Erlend sakamál

Slóst við innbrotsþjóf og gaf honum svo að borða
Níræð kona vaknaði á dögunum við innbrotsþjóf sem sagðist ætla að skera hana. Hún slóst við innbrotsþjófinn og gaf honum svo að borða áður en hann lét sig hverfa.

Myrti ólétta kærustu sína
Hnefaleikakappinn Félix Verdejo Sánchez hefur verið dæmdur fyrir að fremja mannrán og myrða Keishla Rodríguez Ortiz, sem var ólétt þegar hún var myrt. Tæp tvö ár eru síðan lík Ortiz fannst í lóni í San Juan, höfuðborg Puerto Rico.

Sveik níræðan mann um hundruð milljóna
Peaches Stergo, 36 ára gömul kona frá Flórída ríki í Bandaríkjunum, hefur verið dæmd í fangelsi í rúm fjögur ár fyrir að hafa ævisparnaðinn af 87 ára gömlum manni sem lifði af helförina. Alls sveik Stergo rúmlega 2,8 milljónir dala af manninum, það samsvarar um 368 milljónum í íslenskum krónum.

Heuermann til rannsóknar vegna fjögurra morða í Atlantic City
Lögreglan í Bandaríkjunum er nú með það til rannsóknar hvort að Rex Heuermann hafi myrt fjórar konur í borginni Atlantic City í New Jersey árið 2006. Heuermann heimsótti borgina oft og fór á nektardansklúbba.

Kom að líki hinnar 16 ára Amber Gibson: Snerti líkið á óviðeigandi hátt og faldi það svo
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið fundinn sekur um að hafa snert lík hinnar sextán ára Amber Gibson á óviðeigandi hátt, eftir að hann kom að því, og í kjölfarið falið það. Bróðir stúlkunnar var á dögunum fundinn sekur um kynferðisbrot og morð á henni.

Sekta fólk sem tekur myndir af húsi Heuermann
Lögreglan í Nassau sýslu í New York hefur ákveðið að sekta þá sem stoppa og mynda hús Rex Hauermann sem grunaður er um að vera raðmorðingi. Sektin er 150 dollarar, eða 20 þúsund krónur.

Vill finna fórnarlömb fingralangra flugvallarstarfsmanna
Harpa Rós Júlíusdóttir hefur undanfarið reynt að koma upplýsingum til lögreglunnar á Tenerife frá Íslendingum sem hafa lent í því að munum sé stolið úr töskum þeirra á flugvellinum. Nú hefur hún fengið afhentan lista yfir hundruð muna sem lögreglan hefur haldlagt og leitar logandi ljósi að eigendum þeirra.

Greiðir átta milljarða til að komast hjá rannsókn vegna Epstein
Leon Black, bandarískur auðjöfur og stofnandi eins stærsta eignastýringafyrirtækis heims, hefur samþykkt að greiða yfirvöldum á Bandarísku Jómfrúaeyjum 8,2 milljarða króna gegn því að þau hætti rannsókn á tengslum hans við Jeffrey Epstein. Líkt og frægt er orðið braut Epstein kynferðislega á fjölda unglingsstúlkna um árabil.

Farsímagögn, Chevrolet Avalanche og pizzakassi reyndust lykillinn
Það er mögulegt að lögregla hefði getað handsamað raðmorðingjann Rex Heuermann miklu fyrr ef allar vísbendingar í málinu hefðu verið betur gaumgæfðar. Bifreið sem morðinginn ók og vitni tók eftir reyndist lykillinn að lausn málsins.

Telja sig hafa leyst áratuga gamalt morðmál
Rúmlega fjórir áratugir eru síðan Laura Kempton var myrt þegar hún var einungis 23 ára gömul. Málið hefur verið óleyst síðan þá en nú telja yfirvöld í New Hampshire í Bandaríkjunum sig vita hver það var sem myrti Kempton.

Systir Ásu Ellerup: „Við höfum ekki heyrt neitt frá henni“
Fjölskylda Ásu Ellerup, eiginkonu Rex Heuermann, hefur enga hugmynd um hver staðan er á henni þessa dagana eða hvar hún er niðurkomin. Þetta kemur fram í frétt á vef Daily Mail þar sem rætt er við Jóhönnu Ellerup, systur Ásu og mágkonu Heuermann.

Hadid handtekin í fríinu
Fyrirsætan Gigi Hadid var handtekin ásamt vinkonu sinni þegar þær mættu til Cayman-eyja á dögunum. Vinkonurnar ferðuðust með einkaflugvél og voru með í fórum sínum kannabis og áhöld til að neyta þess.

Sátt náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Beach
Sátt hefur náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Mallory Beach og annarra ungmenna sem voru um borð í bát í eigu Alex Murdaugh sem ekið var á brúarstólpa árið 2019. Murdaugh var nýlega fundinn sekur um að myrða eiginkonu sína og yngri son, Paul, sem var við stýrið á bátnum.

Leikkonu sem tældi konur í sértrúarsöfnuð sleppt úr fangelsi
Allison Mack, fyrrverandi leikkonu, sem tældi konur í meintan sjálfshjálparhóp, var sleppt úr fangelsi í Kaliforníu í Bandaríkjunum í vikunni. Hún hlaut dóm fyrir fjárkúgun en játaði að hafa hjálpað leiðtoga hópsins að finna konur sem hann misnotaði kynferðislega.

Dæmdur fyrir að stinga fjórtán ára stúlku til bana
Dómstóll í Þýskalandi hefur dæmt 27 ára karlmann í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa stungið fjórtán og þrettán ára stúlkur í þýska bænum Illerkirchberg á síðasta ári. Önnur stúlkan lést í árásinni sem skók þýskt samfélag.

Móðirin hafi myrt barnið sitt og stokkið frá borði
Harmleikurinn sem átti sér stað í Eystrasalti í síðustu viku var ekki slys samkvæmt danskri slysarannsóknarnefnd. Upphaflega var greint frá því að móðir hefði stokkið á eftir sjö ára syni sínum eftir að hann féll frá borði. Nú er hins vegar grunur um að hún hafi myrt barnið sitt.

Vopnavörðurinn sagður hafa verið með kókaín á setti
Saksóknarar í máli Hönnuh Gutierrez-Reed, sem ákærð hefur verið fyrir manndráp af gáleysi í tengslum við andlát kvikmyndatökumannsins Halynu Hutchins á tökustað kvikmyndarinnar Rust, segja hana hafa afhent ónefndu vitni lítinn poka af kókaíni daginn sem Hutchins lést.

Ekki ákærður vegna harmleiksins á tónleikunum
Rapparinn Travis Scott verður ekki ákærður fyrir aðkomu sína að því þegar tíu ungir tónleikagestir létust eftir troðning á tónlistarhátíðinni Astroworld, sem Scott hélt árið 2021.

Hlaut 24 ára dóm fyrir að láta myrða kollega sinn
Pólitískur ráðgjafi sem borgaði tveimur mönnum fimmtán þúsund Bandaríkjadali fyrir að myrða kollega sinn var dæmdur í 24 ára fangelsi í Bandaríkjunum í dag. Morðingjarnir tveir hlutu sextán og tuttugu ára dóma.

Dæmdur í ótímabundið fangelsi fyrir morðið á Miu
Hinn 38 ára gamli Thomas Thomsen sem fundinn var sekur í gær um morðið á Miu Skadhauge Stevn í Álaborg í Danmörku á síðasta ári og fyrir tilraun til nauðgunar og ósæmilega meðferð á líki hennar var í dag dæmdur í ótímabundið fangelsi. Um er að ræða dóm sem kveðinn er upp yfir föngum sem taldir eru sérstaklega hættulegir.

Dæmdur sekur fyrir morðið á Miu
Thomas Thomsen, 38 ára gamall karlmaður, hefur verið dæmdur sekur vegna morðsins á hinni 22 ára gömlu Miu Skadhauge Stevn í Álaborg í Danmörku á síðasta ári. Þá var hann fundinn sekur um tilraun til að nauðga henni og ósæmilega meðferð á líki hennar sem hann sagaði í sundur í 231 búta.

Handtekinn fyrir að myrða konu á tíræðisaldri, dóttur hennar og tengdason
Christopher Ferguson, bandarískur karlmaður á fimmtugsaldri, var handtekinn í gær eftir að hjón á áttræðisaldri, sem voru að halda upp á gullbrúðkaupsafmæli, fundust látin á heimili þeirra á sunnudag. Móðir konunnar, sem var 97 ára gömul fannst einnig látin.

Fyrsta sakfelling stjórnarmanns VW í útblásturshneykslinu
Rupert Stadler, fyrrverandi forstjóri bílaframleiðandans Audi, varð fyrsti stjórnarmaður Volkswagen til þess að hljóta dóm í útblásturshneykslinu sem skók þýskan bílaiðnað þegar hann var fundinn sekur um svik í dag. Hann hlaut skilorðbundinn fangelsisdóm og dæmdur til að greiða háa sekt.

Skildi árs gamla dóttur eftir eina heima og fór í tíu daga frí
Móðir sem býr í borginni Cleveland í Ohio ríki í Bandaríkjunum hefur verið ákærð fyrir morð á dóttur sinni. Hún er sögð hafa farið í tíu daga frí og skilið dóttur sína, sem var sextán mánaða gömul, eftir eina heima á meðan með þeim afleiðingum að hún lést.

Húsleit hjá skipuleggjendum Ólympíuleikanna í París
Franska lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum undirbúningsnefndar Ólympíuleikanna í París í dag. Húsleitin er sögð tengjast rannsóknum á meintum fjárdrætti og mismunun á verktökum.

Stal líkum barna sem fæddust andvana
Alríkissaksóknarar í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum segja umsjónarmann líkhúss læknadeildar Harvard skólans hafa selt líkamsparta líka sem gefin voru skólanum. Hann er sakaður um að hafa leyft kaupendum að koma í líkhúsið og velja sér líkamsparta til að kaupa en kaupendur hans og aðrir hafa verið ákærðir vegna málsins.

Vopnavörðurinn sagður hafa verið þunnur
Saksóknarar í máli Hönnuh Gutierrez-Reed, sem ákærð hefur verið fyrir manndráp af gáleysi í tengslum við andlát kvikmyndatökumannsins Halynu Hutchins á tökustað kvikmyndarinnar Rust, segja hana að öllum líkindum hafa verið þunna, þegar hún hlóð leikmyndabyssu með venjulegri byssukúlu.

Þrír drepnir og reynt að keyra fólk niður með sendibíl í Nottingham
Rúmlega þrítugur karlmaður er í haldi lögreglunnar í Nottingham á Englandi grunaður um morð eftir að þrír fundust látnir í miðborginni í nótt. Þrír til viðbótar eru á sjúkrahúsi eftir að reynt var að aka þá niður. Lögregla lýsir atvikinu sem „hryllilegu og sorglegu“.

Kaczynski sagður hafa svipt sig lífi í fangelsinu
Bandaríski hryðjuverkamaðurinn Ted Kaczynski, kallaður „Unabomber“ er sagður hafa svipt sig lífi í fangelsi um helgina. Kaczynski var með krabbamein á lokastigum og var 81 árs gamall. Hann hafði áður reynt að fyrirfara sér í fangelsi.

Kathleen Folbigg náðuð og sleppt eftir 20 ár í fangelsi
Kathleen Folbigg hefur verið náðuð og sleppt eftir 20 ár í fangelsi. Hún var dæmd í 25 ára fangelsi árið 2003 fyrir að myrða þrjú barna sinna og valda dauða þess fjórða.