Jólamatur

Eldað af ást: Matmikið andasalat sem er létt í maga
Eldað af ást er nýr matreiðsluþáttur hér á Vísi. Þáttastjórnandinn er matgæðingurinn Kristín Björk og önnur uppskriftin sem hún sýnir er andasalat sem er fullkomið eftir þungar hátíðarmáltíðir síðustu daga.

Jólamolar: Rækjukokteillinn hennar mömmu er lykilatriði í jólahaldinu
Helgi Ómarsson, ljósmyndari, skartgripahönnuður og hlaðvarpsstjórnandi er mikið jólabarn og heldur fast í sínar jólahefðir. Hann ver jólunum á Seyðisfirði og á erfitt með að velja sína uppáhalds jólamynd. Þær eru einfaldlega of margar.

Jólamolar: Er ekki íhaldssöm þegar kemur að jólunum
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, nýsköpunar- og iðnaðarráðherra eyðir jólunum á þinginu þar sem hún vinnur hörðum höndum að því að búa til nýtt ráðuneyti. Hún ætlar þó líka að njóta hátíðanna í faðmi fjölskyldu og vina. Þrátt fyrir að vera ekki mjög íhaldssöm þegar kemur að jólunum, á hún þó nokkrar hefðir eins og að kaupa furu, baka sörur með vinkonunum og fara á Jómfrúna í desember.

Jólamolar: Man alltaf eftir því þegar hann fékk trönur í jólagjöf
Bakarinn Jóhannes Felixson eða Jói Fel, hefur alltaf haft nóg að gera í desember. Árið í ár er engin undantekning þrátt fyrir að verkefnið sé af öðrum toga. En hann er á fullu að undirbúa opnun á nýjum veitingastað sínum, Felino, í listhúsinu í Laugardalnum.

Jólamolar: Eiginmanninum ofbauð þegar hún vildi hafa tvö jólatré
Samfélagsmiðlastjarnan og mannfræðingurinn Guðrún Veiga er eitt mesta jólabarn sem fyrirfinnst. Hún hlustar til dæmis á jólalög allan ársins hring og horfir á jólamyndir í júlí. Ein af hennar uppáhalds jólahefðum er að liggja í unaðslegri ofátsmóðu með bleikan Mackintosh mola að lesa góða bók.

Villibráð Matarkompanísins komin í búðir
Villibráðin fæst á Jólamarkaðnum í Hafnarfirði og í Hagkaup.

Jólakonfekt sem er tilvalið að setja í jólapakkann í ár
Í sérstakri jólaútgáfu af þættinum Ísland í dag útbjó Eva Laufey Kjaran ljúffengt jólakonfekt og æðislegan marengshring með súkkulaðirjóma og súkkulaðisósu.

Jólamolar: Viðhorfið til jólanna breyttist þegar hann fór að vinna á leikskóla
Skemmtikrafturinn og gleðigjafinn Hjálmar Örn Jóhannsson, sem meðal annars er þekktur sem hin skrautlega hvítvínskona, varð fyrst jólabarn þegar hann hóf störf á leikskóla fyrir níu árum síðan. Hann er með ýmsar skemmtilegar jólahefðir eins og að færa fyrrverandi tengdaforeldrum sínum fisk.

Marengshringur og jólakonfekt Evu Laufeyjar úr Ísland í dag
Okkar eigin Eva Laufey Kjaran er með jólabakstursþema í þættinum Ísland í dag í kvöld. Sýndi hún þar ótrúlega flottan hátíðar marengshring.

Jólamolar: Er ein af þeim fáu sem sendir ennþá jólakort
Það er óhætt að segja að dagskrárgerðarkonan Eva Laufey Kjaran sé ein af þeim sem bakar tvær ef ekki þrjár sortir fyrir jólin. Hún er mikið jólabarn og hefst undirbúningurinn snemma hjá henni. Hún gaf nýlega út sína fjórðu bók, Bakað með Evu, ásamt því að hafa verið að frumsýna aðra þáttaröð af Blindum bakstri síðasta sunnudag en fyrstu þættirnir verða í sérstökum hátíðarbúningi.

Einn vinsælasti jólamatur landsmanna
Hamborgarhryggurinn frá Ali tilheyrir íslenskum jólum.

Svona gerir þú piparkökuhúsið úr Blindum bakstri
Blindur bakstur fór af stað á sunnudag og fyrstu tveir þættirnir verða sérstakir jólaþættir. Í fyrri þættinum var bakað piparkökuhús og á næsta sunnudag kemur svo í ljós hvað keppendur þurfa að baka í seinni þættinum.

Jólamolar: Er ekki týpan sem skiptir gjöfum
Selma Björnsdóttir er einstaklega mikið jólabarn. Það er nóg að gera hjá henni í desember en fyrir utan almennan jólaundirbúning syngur hún á alls þrettán jólatónleikum ásamt því að stýra athöfnum hjá Siðmennt og leikstýra. Þá fer hún einnig með hlutverk í sjónvarpsþáttaröðinni Verbúðinni sem frumsýnd verður á RÚV á annan í jólum.

Jólamolar: Fræsihefill, ferðalög og frönskunámskeið á óskalistanum
Uppistandarinn, rithöfundurinn og kaffihúsaeigandinn Dóri DNA minnist þess með hlýhug þegar hann fékk Hyundai 166 mhz pentium tölvu í jólagjöf sem barn og er það ein af hans uppáhalds jólaminningum. Í dag þykir honum hins vegar lang skemmtilegast að upplifa jólin í gegnum börnin sín og skapa minningar með þeim.

Jólamolar: „Það er Jesúbarnið sem kemur, ekki Heilbrigðiseftirlitið“
Linda Ásgeirsdóttir og Hrefna Hallgrímsdóttir hafa glatt ófá börnin sem hinar litríku persónur Skoppa og Skrítla. Þeir sem horft hafa á Skoppu og Skrítlu vita að þær eru báðar mikil jólabörn og hafa til dæmis verið með jóladagatal á Stöð 2 og jólasýningu í Borgarleikhúsinu. En eru þær Linda og Hrefna jafn mikil jólabörn og vinkonurnar Skoppa og Skrítla?

Jólamolar: Ekkert verra en að vera þunnur á aðfangadag
Fjölmiðlamaðurinn Egill Ploder segir High School Musical DVD-disk vera eina eftirminnilegustu jólagjöf sem hann hefur fengið, þrátt fyrir að hann hafi fengið margar góðar gjafir í gegnum tíðina. Í ár óskar hann sér hins vegar einna helst ryksuguróbót, enda fátt leiðinlegra en að ryksuga að hans mati.

Jólamolar: Stjórnlaus þegar kemur að möndlugrautnum
Manuela Ósk Harðardóttir framkvæmdarstjóri Miss Universe Iceland og meðeigandi heilsumiðstöðvarinnar Even labs, segist alltaf byrja að skreyta fyrir jólin mjög snemma. Orðatiltækið „more is more“ sé hennar slagorð þegar kemur að jólaskreytingum, enda séu jólin hennar uppáhaldstími.

Hangikjötið má ekki klikka
Hangikjötið frá Kjarnafæði Norðlenska er fyrsta flokks hátíðarmatur.

Jólamolar: „Jólin eru hátíð, ekki árstíð!“
Brynja Dan, eigandi Extraloppunnar og varaþingmaður Framsóknarflokksins, hefur fengið margar skemmtilegar jólagjafir í gegnum tíðina. Henni er minnisstætt vandræðalegt atvik frá því að hún var unglingur og opnaði nærfatasett fyrir framan alla fjölskylduna eitt aðfangadagskvöldið.

Jólamolar: Setur leðurhanska á óskalistann á hverju ári
Rapparinn Emmsjé Gauti varð meira jólabarn eftir að hann eignaðist börn en hann hefur skapað sínar eigin jólahefðir með fjölskyldunni. Ein af hefðum Gauta eru jólatónleikarnir Jülevenner sem hafa skipað sér fastan sess í jólahaldi margra. Þar fær hann til sín frábæra gesti en í ár það þau Aron Can, Salka Sól, Steindi JR, Selma Björns og Herra Hnetusmjör sem munu hringja inn jólin með Gauta.