Landsdómur

Fréttamynd

Landsdómur og hrun tefur sýningarhaldið

Þjóðmenningarhúsið mun í framtíðinni hýsa grunnsýningu sem lýsir íslenskum þjóðmenningararfi. Að sýningunni koma höfuðsöfnin tvö Listasafn Íslands og Þjóðminjasafn auk Stofnunar Árna Magnússonar. Þjóðminjasafn mun taka við rekstri hússins af mennta- og menningarmálaráðuneytinu þegar skipunartími Markúsar Arnar Antonssonar, forstöðumanns hússins, rennur út 1. júní 2013.

Innlent
Fréttamynd

Stöðvum málið á hendur Geir Haarde

Undanfarna mánuði hef ég dvalið í Þýskalandi og ekkert fylgst með því sem er að gerast heima á Íslandi. Ég les Der Spiegel (Spegilinn) vikulega og þannig fæ ég greinargóðar fréttir.

Skoðun
Fréttamynd

Að minnsta kosti fjórir þingmenn Samfylkingar vilja hætta við málið

Að minnsta kosti fjórir þingmenn Samfylkingarinnar styðja þingsályktunartillögu um að draga málshöfðun á hendur Geir Haarde fyrir landsdómi til baka. Tveir ráðherrar Vinstri grænna eru sagðir íhuga að ljá málinu hlutleysi sitt með því að sitja hjá. Gríðarleg ólga er vegna málsins í þinginu en afar ólíklegt er að málið komist á dagskrá. Þorbjörn Þórðarson.

Innlent
Fréttamynd

Vilja draga ákæru gegn Geir til baka

Þingsályktunartillaga um að skorað verði á saksóknara alþingis að láta málið gegn Geir H. Haarde, fyrir landsdómi, niður falla, verður lögð fram. Enn ríkir óvissa um hversu margir mæli fyrir tillögunni en þingmenn hafa rætt málið sín á milli í dag.

Innlent
Fréttamynd

Rætt um að draga málið gegn Geir til baka

Þingmenn á Alþingi hafa rætt þá hugmynd sín á milli í dag að draga landsdómsmálið gegn Geir Haarde til baka. Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, gerir málið að umtalsefni á fésbókarsíðu sinni "Heyrst hefur að hér í þinginu sé að koma fram tillaga um að draga landsdómsmálið gegn Geir Haarde til baka!,“ segir hún.

Innlent
Fréttamynd

Studdi ekki framlag til að halda áfram saksókn gegn Geir

Atli Gíslason alþingismaður studdi ekki 12 miljóna króna framlag til sérstaks saksóknara Alþingis svo hann gæti haldið áfram saksókninni gegn Geir H. Haarde fyrir Landsdómi. Í atkvæðagreiðslu um þennan lið eftir 2. umræðu um fjárlagafrumvarpið var Atli í hópi tólf þingmanna sem sátu hjá en hann var sem kunnugt er formaður þingmannanefndarinnar sem lagði til að Geir yrði ákærður.

Innlent
Fréttamynd

Geir H. Haarde kampakátur með niðurstöðu Hæstaréttar

"Ég er það auðvitað, þótt ég hafi alltaf talið mig vita að þessi löggjöf væri bæði rétt, nauðsynleg og lögleg,“ svarar Geir H. Haarde, þegar hann var spurðu í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag hvort hann væri ekki kampakátur með að neyðarlögin hefðu haldið í Hæstarétti í dag. Geir var forsætisráðherra þegar lögin voru samþykkt, en sama dag og þau voru lögð fyrir þingið hélt hann eftiminnilega ræðu í sjónvarpinu sem hefur oft verið nefnd. "Guð blessi Ísland ræðan“.

Innlent
Fréttamynd

Um stöðu mála fyrir Landsdómi

Með ályktun 28. september 2010 samþykkti Alþingi að höfða bæri sakamál fyrir Landsdómi á hendur fyrrum forsætisráðherra fyrir ætluð brot framin í embætti á tímabilinu frá febrúar 2008 og fram í októberbyrjun sama ár. Af því tilefni kom Landsdómur saman í fyrsta skipti. Saksóknari Alþingis gaf út ákæru á hendur ráðherra í maí sl. á grundvelli ályktunar þingsins. Ákærunni er skipt upp í tvo kafla. Í þeim fyrri er ráðherra gefin að sök alvarleg

Fastir pennar
Fréttamynd

Ekki vanur að sitja í réttarsal en það venst

Ákæra á hendur Geir Haarde er stórkostlega vanreifuð, sakborningur hefur enn ekki fengið að sjá öll málsgögn og saksóknari Alþingis er vanhæfur í málinu. Þetta er meðal þess sem verjandi Geirs sagði í morgun þegar frávísunarkrafa hans var tekin fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Frávísunarkrafa Geirs tekin fyrir í landsdómi

Landsdómur kemur saman nú fyrir hádegi þar sem frávísunarkrafa verjanda Geirs Haarde fyrrverandi forsætisráðherra verður tekin fyrir. Þetta er önnur frávísunarkrafan í málinu en í fyrra skiptið hafnaði landsdómur þeirri kröfu verjandans að vísa bæri málinu frá á grundvelli þess að dómurinn væri ekki rétt skipaður.

Innlent
Fréttamynd

Þegar á hólminn var komið

Helgina 4.-5. október 2008 stóðu Geir Haarde og samstarfsfólk hans í ríkisstjórn frammi fyrir einhverjum veigamestu ákvörðunum sem íslenskir stjórnmálamenn hafa staðið frammi fyrir frá stofnun lýðveldis á Íslandi.

Skoðun
Fréttamynd

Pólitísk réttarhöld

Í grein eftir Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing, sem birtist í Fréttablaðinu í dag fjallar hann um réttarhöldin yfir Geir H. Haarde og þá tilhneygingu manna að vilja að endurskrifa söguna.

Innlent
Fréttamynd

Himinlifandi að vera eini ráðherrann fyrir landsdómi

Geir H. Haarde segist vera himinlifandi yfir því að aðrir ráðherrar hafi ekki einnig verið dregnir fyrir landsdóm. Þetta kemur fram í viðtali sem Geir veitti AFP fréttaveitunni. Hann kveðst jafnframt hafa komið í veg fyrir að ekki fór eins fyrir Íslandi og Grikklandi.

Innlent
Fréttamynd

Dómskerfi nr. 2

Það fyrirkomulag sem viðhaft er við ákærur og dómsmál á hendur ráðherrum hérlendis og í nokkrum nágrannalanda virkar hvorki sérlega rökrétt né raunar sérlega geðslegt. Hvorki ákæruferlið né dómsferlið samræmast hugmyndum um hvernig best skuli staðið að slíkum málum innan réttarkerfisins. Betra væri að hafa eitt dómskerfi í landinu en tvö.

Fastir pennar
Fréttamynd

Nefndin bað ekki um landsdóm

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir Ögmund Jónasson innanríkisráðherra ekki þekkja niðurstöður Rannsóknarnefndar Alþingis varðandi Landsdómsmálið. Á Facebook-síðu sinni segir Ingibjörg að Ögmundur hafi sýnt fram á það í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Ingibjörg Sólrún setur enn ofan í við Ögmund

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra, ekki þekkja niðurstöður Rannsóknarnefndar Alþingis, og að hann hafi staðfest það í Fréttablaðinu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Landsdómur hafnar kröfu Geirs

Landsdómur hafnaði fyrir síðustu helgi kröfu Geirs H. Haarde þess efnis að átta þingkjörnir fulltrúar í dómnum vikju sæti við meðferð máls Alþingis á hendur honum.

Innlent
Fréttamynd

Landsdómur

Hafinn er málflutningur í máli fyrrverandi forsætisráðherra fyrir landsdómi. Forsaga þessa máls nær aftur til haustsins 2008 er Geir H. Haarde og aðrir fulltrúar þingflokka á Alþingi ákváðu að skipa rannsóknarnefnd Alþingis en skýrslu hennar var ætlað að liggja til grundvallar ályktun þingsins um hvort ráðherrar hefðu brotið lög um ráðherraábyrgð í aðdraganda hrunsins.

Skoðun