum við Fagradalsfjall og hefur algerlega slegið í gegn.
Þeir sem lögðu leið sína á gosstöðvarnar í gærkvöldi voru þeir fyrstu sem fengu að ganga nýlagðan stíg á A-leiðinni svokölluðu sem auðveldar aðgengið til muna.
Núna er hægt að kaupa gjósandi eldfjall. Landeigendur gosstöðvanna í Fagradalsfjalli segja jörðina eða hluta hennar fala fyrir rétt verð og eru þegar komnir með tilboð.
Það hefur gengið vel að ná utan um þær hópsýkingar sem hafa verið í gangi í samfélaginu síðustu vikur og helsta áhyggjuefnið núna er aukinn fjöldi ferðamanna sem hingað kemur til lands.
Starfshópur stjórnvalda telur að gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli geti orðið fjölfarnasti áfangastaður landsins og leggur til gjaldtöku af bílastæðum. Talsmaður landeigenda segir nauðsynlegt að fara hratt í uppbyggingu.
Frá og með föstudeginum verður tekið mið af hlutfalli jákvæðra Covid-19 sýna í brottfaralandi við mat á því hvaða lönd eða svæði teljast til hááhættusvæða. Áður var einungis miðað við nýgengi smita en skilgreining hááhættusvæða ræður því hvaða farþegar þurfa að sæta sóttkví í sóttvarnahúsi við komuna til landsins.
Erla Ósk Ásgeirsdóttir hefur látið af störfum sem forstöðumaður mannauðs og menningar hjá Icelandair hótelum eftir rúmlega sex ára starf. Hún tekur við sem forstöðumaður mannauðsmála hjá The Reykjavík Edition, hóteli við hliðina á Hörpu.
66°Norður í samstarfi við samfélagsmiðilinn Strava stóð fyrir hreyfiátaki þar sem notendur gátu skráð sig til leiks og áttu kost á því að vinna ferð til Íslands ef þeir myndu hreyfa sig þrisvar í viku í tvær vikur í röð.
Breska flugfélagið Jet2.com og Jet2CityBreaks hefur ákveðið að flýta um mánuð áætlunum sínum um flug og borgarferðir frá Manchester á Englandi til Íslands.
Búist er við að framkvæmdir við eldgosið í Fagradalsfjalli hefjist í vikunni að sögn ferðamálastjóra. Ríkið leggi nú þegar til 40 milljónir króna til verkefna þar og landeigendur greiði fyrir framkvæmdir á bílastæðum og salernisaðstöðu. Gert er ráð fyrir að gjald verði tekið fyrir bílastæði á svæðinu.
Adolf Ingi Erlingsson ökuleiðsögumaður fór sinn fyrsta leiðangur með ferðamenn í gær. Hann segir að eldgosið sé og eigi eftir að reynast gríðarlegt aðdráttarafl.
Til skoðunar er að leggja akveg upp á Fagradalsfjall til að auðvelda ferðamönnum að sjá eldgosið en jafnframt að bæta núverandi gönguleið svo hún nýtist sem neyðarleið fyrir ökutæki. Bæjarráð Grindavíkur samþykkti nú síðdegis að nýja hraunið fengi nafnið Fagradalshraun.
Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, líst nokkuð vel á stöðu faraldursins hér á landi þrátt fyrir að borið hafi á hópsmitum undanfarnar vikur. Hann er þó ósáttur við fyrirhugaðar breytingar á landamæratakmörkunum og vonar að ríkisstjórnin sjái villu síns vegar.
Hundrað og þrjátíu ferðamenn frá Bandaríkjunum, langflestir bólusettir, lentu á Keflavíkurflugvelli í dag. Þeir hafa sumir beðið í rúmt ár eftir Íslandsferðinni og eru sammála um að landið sé öruggur áfangastaður í heimsfaraldri.
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar býst við því að Íslendingar ferðist mest innanlands í sumar. Utanlandsferðir gætu svo færst í aukana eftir því sem fleiri eru bólusettir. Ekki er hægt að nýta ferðagjöf stjórnvalda til að kaupa flugmiða til útlanda.
Von er á allt að tuttugu flugfélögum með áætlunarflug um Keflavíkurflugvöll í sumar. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að fyrsta júlí ætti að vera orðið nokkuð auðvelt að taka á móti ferðamönnum á Íslandi.
Einstaklingar sem hafa verið atvinnulausir frá því fyrir upphaf kórónuveirufaraldursins munu fá 100 þúsund króna eingreiðslu sem hluta af nýjum aðgerðapakka stjórnvalda. Þá verður sérstakur 30 þúsund króna barnabótaauki gefinn þeim sem fá tekjutengdar barnabætur.