Kosningar 2013

Fréttamynd

Enginn í lífshættu

Gunnar Bragi Sveinsson, frambjóðandi Framsóknarflokksins, sá sig knúinn til að greina frá hvert "neyðartilvikið“ var í fjölskyldu hans en í upphafi kosningaþáttar á RÚV í gær sagði Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir sjónvarpskona að Gunnar Bragi gæti ekki komið í þáttinn vegna "neyðartilviks í fjölskyldu hans.“

Innlent
Fréttamynd

Árni Páll búinn að raka sig

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, er búinn að raka sig en hann hefur skartað myndarlegu skeggi síðustu mánuði svo tekið hefur verið eftir. Í morgun mætti Árni Páll í útvarpsþáttinn Í bítið á Bylgjunni ásamt Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG.

Innlent
Fréttamynd

Gætu þurft að semja óviljugir um ESB

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur gætu komið til með að stýra lokaspretti aðildarviðræðna að ESB þvert á eigin stefnu, ef flokkarnir verða við stjórn eftir kosningar og þjóðin samþykkir að ljúka viðræðunum í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Fylgistap hjá Framsókn

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn gætu myndað meirihluta með 36 þingmönnum yrði kosið í dag samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi og fyrrakvöld.

Innlent
Fréttamynd

Vegagerð um Teigsskóg fari aftur í umhverfismat

Oddviti sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi, Einar K. Guðfinnsson, segir að tafarlaust eigi að fá nýtt umhverfismat fyrir Vestfjarðaveg um Teigsskóg svo unnt sé að snúa ákvörðun innanríkisráðherra. Oddviti Vinstri grænna segir slíkt leiða til minnst sex ára tafa vegna kærumála. Átökin snúast um hvort fara eigi um Teigsskóg með þjóðveginn um Gufudalssveit til að tengja sunnanverða Vestfirði við aðra landshluta með bundnu slitlagi. Á fjölmennum fundi á Patreksfirði haustið 2011, þar sem búsáhöld voru barin, var ákvörðun Ögmundar Jónassonar, um að hafna Teigsskógsleiðinni, mótmælt og nú vill oddviti sjálfstæðismanna taka upp þá ákvörðun ráðherrans. Þetta kom fram í kappræðu oddvita flokkanna í Norðvesturkjördæmi á Stöð 2 í gærkvöldi. Oddviti Vinstri grænna, Lilja Rafney Magnúsdóttir, sagði ekki inni í myndinni að fara um Teigsskóg.

Innlent
Fréttamynd

Árni Páll hefur litla trú á hugmyndum Framsóknarflokksins

"Það stenst ekki stjórnarskrá, þetta var rangt og svona yfirlýsingu átti aldrei að gefa,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, á fundi sem VÍB eignastýring Íslandsbanka hélt í Hörpu í dag með forystumönnum stjórnmálaflokkanna. Hann líkti hugmyndum Framsóknarflokksins, um að nýta eignir erlendra kröfuhafa á Íslandi, við það þegar hugmyndir hafi verið ræddar um að dótturfyrirtæki Magma í Svíþjóð sem keypti HS Orku myndi afskrifa eignir sínar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Framdi bankarán í Danmörku og er nú í framboði til Alþingis

Sindri Daði Rafnsson, frambjóðandi í 11. sæti á framboðslista Hægri-Grænna í Suðvesturkjördæmi var árið 1999 dæmdur í sex ára fangelsi í Danmörku fyrir vopnað bankarán. Sindri er maður Írisar Drafnar Kristjánsdóttur, sem er oddviti flokksins í Norðvesturkjördæmi. Sindri lýsir þessu nánar í ítarlegu viðtali við fréttamann Vísis.

Innlent
Fréttamynd

Gagnrýnir Ögmund fyrir flugvallarsamning

Oddviti Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi, Gunnar Bragi Sveinsson, segir undarlegt að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra skyldi hafa skrifað undir samning sem felur í sér að Reykjavíkurflugvelli sé ýtt út úr Vatnsmýrinni með klækjabrögðum borgarstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Allir flokkarnir vilja efla landgræðslu

Umhverfismál ber ekki hátt í stefnuskrám flokkanna að þessu sinni. Fréttablaðið þurfti að leita misdjúpt í samþykktum þeirra til þess að finna eitthvað um málaflokkinn.

Innlent
Fréttamynd

Ekki mikill áhugi á sjóræningjapólitík

Það virtist ekki vera mikill áhugi meðal gesta Kolaportsins á að ræða við frambjóðendur Pírata í kynningarbás sínum á Gleðistíg á laugardag. Básinn var staðsettur á móti kynningarsvæði Dögunar og ekki leið á löngu þar til heyrðist frá keppinautunum. "Endilega kíkið hingað,“ kallaði einn frambjóðandi Dögunar til blaðakonu og ljósmyndara Fréttablaðsins þar sem þau reyndu árangurslaust að fá fólk í viðtöl vegna píratanna.

Innlent
Fréttamynd

Skuldamál heimilanna mikilvægasta kosningamálið

Gylfi Magnússon, fyrrverandi viðskiptaráðherra, telur hugmynd Framsóknar, um að nýta svigrúm í samningum við kröfuhafa gömlu bankana, til að lækka skuldir heimilanna raunhæfa. Hins vegar sé féð ekki í hendi og því óráðlegt að lofa slíku.

Innlent
Fréttamynd

Skuldirnar leiðréttar yfir heitri kakósúpu

"Ég verð að segja að ég er ekki að kaupa þetta. Mér finnst persónulega tekið ansi stórt upp í sig þegar fólki eru gefnar miklar væntingar sem eru ekki í hendi, eins og sérfræðingar tjáðu sig um nýlega. Ég er á því að það sé betra að lofa minna og fara frekar í eitthvað sem er meira í hendi og raunhæfara,“ segir Guðmundur Ragnar Guðmundsson, eigandi Prentmets, um útskýringar frambjóðenda Framsóknarflokksins um skuldaniðurfellingar á komandi kjörtímabili.

Innlent
Fréttamynd

Allt veltur á Framsóknarflokknum

Kosningabaráttan hefur að miklu leyti snúist upp í það hvor flokkanna verður stærri; Framsóknar- eða Sjálfstæðisflokkur. Samstjórn þeirra er líklegasta stjórnarmynstrið og stærri flokkurinn fær forsætisráðherraembættið. Framsókn hefur frekar valmöguleika

Innlent
Fréttamynd

"Svaraðu já eða nei"

Kennarar í MR spurðu menntamálaráðherra beittra spurninga á hádegisfundi með VG í gær. Helst var rætt um lyf, samgöngumál, umhverfismál og mikla óánægju með menntamál. Fréttablaðið var á fundinum og lagði við hlustir.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkurinn aftur stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn er aftur orðinn stærsta stjórnmálaafl landsins samkvæmt nýjustu könnun sem MMR framkvæmdi á tímabilinu 17. til 18. apríl. Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með 27,5% fylgi, borið saman við 22,9% í síðustu mælingu.

Innlent
Fréttamynd

Hátt í sex þúsund greitt atkvæði utankjörfundar

Alls hafa 5775 kosið utankjörfundar á landinu öllu samkvæmt upplýsingum frá Bergþóru Sigmundsdóttur, yfirmanni utankjörfundaratkvæðagreiðslu, en það er mun meira en þegar kosið var til Alþingis árið 2009. Þá kusu 1207 utankjörfundar.

Innlent
Fréttamynd

Uppþornuð vatnaskil

Fyrsta hreina vinstristjórnin var álitin marka mikil tímamót í íslenskri stjórnmálasögu. Forystumenn hennar ætluðu sér að gjörbreyta samfélaginu en færðust kannski full mikið í fang. Efnahagsmálin urðu aðalatriðið í kjölfar hrunsins.

Innlent
Fréttamynd

Heilbrigðiskerfið í landinu hrundi víst

Starfsmenn LSH taka ekki undir orð oddvita Samfylkingarinnar um að velferðarkerfið hafi staðið af sér hrunið. Fréttablaðið heimsótti spítalann með frambjóðendum í gær og spjallaði við starfsmenn. Enginn vildi spyrja þingmenn spurninga.

Innlent
Fréttamynd

Þessir kæmust á þing

Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, kemst inn á þing samkvæmt nýjustu könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins og Sjálfstæðismenn bæta við sig þremur þingmönnum miðað við síðustu kosningar en Samfylkingin missir ellefu þingmenn og Vinstri græn níu.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig - Framsókn dalar

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig verulegu fylgi en Framsókn dalar samkvæmt nýrri könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Prófessor í stjórnmálafræði segir að útspil Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokks, um síðustu helgi hafi heppnast fullkomlega.

Innlent