Verðlag
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 31 ›
Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2 prósentustig í maí. Hún stendur nú í 627,3 stigum og hefur hækkað um 6,2 prósent á undanförnum tólf mánuðum. Viðskipti innlent 30.5.2024 10:09
Hægir á verðhækkunum matvöru Verðbólga í matvöruverslunum fer minnkandi það sem af er ári. Til marks um það hækkaði verðlag matvöru um 1,2 prósent milli mánaða, samanborið við 12,3 prósent árshækkun matvöruverð í maí á síðasta ári. Neytendur 23.5.2024 22:40
Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Blikur eru á lofti þegar kemur að bókunum ferðamanna á hótelgistingu hér á landi í sumar. Færri bókanir voru í apríl heldur en verið hefur. Formaður Félags fyrirtækja í hótel og gistiþjónustu segir Ísland dýrt og það sé farið að hafa áhrif. Viðskipti innlent 22.5.2024 16:39
Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Gjaldskrár Reykjavíkurborgar vegna þjónustu við börn og barnafjölskyldur verða lækkaðar að jafnaði um tvö prósent frá og með fyrsta júní næstkomandi. Hækkanir frá síðustu áramótum verði dregnar til baka. Aðgerðin er liður í að liðka fyrir gerð kjarasamninga. Innlent 8.5.2024 21:49
Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) telur ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum vera óskiljanlega. Ákvörðunin gangi þvert á fyrri rökstuðning nefndarinnar og það sé mikið áhyggjuefni fyrir hagkerfið að þeir standi óbreyttir. Innlent 8.5.2024 15:57
Aðgerðir til að liðka fyrir kjarasamningum hafa takmörkuð áhrif á verðbólgu Áhrif aðgerða ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir kjarasamningum fyrir stóran hluta vinnumarkaðarins eru takmörkuð á hagvöxt og verðbólgu, sagði aðalhagfræðingur Seðlabankans á fundi peningastefnunefndar í morgun. Seðlabankastjóri nefndi að hætta væri á að verðbólga verði treg til að fara niður í fjögur til fimm prósent. Innherji 8.5.2024 14:23
Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Miklar verðbólguvæntingar og áframhaldandi spenna í hagkerfinu eru aðalástæður þess að Seðlabankinn lækkar ekki meginvexti sína. Seðlabankastjóri segir algerlega nauðsynlegt að ná verðbólgu niður til að uppfylla forsendur kjarasamninga. Viðskipti innlent 8.5.2024 12:11
„Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir ákvörðun Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum vera vonbrigði en ekki koma á óvart. Hann telur að ef ekkert breytist þurfi fólk að rísa upp eins og var gert í búsáhaldabyltingunni. Innlent 8.5.2024 11:22
Hægir enn á hagvexti og auknar líkur á að núverandi raunvaxtastig sé „hæfilegt“ Horfur eru á að hagvöxtur verði umtalsvert minni í ár en Seðlabankinn gerði áður ráð fyrir samhliða því að hægt hefur nokkuð á vexti innlendrar eftirspurnar. Peningastefnunefnd hefur ákveðið halda vöxtum bankans óbreyttum fimmta fundinn í röð, sem er í samræmi við spár allra greinenda og markaðsaðila, og telur núna meiri líkur en áður að aðhaldsstigið dugi til að ná verðbólgunni niður í markmið. Innherji 8.5.2024 09:28
Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25 prósent. Viðskipti innlent 8.5.2024 08:31
Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Stýrivextir verða ekki lækkaðir fyrr en undir lok árs og verðbólga mælist yfir markmiðum seðlabankans næstu tvö árin samkvæmt nýrri Hagspá Landsbankans. Hagfræðingur telur að uppkaup á húsnæði Grindvíkinga hafi talsverð áhrif á verðbólgu næstu mánuða. Viðskipti innlent 29.4.2024 11:45
Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Verðbólgan hefur náð hámarki en mun hjaðna hægt og ekki fara niður fyrir efri vikmörk Seðlabanka Íslands fyrr en árið 2026. Þá verða stýrivextir ekki lækkaðir fyrr en á síðasta ársfjórðungi þessa árs. Viðskipti innlent 29.4.2024 09:12
Léttir fyrir markaðinn en „erfiði kaflinn“ við að ná niður verðbólgu að hefjast Það var léttir fyrir skuldabréfamarkaðinn að sjá mælda verðbólgu í apríl í lægri mörkum væntinga, segir fjárfestingastjóri, og verðbólguálag lækkaði um 0,15 til 0,2 prósentustig. Sérfræðingar telja að stýrivextir Seðlabankans verði ekki lækkaðir í maí en líkur hafi aukist á að þeir lækki í ágúst. Erfiði kaflinn í baráttunni við verðbólguna sé fram undan. „Við þurfum því að sjá meiri hjöðnun verðbólgu til að vextir geti lækkað eitthvað að ráði,“ að mati sjóðstjóra. Innherji 24.4.2024 16:14
Árangur gegn verðbólgu Ríkisstjórnin hefur einsett sér það markmið að vinna bug á verðbólgunni og skapa skilyrði til lækkunar vaxta. Fréttir morgunsins sýna að við séum á réttri leið: Verðbólga minnkaði úr 6,8% í 6% nú í apríl og hefur ekki verið minni í rúmlega tvö ár. Skoðun 24.4.2024 15:01
Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Formaður Starfsgreinasambandsins segir Seðlabankann ekki geta annað en lækkað vexti um að minnsta kosti hálft prósentustig nú þegar verðbólga mælist sex prósent. Verkalýðshreyfingin hafi farið að tilmælum bankans um hógværa kjarasamninga og nú væri komið að Seðlabankanum. Innlent 24.4.2024 11:46
Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55 prósent á milli mars og apríl. Verðbólga undanfarinna tólf mánaða mælist nú sex prósent og heldur áfram að hjaðna. Viðskipti innlent 24.4.2024 09:18
Bankastjóri: Vanskil hjá fyrirtækjum aukast og raunvaxtastig er of hátt Vanskil fyrirtækja vaxa frá mánuði til mánaðar. Bankastjóri Arion banka segir að raunvaxtastig sé orðið of hátt og óttast að fyrirtæki verði nauðbeygð að segja upp starfsfólki. Fyrir vikið gæti atvinnuleysi aukist. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands þurfi að taka tillit til þess við vaxtaákvarðanir að áhrif þeirra komi ekki fram að fullu fyrr en eftir 18 mánuði. Innherji 22.4.2024 10:25
Óttast að stýrivextir lækki seinna vegna lítils aðhalds í fjármálaætlun Við fyrstu sýn er ekki hægt að segja að tiltrú fjárfesta á að ríkið sé að styðja við peningastefnu Seðlabankans muni aukast við þessa fjármálaáætlun, segir sjóðstjóri skuldabréfa sem telur að það gæti farið svo beðið verði með að lækka stýrivexti fram á næsta ár í ljósi þess hve lítið aðhald er í ríkisfjármálum. Innherji 17.4.2024 14:01
Fresta gildistöku kjarabóta til öryrkja til að slá á þenslu Ein af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að slá á þenslu í efnahagslífinu er að fresta gildistöku væntanlegra laga um gagngerar breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Þetta sparar ríkissjóði um 10 milljarða á næsta ári. Varaformaður Öryrkjabandalagsins segir ljóst að ekki væri hægt að rekja þensluna til öryrkja. Innlent 17.4.2024 12:12
Verðhækkanir á húsnæði framundan Byggja þarf helmingi meira en nú er gert til að mæta húsnæðisþörf og hagfræðingur býst við miklum verðhækkunum á næstunni vegna þessa. Háir stýrivextir hafa hægt á uppbyggingu og samdráttur í framkvæmdum á milli ára nemur þriðjungi. Innlent 16.4.2024 20:30
Áframhaldandi hallarekstur og vantrauststillaga Engar tillögur eru um niðurskurð til að slá á þenslu í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára sem lögð var fram í dag. Þess í stað er talað um að hægja á útgjöldum, hagræðingu í rekstri og mögulega sölu eigna. Innlent 16.4.2024 19:29
Óvenjumiklar sveiflur í neysluvenjum viðskiptavina Domino's Árið 2023 í rekstri Domino‘s litaðist af óvenjumiklum sveiflum í neysluvenjum fólks og krefjandi rekstrarumhverfis. „Það er ljóst að hækkun bæði verðbólgu og stýrivaxta hafði þau áhrif að viðskiptavinir leituðu í auknum mæli í ódýrari kosti á matseðli,” segir forstjóri Domino‘s. Innherji 16.4.2024 14:56
Enginn niðurskurður í síðustu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar Gert er ráð fyrir áframhaldandi halla á rekstri ríkissjóðs á næstu árum samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Fjármálaráðherra segir mikilvægt að ná jafnvægi í ríkisfjármálum í stað þess að taka dýfur með miklum niðurskurði. Innlent 16.4.2024 11:46
Spáir því að vextir haldist áfram háir þrátt fyrir „hóflega“ kjarasamninga Þrátt fyrir að heldur sé að draga úr þenslu í hagkerfinu er ólíklegt að „hóflegir“ kjarasamningar muni stuðla að því að hraðar dragi úr verðbólgu, að mati Hagfræðistofnunar, sem spáir því að húsnæðisverð muni hækka um liðlega tíu prósent í ár. Gert er ráð fyrir því að meginvextir Seðlabankans muni haldast áfram háir, jafnvel hækka frekar, sem skýrist einkum af miklum umsvifum í ferðaþjónustu. Innherji 12.4.2024 11:49
Spá því að verðbólga hjaðni Ársverðbólga mun hjaðna á ný í apríl og á næstu fjórðungum eftir nokkuð óvænta hækkun síðasta mánaðar, þessu spáir Íslandsbanki í verðbólguspá sinni Viðskipti innlent 12.4.2024 11:27
Heitt hagkerfi heldur innlendu matvælaverði upp en það lækkar erlendis Verðbólga alþjóðlega í matvælum hefur farið lækkandi og er á svipuðum slóðum og áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Minni verðhækkanir á matvælum í Evrópu hefur verið fleytt áfram til íslenskra neytenda en innlend matvæli hafa hækkað umtalsvert. Hérlendis er nefnilega enn eftirspurnarþrýstingur, segja hagfræðingar. Innherji 11.4.2024 14:32
Eðlilegt að bankarnir taki þátt í að fjármagna gjaldeyrisforðann Seðlabankinn hefur skikkað viðskiptabankanna til að auka vaxtalausar innistæður sínar hjá Seðlabankanum til að auka traust á peningastefnunni. Þetta vinnur gegn tapi Seðlabankans vegna neikvæðs vaxtamunar á tekjum hans og gjöldum. Innlent 4.4.2024 19:30
Seðlabankinn dregur úr útlánagetu bankanna Ákvörðun Seðlabankans um að auka bindiskyldu bankanna dregur úr peningamagni í umferð og getu bankanna til útlána. Seðlabankinn setur aukna bindiskyldu í beint samhengi við kostnaðinn við að eiga mikinn gjaldeyrisforða. Innlent 4.4.2024 11:40
Enn ósamið við tugi þúsunda opinberra starfsmanna og samningar lausir Kjarasamningar við aðildarfélög rúmlega fjörutíu þúsund opinberra starfsmanna runnu út nú um mánaðamótin. Formaður BSRB segir viðræðum um nýja samninga miða ágætlega en helst væri tekist á um jöfnun launa á almenna- og opinbera vinnumarkaðnum. Innlent 2.4.2024 11:50
Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Verð á súkkulaði hefur víða hækkað miðað við janúarmánuð, samkvæmt niðurstöðum verðlagseftirlits ASÍ. Verð á súkkulaði frá Nóa Síríus hefur hækkað mest, en vörur frá Freyju hafa hækkað minnst í verði. Sumar þeirra hafa raunar lækkað í verði á tímabilinu. Neytendur 26.3.2024 17:41