Ferðaþjónusta

Fréttamynd

Haft sam­band við þá bændur sem búa næst gilinu

Öryggismál við Stuðlagil hafa verið í brennidepli eftir að ferðamaður lést þegar hann féll ofan í gilið á mánudag. Var það annað banaslysið við gilið á tæplega tveimur árum en sveitarstjóri Múlaþings segir fyrsta viðbragð þegar svona sorglegt mál komi upp vera að hlúa að fólki. 

Innlent
Fréttamynd

Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel

Stracta-hótelin á Hellu eru til sölu, ásamt þremur veitingastöðum og þvottahúsi sem tilheyra rekstrinum. Hótelin heita Stracta Hótel og Stracta Hótel Mosfell en rekstur þeirra nær aftur til ársins 2014 en til stendur að láta hluta söluágóðans renna til góðra málefna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þyrluútköllum fjölgað veru­lega milli ára

Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, segir ekki hægt að verðleggja þyrluútkall en þegar ferðamenn hafa sýnt mikið ábyrgðarleysi hafi Landhelgisgæslan reynt að innheimta í gegnum tryggingar. Það hafi þó ekki sýnt góðan árangur. Útköllum hefur fjölgað verulega síðustu ár. 

Innlent
Fréttamynd

Erfiðast að horfa upp á mann­eskju deyja og geta ekkert gert

Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir leiðsögumaður á Austurlandi varð vitni að því í gær þegar ferðamaður drukknaði við Stuðlagil. Hún fer daglega með ferðamenn en segir aðstæður óöruggar og verulega þörf á betri fallvörnum sem og björgunartækjum við gilið. Ferðamaðurinn féll ofan í ána.

Innlent
Fréttamynd

Hótelin fá ný nöfn

Frá 1. september 2026 verða tvö hótel í Reykjavík hluti af hótelrekstri Íslandshótela undir nýjum nöfnum. Hilton Reykjavík Nordica verður Hilton Reykjavík og Reykjavík Natura fær nafnið Hótel Reykjavík Askja.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hnúfu­bakur á svamli skammt frá Reykja­vík

Hnúfubakur sást svamlandi í Faxaflóa í dag skammt frá Reykjavík. Ferðamenn hjá Sólfarinu við Sæbraut ráku upp stór augu þegar þau sáu dýrið. Leiðsögumaður segir það ekki algengt að sjá slík sporðaköst nálægt landi.

Innlent
Fréttamynd

„Eftir að koma í ljós“ hvort ís­lenskar á­hafnir manni leigu­flug Icelandair

„Það á eftir að koma í ljós,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, aðspurður um hvort íslenskar áhafnir muni manna vélar dótturfélags sem fyrirtækið hyggst koma á fót undir erlendu flugrekstrarleyfi. Fyrr í dag var greint frá kaupum Icelandair á 49 prósenta hlut í FlyPlay Europe sem býr yfir maltnesku flugrekstrarleyfi sem Icelandair ásælist. Bogi segir skrefið styrkja starfsemi Icelandair á Íslandi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gestum komið fyrir á öðru hóteli

Sverrir Einar Eiríksson athafnamaður segir rassíu lögreglunnar á farfuglaheimili og hóteli sem hann rekur í Grímsnesi hafa varðað endurnýjun rekstrarleyfis. Gestum hafi verið komið fyrir á öðru hóteli.

Innlent
Fréttamynd

Gisti­heimili Sverris í Gríms­nesi inn­sigluð

Lögreglan innsiglaði húsnæði í Grímsnesi á mánudag en það var í sameiginlegum aðgerðum Skattsins, Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og heilbrigðiseftirlitsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu snúa aðgerðirnar að gistingu sem athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson rekur á svæðinu en hann hefur áður verið ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot.

Innlent
Fréttamynd

Skilti í setrinu á ensku: „Hjartan­lega sam­mála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“

Forstöðumaður Þórbergsseturs segist geta tekið undir þá gagnrýni að skilti í veitingasölu menningarsetursins ættu ekki að vera á ensku; það væri viðeigandi ef þau væru frekar á íslensku eða esperanto. Langflestir gestir setursins séu þó erlendir ferðamenn og því sé auðvelt að gleyma sér í því að gera íslenskunni hátt undir höfði. Það gæti vel verið að skiltunum verði skipt út.

Innlent
Fréttamynd

Hunter Schafer al­sæl eftir Ís­lands­för

Bandaríska stjarnan Hunter Schafer var stödd hér á landi á dögunum. Miðað við myndir hennar hefur dvöl hennar hérlendis verið ævintýri líkust og leikkonan virðist lítið hafa kippt sér upp við það þótt veðrið hafi ekki alltaf leikið við hana meðan á dvöl hennar stóð.

Lífið
Fréttamynd

Hóteláform Hreiðars strand vegna veg­leysu

Hreiðar Hermannsson, eigandi Stracta-hótela, kemst hvorki lönd né strönd með áform sín um tíu milljarða króna hótelbyggingu í landi Orustustaða austan Kirkjubæjarklausturs þar sem Vegagerðin neitar að leggja veg til hans vegna andstöðu eigenda nágrannajarðar.

Innlent
Fréttamynd

Wilhelm Wessmann er látinn

Wilhelm Wessman, frumkvöðull á sviði hótel- og veitingareksturs, lést þann 3. ágúst síðastliðinn á Landspítalanum. Wilhelm fæddist 2. október 1942, á Höfn í Hornafirði, og var þannig 84 ára gamall.

Innlent
Fréttamynd

Far­þegar elska lopa­peysur

Sölubás Rauða krossins við Ráðhústorgið á Akureyri þar sem gestir og gangandi versla sér prjónaföt er gríðarlega vinsæll meðal ferðamanna. Sjálfboðaliðar sjá um að prjóna fötin og þvo.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Far­þegum fækkaði milli ára

Farþegum Icelandair fækkaði um tvö prósent milli ára í júlímánuði. Í ár voru fluttir 599 þúsund farþegar en í fyrra, júlí 2025, voru þeir 611 þúsund. Sætanýting var 88 prósent og stendur hún í stað milli ára. Þá var stundvísi 77,1 prósent samkvæmt mælingum félagsins.

Viðskipti innlent