Umhverfismál

Sprenging í verslun Íslendinga með notuð föt
Fleiri hundruð Íslendingar ákveða að selja föt sín á nytjamörkuðum í hverjum mánuði og slíkir markaðir spretta nú upp í stærstu verslunarmiðstöðvum landsins. Viðskiptavinirnir segja bæði budduna og umhverfisvitundina njóta góðs af.

Hundruð loftslagsaðgerðasinna handteknir um allan heim
Hundruð aðgerðarsinna, sem eru meðlimir í Extinction Rebellion hreyfingunni, voru handteknir á mótmælum sem fóru fram úti um allan heim.

Gefur lítið fyrir hugmyndir um umhverfisskatt á flugmiða
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gefur lítið fyrir hugmyndir um að leggja sérstakt umhverfisgjald á flugmiða.

Kristín Linda valin úr hópi 110 umsækjenda
Kristín Linda Árnadóttir hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, en hún hefur verið forstjóri Umhverfisstofnunar frá árinu 2008.

Segir ekki tilefni til hræðsluáróðurs um loftslagsvá
"Nú líður ekki sá dagur að ekki sé rætt um að hlýnun jarðar sé álíka ógn við mannkynið og kjarnorkustríð hefði orðið þegar kalda stríðið stóð sem hæst,“ skrifar Magnús Jónsson, veðurfræðingur og fyrrverandi veðurstofustjóri, í pistli sínum á Kjarnanum sem birtist fyrr í vikunni.

Sunnlenskt sorp flutt til útlanda
Sunnlenskt sorp er nú flutt til útlanda þar sem það er meðal annars notað til húshitunar í Hollandi og til rafmagnsframleiðslu í Álaborg í Danmörku.

Kvenfélagskonur gegn fatasóun
Kvenfélagskonur stöguðu og stoppuðu í gömul föt og jafnvel leðurhanska fyrir þá sem þess óskuðu í dag eða þurftu á aðstoð að halda.

Umhverfisáhrif eru hverfandi
Allar mælingar umhverfisvöktunar hjá kísilverksmiðjunni PCC á Bakka eru langt undir viðmiðunarmörkum. Þetta kom fram á fjölmennum íbúafundi á Húsavík í vikunni.

Gula Pressan: „Hvern djöfulinn hefur framtíðin gert fyrir okkur?“
Svo virðist sem grínsíða Pressunnar sálugu hafi haft forspárgildi svo um munar.

Barátta gegn hamfarahlýnun inn í alla stefnumótun
Alþýðusamband Íslands vill leggja fram og móta stefnu í umhverfismálum og taka þannig þátt í baráttu gegn hamfarahlýnun. Það verði gert með því að setja umhverfisáherslur í alla málaflokka, hvort sem litið er til atvinnumála, kjaramála eða húsnæðismála.

Kísilrykið lak út í læk og sjó
Það sem af er ári hafa 11 kvartanir borist Umhverfisstofnun vegna kísilverksmiðju PCC á Bakka.

Öfugsnúin umhverfisvernd
Umhverfisvernd er ekki það sama og umhverfisvernd. Hugtakið hefur verið útþynnt af þeim sem hafa meiri áhuga á sýndarmennsku en raunverulegri umhverfisvernd.

Örkin er efni í stórmynd
Ómar Ragnarsson hlaut fyrsta Græna lundann sem veittur er á RIFF. Við sama tækifæri opnaði Landvernd ljósmyndasýningu í Norræna húsinu í tilefni 50 ára afmælis hennar.

10 umhverfisvæn skref
Munum að allir geta gert eitthvað enginn getur gert allt. Allir umhverfisvænir kostir eru betri en engir!

Allt sem við heyrðum hreyfði við okkur
Tvíburasystkinin Ida Karólína Harris og Elís Frank Stephen Elís eru nýorðin 14 ára og hafa tekið þátt í loftslagsverkföllunum í miðborg Reykjavíkur síðan í mars.

Fyrsta skrefið í átt að því að skemmtiferðaskip geti stungið í samband í Sundahöfn
Bygging aðveitustöðvar sem þjónustað gæti farþegaskip í Sundahöfn er stórt fyrsta skref í átt að umhverfisvænni uppbyggingu á hafnarsvæðinu segir framkvæmdastjóri Veitna.

Hreinsun tefst við Elliðaárvatn
Hreinsun á yfirgefnum kofaskriflum og niðurníddum sumarhúsum við sunnanvert Elliðaárvatn mun tefjast.

Kvikmyndahátíð á Eyrarbakka í dag: Sýning á Litla Hrauni
Kvikmyndahátíðin Brim fer fram á Eyrarbakka í dag þar sem plast og skaðsemi þess verður í brennidepli.

Kunni að flokka rusl við lausn úr fangelsi
Fangelsið að Litla-Hrauni tekur fyrstu skref að umhverfisvænni starfsemi. Forstöðumaðurinn segir ýmsar áskoranir fylgja, bæði hvað varðar úrganginn, sem er að miklu leyti líkur spítalaúrgangi, og hugarfar þeirra sem sitja inni.

Tæpur helmingur evrópskra trjátegunda í útrýmingarhættu
Trén eru meðal annars í hættu vegna ýmissa athafna manna. Af þeim trjám sem eru hvergi til nema í Evrópu eru 58% í einhverri útrýmingarhættu.

Bjóða farþegum upp á að kolefnisjafna flugið
Hjá Icelandair verði um að ræða sérstaka þjónustusíðu þar sem farþegar geti greitt viðbótarframlag til að jafna kolefnisfótspor sitt.

Getum haft áhrif á hversu hratt og mikið sjávarmál hækkar
Allir jöklar eru að bráðna og yfirborð sjávar mun hækka meira á þessari öld en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri svartri skýrslu Sameinuðu þjóðanna um áhrif loftslagsbreytinga á höf og jökla.

Hvetja háskólanema til að mæta með eigin hnífapör í skólann
Stúdentaráð Háskóla Íslands hvetur nemendur í skólanum, sem eru á þrettánda þúsund, til þess að mæta með eigin hnífapör í skólann.

Verja 250 milljónum í að vakta jökla og súrnun sjávar
Hafrannsóknstofnun og Veðurstofan fá fjárveitung til að fylgjast betur með súrnun sjávar og hörfandi jöklum fram til ársins 2023.

Umhverfisvænt heimili Evu: Þrífur dömubindin og heimagerð hreinsiefni
Jörðin er að drukkna í rusli og við erum misdugleg að gera okkar þegar kemur að því hugsa um umhverfið.

Fimm dagar í september
Þjóðarleiðtogar heimsins eru nú staddir í New York þar sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fer fram.

Ráðherra vill aðgerðir til að vernda lundann
Umhverfisráðherra vill grípa til aðgerða vegna mikillar fækkunar lunda á undanförnum áratugum. Friðun eða verndun lundans hefur verið erfið í ljósi hlunnindaveiða en til stendur að endurskoða alla villidýralöggjöfina í vor.

Lofa nýjum aðgerðum gegn loftslagsvánni
Leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál hófst í gær í New York. Ríki og alþjóðafyrirtæki leggja fram nýjar skuldbindingar til aðgerða gegn hlýnun loftslags. Lofslagsmótmæli hafa farið fram í meira en 150 ríkjum.

Losun frá flugi jókst um fjórðung á einu ári
Samkvæmt gögnum Hagstofunnar jókst losun frá flugsamgöngum um 27% frá 2016 til 2017 og útlit er fyrir 5% aukningu til viðbótar milli 2017 og 2018.

Grænlensku veiðimennirnir lýsa átökunum við björninn
Grænlensku veiðimennirnir, sem Vísir sagði frá í vikunni, og lentu í átökum við hvítabjörn á svæðinu norðan Diskó-flóa, hafa nú lýst atburðinum nánar.