
Félagsmál

Undirbýr frekari flutninga opinberra stofnana út á land
Félags- og barnamálaráðherra hyggst flytja fleiri opinberar stofnanir út á land á næstunni.

Segir mikla angist og hræðslu hafa fylgt því að missa sjónina fyrirvaralaust
Svavar Guðmundsson missti sjónina á nokkrum dögum árið 2014 án nokkurs fyrirvara. Svavar var að kaupa sér hádegismat þegar hann hættir að sjá en kvöldið áður hafði hann verið í bumbubolta og fengið höfuðhögg.

Gengst við því að hafa spurt hvort maður í vanda væri skattgreiðandi
Starfsmaður fjarskiptamiðstöðvar lögreglunnar gengst við því að hafa spurt hvort einstaklingur, sem þurfti aðstoð í miðborg Reykjavíkur, liti út fyrir að vera „skattgreiðandi.“

Atvinnutekjur kvenna 1,8 milljónum krónum lægri en karla árið 2019
Framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands segir það mikið áhyggjuefni að meðallaun kvenna séu mun lægri en meðallaun karla enn þann dag í dag. Í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands kemur fram að munur á atvinnutekjum allra kvenna og karla árið 2019 voru 1,8 milljónir króna.

Ráðherrar vinni saman að afglæpun neysluskammta
Dómsmálaráðherra segir samhljóm milli sín og heilbrigðisráðherra um að ráðast í breytingar á fíkniefnalögum á næsta þingvetri.

Hreppaflutningar á 21. öldinni eru staðreynd
Grímur Atlason segir fordóma og mismunun samfélagsmein og það sé okkar allra að taka þar ábyrgð og breyta því.

Upplýsa þarf innflytjendur um rétt þeirra á vinnumarkaði við komuna til landsins
Upplýsa þarf innflytjendur um rétt þeirra á vinnumarkaði við komuna til landsins, að sögn doktors í mannfræði. Algengustu brot sem erlent starfsfólk í ferðaþjónustu verður fyrir eru vegna vangreiddra launa og brot á reglum um hvíldartíma og frídaga.

Ósátt með þau áform að þrír búsetukjarnar fyrir fatlað fólk verði í sama hverfi
Formaður Þroskahjálpar gagnrýnir áform Garðabæjar um að reisa tvo búsetukjarna fyrir fólk með fötlun í sama hverfinu. Mikilvægt sé að dreifa íbúðum fyrir fólk með fötlun svo það hafi val um búsetu.

Myndarbragur meirihlutans í Garðabæ þegar framtíðarsýnina vantar
Nýverið fór fram forkynning á staðsetningu tveggja íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Markmiðið er að koma framkvæmdum af stað sem allra fyrst vegna óviðunandi stöðu Garðabæjar gagnvart fötluðum einstaklingum og skorti á búsetuúrræðum sem þeim bjóðast.

Nýr þjónustukjarni fyrir fatlað fólk vígður á Akureyri
Þjónustukjarni fyrir fatlað fólk í Klettaborg á Akureyri var vígður í bænum í dag. Kjarninn var vígður af Höllu Björk Reynisdóttur forseta bæjarstjórnar Akureyrarbæjar og afhenti hún Karólínu Gunnarsdóttur sviðsstjóra búsetusviðs lyklana að húsinu.

Þarf meira fjármagn og mannskap ef auka á eldvarnareftirlit
Slökkviliðsstjóri segir slökkviliðið ekki í stakk búið til að taka út brunavarnir á heimilum fólks, líkt og velt var upp á fundi Velferðarnefndar í dag. Félagsmálaráðherra segir að skoða þurfi hvort hámark verði sett á lögheimilisskráningar á hvert heimili í kjölfar brunans við Bræðraborgarstíg.

Þolinmæði ráðherra gagnvart illri meðferð á verkafólki á þrotum
Ásmundur Einar Daðason barna- og félagsmálaráðherra segir óásættanlegt að fjöldi erlendra verkamanna búi við óviðunandi aðbúnað hér á landi.

Félagsmálaráðherra verði kallaður fyrir velferðarnefnd vegna aðbúnaðar erlends verkafólks
Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, sendi í dag Helgu Völu Helgadóttur, formanni Velferðarnefndar, beiðni um að Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra yrði kallaður fyrir nefnina til að fara yfir stöðu þeirra aðgerða sem áttu að tryggja aðbúnað verkafólks sem dvelur í húsnæði á vegum atvinnurekenda.

Akstursþjónusta fatlaðs fólks verður Pant akstur
Breytingar verða brátt gerðar á Akstursþjónustu fatlaðs fólks sem hefur verið undir merkjum Strætó undanfarin ár. Frá og með 1. júlí verður þjónustan aðskilin starfsemi Strætó og verður undir nýju nafni, útliti og skipulagi.

Sárafátæktarsjóður Rauða krossins lagður niður
Sárafátæktarsjóður Rauða krossins á Íslandi hefur verið lagður niður, og mun því ekki taka við umsóknum um fjárhagsaðstoð til einstaklinga í komandi framtíð. Þetta kemur fram í bréfi sem Rauði krossinn sendi og fréttastofa hefur undir höndum.

Inga biður fátækasta fólk landsins afsökunar
Inga Sæland, alþingismaður og formaður Flokks fólksins, bað fátækasta fólk Íslands afsökunar úr ræðustól í eldhúsdagsumræðum Alþingis í kvöld.

Umræða um smáhýsi lituð af miklu skilningsleysi
Áætlað er að um 350 einstaklingar sem búsettir eru í Reykjavík séu heimilislausir. Verkefnisstýra Frú Ragnheiðar segir gríðarlega mikilvægt að koma til móts við þá einstaklinga sem glíma við heimilisleysi og koma fólki í húsnæði en margir skjólstæðingar Frú Ragnheiðar eru í hópi heimilislausra.

Samgönguáætlun og smáhýsi fyrir heimilislausa til umræðu í Víglínunni
Í Víglínuna koma Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Svala Jóhannsdóttir, verkefnastýra Frú Ragnheiðar. Sigurður Ingi ræðir samgönguáætlun sem er til umræðu á Alþingi núna og Svala ræðir meðal annars staðsetningu smáhýsa fyrir heimilislausa í Reykjavík.

Segir staðsetningu smáhýsa í Hlíðum heppilega
Formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir staðsetningu smáhýsa sem reisa á í Hlíðahverfi heppilega. Hlustað hafi verið á athugasemdir íbúa og biður hann fólk um að líta í eigin barm þar sem heimilislaust fólk muni búa í öllum hverfum.

Ekki fleiri heimilisofbeldismál á borð lögreglu í einum mánuði frá 2015
Frá árinu 2015 hafa heimilisofbeldismál hér á landi aldrei verið fleiri í einum mánuði en nú í maí. Málin voru nítján prósent fleiri eftir sex mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra.

Fannst látinn þar sem reisa á smáhýsi í Hlíðahverfi
Íbúar hafa þungar áhyggjur af uppbyggingu smáhýsa í Hlíðahverfi. Í grenndinni eru nú þegar tvö félagsleg úrræði og eru foreldrar uggandi yfir lélegri umhirðu, en dæmi eru um að börn finni notaðar sprautunálar á víðavangi.

Nimbyismi
„Auðvitað þurfa allir að eiga heima einhverstaðar, en þetta fólk á ekki heima í mínu hverfi!“ Þetta er Nimbyismi, ég vil að eitthvað sé gert en bara not in my back yard eða upp á íslensku, bara ekki í mínum bakgarði.

Úthluta 360 milljónum úr Framkvæmdasjóði aldraðra
Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 360 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 360 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Auðvelda fyrstu kaup með hlutdeildarlánum
Félags- og barnamálaráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um hlutdeildarlán. Markmið frumvarpsins er að auðvelda tekju- og eignalitlum einstaklingum að eignast sína fyrstu íbúð

Þunglyndiseinkenni tvöfalt tíðari í heimahjúkrun en á öldrunarheimilum
Tíðni þunglyndiseinkenna hjá öldruðum er nær tvöfalt hærri á meðal þeirra sem fá heimahjúkrun en á öldrunarheimilum. Tíðni þunglyndislyfja á öldrunarheimilum er aftur á móti 55% samanborið við 32,% prósent í heimahjúkrun. Þetta leiðir ný rannsókn í ljós.

Foreldrar langveikra barna hafi ekki haft annarra kosta völ en að fara í verndarsóttkví
Guðrún Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri og fjölskyldufræðingur Einstakra barna, segir að foreldrar barna með fötlun sem og foreldrar langveikra barna hafi farið afar illa út úr kórónuveirufaraldrinum, bæði andlega og efnahagslega.

Þau vilja stýra þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis
Alls sóttu 37 manns stöðu framkvæmdastjóra þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis. Nýr framkvæmdastjóri mun taka við af Sigtryggi Jónssyni sem hefur látið af störfum vegna aldurs.

Forstjóri TR segir bilun í tölvukerfi hafa tafið greiðslur
Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingarstofnunar ríkisins kveðst ekki kannast við að hafa verið boðuð í fyrirtöku um fjárnám fyrir að hafa látið hjá líða að efna dómssátt við tvo öryrkja en viðurkennir drátt á greiðslum.

Tryggingastofnun stóð frammi fyrir fjárnámi
Fjárnám vofði yfir Tryggingastofnun í liðinni viku eftir langt ferli sem leystist ekki fyrr en forstjóri stofnunarinnar, Sigríður Lilly Baldursdóttir var boðuð til fyrirtöku hjá dómara.

Kerfi fyrir fólk en ekki fólk fyrir kerfi
Kerfið á að vera hannað fyrir fólk. Þessi setning er mikilvæg áminning fyrir okkur sem störfum í stjórnmálum.