Sund

Fréttamynd

Ís­lands­met hjá ís­lensku karlasveitinni

Íslenska karlasveitin setti nýtt Íslandsmet í 4x100 metra fjórsundi á lokadegi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París í morgun. Sveitin synti á 3:42,35 og bætti gamla Íslandsmetið um 0,79 sekúndur.

Sport
Fréttamynd

Tveir Ís­lendingar bættu sinn besta tíma í morgun

Íslensku sundkapparnir héldu áfram á EM í sundi. Einar Margeir Ágústsson náði að bæta sitt persónulega met í 50 metra bringusundi og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir bætti persónulegt met í 50 metra skriðsundi.

Sport
Fréttamynd

„Mér líður eins og ofurkonu núna“

Sara Curtis er stærsta stjarna Evrópumeistaramótsins í sundi til þessa þegar hún setti tvívegis heimsmet á leiðinni til Evrópumeistaratitils í 50 metra baksundi.

Sport
Fréttamynd

Einar setti per­sónu­legt met á EM

Sundkappinn Einar Margeir Ágústsson bætti sig og setti annað persónulegt met á Evrópumeistaramótinu í 50 metra laug í París í morgun þegar hann synti 200 metra bringusund á 2:15.16. Þrír Íslendingar kepptu í undanrásum á þriðja degi mótsins.

Sport
Fréttamynd

„Ég er bara ó­geðs­lega sáttur með þetta“

Einar Margeir Ágústsson náði bestum árangri íslenska sundfólksins á fyrsta degi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París þegar hann bætti sinn besta tíma í 100 metra bringusundi. Átta Íslendingar kepptu á fyrsta degi mótsins.

Sport
Fréttamynd

„Mikil­vægast að þetta verði ekki eins og ein­hver hótelsundlaug á Tenerife“

Sviðsstjóri hjá Minjastofnun biður borgina um að flýta sér hægt áður en hún rífur niður áhorfendastúkuna í Laugardalslaug. Stúkan hafi mikið varðveislugildi út frá menningarsögu Íslands, en hann tekur þó fram að mannvirkið verði ekki endurbyggt nema því verði gefið nýtt hlutverk. Hann vill að Laugardalslaugin verði áfram skilgreind sem almenningsmannvirki fyrir borgarbúa, en verði ekki „eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“.

Innlent
Fréttamynd

Hefur á­hyggjur af smit­hættu í fargufum

Skortur er á því að almenn hreinlætisaðstaða sé við sumar fargufur og engin sem sótt hefur um leyfi fyrir fargufu hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands hefur uppfyllt slíka kröfu. Framkvæmdastjórinn hefur áhyggjur af mögulegri smithættu í gufunum.

Innlent
Fréttamynd

Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug

Tekin hefur verið ákvörðun um að loka fimm heitum pottum sem næst eru stúkunni við Laugardalslaug í Reykjavík. Jafnframt verður öll starfsemi færð úr stúkunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Innlent
Fréttamynd

Renni­brautinni lokað og ljósin skoðuð

Ljósastýringar í rennibraut Laugardalslaugar eru yfirfarnar reglulega en stærsta rennibrautin er lokuð sem stendur vegna viðhalds. Síðasta laugardag, þann 27. júní, var kallað eftir aðstoð lögreglu vegna þess að drengjahópur fór niður rennibrautina á eftir manni með ungt barn með þeim afleiðingum að þeir lentu saman. Maðurinn veittist þá að drengjunum og í kjölfarið fór einn þeirra á slysadeild í fylgd forráðamanna.

Innlent
Fréttamynd

Búinn að vera með mar­traðir af kvíða fyrir þessu

Sundmaðurinn öflugi Már Gunnarsson fór í aðgerð í gær til að laga gömul meiðsli eftir slys á æfingu. Þetta er í annað skiptið sem hann reynir að láta laga vandamálið og hann viðurkenndi að hann hafi kviðið mikið fyrir enda klúðraðist sams konar aðgerð fyrir nokkrum árum síðan,

Sport
Fréttamynd

Fresta opnun Sundhallar Reykja­víkur

Reykjavíkurborg frestar fyrirhugaðri enduropnun Sundhallar Reykjavíkur um nokkra daga. Viðhaldsvinna hefur staðið yfir síðustu vikur sem átti að ljúka um helgina og átti að opna laugina á mánudag. Í tilkynningu segir að vegna „ófyrirséðra atriða“ í búningsklefum verði ekki hægt að opna á mánudag.

Innlent
Fréttamynd

Nær­buxur í sundi land­lægt vanda­mál

Ungir menn velja í síauknum mæli nærbuxur og stuttbuxur til klæða í sundi fram yfir hinar hefðbundnu sundbuxur. Forstöðukona Grafarvogslaugar segir um mikið vandamál að ræða enda geta nærbuxurnar verið óhreinar. Fréttamaður kynnti sér þetta nýja tískufyrirbæri en það má sjá í spilaranum hér að neðan.

Innlent
Fréttamynd

Ætli sér ekki að banna hin­segin fánann

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og tilvonandi forseti borgarstjórnar, segir nýjan meirihluta ekki ætla að banna hinsegin fánann. Honum, og erlendum fánum, verði flaggað þegar tilefni sé til. Hún segir að utanríkismálum eigi að sinna í utanríkisráðuneytinu. Borgarfulltrúar eigi að vera með fókus á Reykjavík.

Innlent