Viðskiptaþvinganir

Fréttamynd

Sprengjum og öxum beitt við heimili til að kúga út fé

Stjórnendum verktakafyrirtækis og fjölskyldum þeirra hefur verið hótað lífláti og öxum, bensín- og reyksprengjum hefur verið beitt við heimili þeirra. Stjórnendurnir segja handrukkara á bak við árásirnar og að þær megi rekja til deilna um uppgjör við landeldisfyrirtækið First Water.  Stjórnendur First Water vísa ásökunum til föðurhúsanna. Starfsmaður þeirra hefur einnig sætt hótunum. Lögregla lítur málið alvarlegum augum.

Innlent
Fréttamynd

„Rúss­land vill aug­ljós­lega stríð“

Kaja Kallas, yfirmaður utanríkis- og öryggismála Evrópusambandsins, telur ljóst að Rússar hafi ekki áhuga á að semja um frið í Úkraínu og segir nauðsynlegt að halda áfram að setja enn meiri þrýsting á Rússa með frekari viðskiptaþvingunum. Þá sé áhyggjuefni að evrópsk fyrirtæki leiti sum leiða til að komast hjá viðskiptaþvingunum og haldi áfram að eiga viðskipti við Rússa, þvert á reglur um viðskiptaþvinganir.

Erlent
Fréttamynd

Banda­ríkin muni semja

Seðlabankastjóri telur að stjórnvöld í Bandaríkjunum muni semja við helstu viðskiptaþjóðir sínar um tolla í stað þess að taka ákvarðanir um þá einhliða. Hlutabréfamarkaðir hafa verið eins og jójó síðustu daga í takt við ákvarðanir Bandaríkjaforseta.

Innlent
Fréttamynd

Mögu­lega leik­flétta og eða við­brögð við lækkunum

Sögulegar hækkanir hafa orðið á hlutabréfamörkuðum eftir að Bandaríkjaforseti ákvað að bíða með ofurtollahækkanir á öll lönd nema Kína í gær. . Hagfræðiprófessor telur að mögulega sé ákvörðunin hluti af fléttu forsetans eða viðbrögð við miklum lækkunum á öllum mörkuðum vestanhafs síðustu daga.

Viðskipti innlent