Ferðaþjónusta

Skiptar skoðanir um ferðamann á sundi innan um ísjaka við Breiðamerkursand
Leiðsögumaður, sem gekk í gær fram á ástralskan ferðamann á sundi innan um ísjaka við Breiðamerkursand, segir athæfið glæfralegt og sýna öðrum ferðamönnum á svæðinu slæmt fordæmi.

Staða ferðaþjónustunnar þröng fyrir gjaldþrot WOW air
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það nauðsynlegt að tryggja meira flugframboð til þess að fylla upp í það skarð sem WOW air skildi eftir.

Talsvert um afbókanir á Airbnb vegna gjaldþrots WOW air
Fall Wow air hefur víðtæk áhrif á ferðaþjónustutengda starfsemi á landinu.

Bílaleiga hefur dregist saman um fimmtung hjá AVIS
Framkvæmdastjóri hjá Avis bílaleigu segir að fall WOW AIR hafi haft í för með sér um tuttugu prósent samdrátt hjá fyrirtækinu síðustu daga. Hann telur að höggið sé mun meira hjá minni fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem geti þýtt tímabærar sameiningar á næstu mánuðum og misserum.

Segir orðspor Íslands ekki hafa skaðast við fall WOW AIR
Forstöðumaður hjá Íslandsstofu segir að orðspor Íslands hafi ekki skaðast vegna falls WOW AIR og umræðan tengd flugfélaginu hafi byggst á staðreyndum. Íslandsstofa fylgist vel með allri umræðu um landið erlendis og grípur þegar inní ef hún verður villandi. Farið verður af stað með nýtt markaðsátak ef þörf er á.

Býður ferðamönnum að sjá Kirkjufell í kajakróðri
Grundfirðingar eru farnir að nýta sér frægð Kirkjufells til atvinnusköpunar. Kajakleiðsögumaður sem býður ferðamönnum að sjá fjallið af sjó með því að róa á kajak.

Hóteleigandi merkir nú tugi afbókana á hverjum degi
Formaður félags fyrirtækja í hótelþjónustu segir hótelin merkja afbókanir í talsverðum mæli eftir gjaldþrot WOW air. Tugir afbókana komi nú inn á hverjum degi. Þá sé sérstaklega erfitt að þetta komi upp á sama tíma og verkföll séu að bresta á að öllu óbreyttu.

Ferðamenn notuðu salernið á meðan bóndinn brá sér í sturtu
Vilborg Alda Jónsdóttir, bóndi á bænum Hvítanesi í Vestur Landeyjum hefur fengið sig fullsadda af ágangi ferðamanna á jörð sinni því þeir gefa hrossum hennar og nota dróna til að taka myndir af þeim, sem fælir hestana og gerir þá hrædda. Steininn tók nýlega úr þegar ferðamenn fóru inn í húsið hennar til að nota salernið á meðan hún var í sturtu.

Viðskiptavinir WOW air deila hrakförum og góðum ráðum í hópum á Facebook
Þá deila strandaglóparnir einnig góðum ráðum sín á milli.

Gaman-Ferðir grípa til uppsagna vegna falls WOW air
WOW air átti 49 prósent í Gaman-Ferðum.

Nú þarf að blása til sóknar
Það er óhætt að segja að íslenskt samfélag hafi farið á hliðina fimmtudagsmorguninn 28. mars, þegar ljóst varð að flugfélagið WOW air væri komið í þrot.

Frekari uppsagnir í ferðaþjónustu ekki ólíklegar
Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar hvetur verkalýðsfélög til að endurskoða verkfallsaðgerðir í ljósi alvarlegrar stöðu eftir fall Wow air.

Uppsagnir hjá Gray Line: Hafa ekki lengur efni á að vera með starfsmenn á lager
Þremur starfsmönnum ferðaþjónustufyrirtækisins Gray Line hefur verið sagt upp.

Gistinætur ferðamanna: Aukningin mest á Suðurlandi en samdráttur á Vestfjörðum
Aukningin var mest á Suðurlandi en samdrátturinn mestur á Vestfjörðum.

Ferðamaður ákærður og krafinn um bætur
Bandarískur ferðamaður hefur verið ákærður fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi er hann ók á kyrrstæðan bíl á Reykjanesbraut í fyrra. Maður slasaðist lífshættulega. Kröfu um farbann var hafnað og fór ferðamaðurinn til síns heima.

Bjóða farþegum WOW ókeypis gistingu á meðan þeir reyna að komast heim
Eigendur gistisvæðisins Hraunborga í Grímsnesi hafa boðið öllum farþegum flugfélagsins WOW air, sem eru strandaglópar hér á landi eftir að félagið var lýst gjaldþrota í dag, ókeypis gistingu næstu vikuna.

Ferðaþjónustufyrirtæki hvött til að aðstoða strandaglópa eftir fremsta megni
Bæði Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálastofa hvetja fyrirtæki í ferðaþjónustu til þess að aðstoða þá ferðalanga sem lent hafa í vandræðum vegna gjaldþrots WOW til þess að liðsinna þeim eftir bestu getu.

59 sagt upp hjá Kynnisferðum
Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri, segir það hafa verið erfiða ákvörðun en rekstarumhverfi hafi breyst mikið að undanförnu.

Segir WOW-höggið geta ýtt mörgum í þrot
Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Nordic Visitor, segir að höggið sem hlýst af falli flugfélagsins WOW air, muni ýta mörgum ferðaþjónustufyrirtækjum í þrot. Mörg fyrirtækjanna hafi þegar átt erfitt uppdráttar undanfarna mánuði.

Hátt verðlag á Íslandi meira áhyggjuefni en WOW air
Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Iceland Travel, tekur eftir breyttu ferðamynstri hjá sínum viðskiptavinum.

Samkeppniseftirlitið brýnir fyrir stjórnvöldum að huga að samkeppnissjónarmiðum
Samkeppniseftirlitið segir mikilvægt að tryggja að eignir hverfi ekki af markaði.

Farþegar í Leifsstöð afar ósáttir
Ódýrasta flugið sem Kimperly D. Worthy finnur heim kostar 365 þúsund krónur.

Stóra verkefnið að „bjarga háönn ferðaþjónustunnar“
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að allir sem eigi í hlut þurfi að vinna saman að því að draga úr áfallinu.

Hugur ráðherra hjá starfsfólki WOW air
Frétti af falli flugfélagsins þegar stjórnvöld fengu tilkynningu um að flugrekstrarleyfinu hefði verið skilað.

Fall WOW air katastrófa fyrir Airport Associates
Samningar voru að ganga saman í nótt þegar fregnir af kyrrsetningu véla Wow air bárust.

„Mikil vonbrigði“ en ferðaþjónustan sterk
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, segir íslenska ferðaþjónustu sterka.

Bein áhrif á 2700 farþega
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, áætlar að fall WOW hafi áhrif á um 2700 farþega.

Farþegar WOW ráðvilltir og argir
Greina má mikla ónáægju meðal farþega WOW air sem bókað áttu flug með flugfélaginu í dag

Bæjarstjóra líður eins og betlara gagnvart ríkinu
Sveitarstjórnarmönnum líður eins og betlurum gagnvart ríkisvaldinu þegar kemur að ferðamannastöðum, segir bæjarstjóri Grundarfjarðar, sem vill að sveitarfélögin hafi eigin tekjustofn.

Umhverfisráðherra segir vörn snúið í sókn í uppbyggingu ferðamannastaða
Umhverfisráðherra segir hægt að áorka miklu í uppbyggingu innviða við náttúruperlur og aðra ferðamannastaði með þeim þremur og hálfa milljarði sem varið verði í þau verkefni á næstu þremur árum.