Innlent

Fréttamynd

Falsaðir peningaseðlar í umferð á Akranesi

Falsaðir fimm hundruð króna seðlar eru í umferð á Akranesi og leggur lögreglan mikla áherslu á að finna falsarann. Tveir falsaðir seðlar hafa komið fram í útibúi KB bankann og þrír fundust við uppgjör eftir dansleik. Að sögn lögreglu eru seðlarnir ekki vandaðir, þegar betur er að gáð.

Innlent
Fréttamynd

Fjölmargir fara á mis við vaxtabætur

Fjölmargar fjölskyldur, sem eiga von á umtalsverðum vaxtabótum eins og í fyrra, og miða jafnvel einhverjar greiðslur við það, fá ekki krónu þegar álagningarseðlarnir berast í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Hundaólar sem gefa rafstuð

Hægt er að gefa hundum rafstuð með þar til gerðum hálsólum sem verslun í Reykjavík hefur til sölu. Löglegt er að flytja ólarnar inn og selja, en ekki að nota þær.

Innlent
Fréttamynd

Atvinna, fjölskyldu- og skipulagsmál í forgrunni

L-listinn, listi fólksins sem býður fram í 3. sinn í sveitarstjórnarkosningunum 27. maí næstkomandi kynnti stefnuskrá sína í morgun undir yfirskriftinni "Afl fyrir Akureyri til 2010". Þar er áherslan meðal annars lögð á fjölskylduvænni bæ, eflingu skóla, fría leikskóla og almenningssamgöngur og þá vill L-listinn að bæjarstjóri Akureyrar verði ráðinn á faglegum forsendum.

Innlent
Fréttamynd

Þórólfur Árnason ráðinn forstjóri Skýrr

Þórólfur Árnason hefur verið ráðinn í starf forstjóra Skýrr hf. Skýrr hf., sem er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði upplýsingatækni með 200 starfsmenn, er dótturfélag Kögunar hf. en það er í meirihlutaeigu Dagsbrúnar hf. EJS er dótturfélag Skýrr hf.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þórólfur Árnason ráðinn forstjóri Skýrr hf.

Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri hefur verið ráðinn í starf forstjóra Skýrr hf. Þórólfur er vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands og lauk framhaldsnámi í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Højskole í Kaupmannahöfn. Þórólfur hefur víðtæka reynslu af markaðsmálum og stjórnun.

Innlent
Fréttamynd

Einkaneysla dregst saman

Fjármálaráðuneytið gerir í nýrri spá sinni, ráð fyrir minni aukningu einkaneyslu í ár og á næsta ári, en ráðuneytið spáði í janúar. Aukningin í ár verður um það bil 3%, en var hátt í 13% í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

5,5 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs

Vísitala neysluverðs hækkaði um 5,5, prósent frá apríl 2005 til jafnlengdar á þessu ári. Verðbólga hefur einkum aukist síðustu mánuði vegna mikilla hækkana á eigin húsnæði og eldsneytisverði, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,4 prósent.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skilar álitsgerð um tónlistarhúsið í dag

Ríkisendurskoðandi skilar í dag fjárlaganefnd Alþingis álitsgerð um heimild fjármálaráðherra til að greiða umsaminn hlut ríkisins í tónlistarhúsinu, sem á að rísa við Reykjavíkurhöfn, og mun þar véfengja heimild stjórnvalda til framkvæmdanna, að því er Fréttablaðið telur sig hafa heimildir fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Leita peningafalsara á Akranesi

Falsaðir fimm hundruð króna seðlar eru í umferð á Akranesi og leggur lögreglan mikla áherslu á að finna falsarann. Tveir falsaðir seðlar hafa komið fram í útibúi KB banka og þrír fundust við uppgjör eftir dansleik.

Innlent
Fréttamynd

Þúsundir missa allar vaxtabætur sínar

Margir eiga eftir að fá óvæntan fjárhagslegan skell þegar álagningarseðlarnir berast í sumar, því þúsundir heimila munu missa allar vaxtabætur vegna hækkunar húsnæðisverðs. Þetta kom fram í máli Atla Gíslasonar þingmanns Vinstri grænna á Alþingi í gær.

Innlent
Fréttamynd

Hálfur annar milljarður í slökkviliðið

Það kostar ríkissjóð tæpan einn og hálfan milljarð króna að yfirtaka rekstur slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í umsögn fjármálaráðuneytisins um flutning slökkviliðsins undir flugvallarstjórann á Keflavíkurflugvelli.

Innlent
Fréttamynd

Heimsækir keppnislöndin

Silvía Night heldur af landi brott í dag til að kynna Euro­vision-lagið sitt, Congratulations. "Þegar fólk vissi að ég ætlaði að keppa í Eurovision varð það svo yfirfullt af eftirvæntingu. Það getur ekki beðið svo ég ákvað að fara út og minnka spennuna svolítið," sagði Silvía fyrir ferðina í gær.

Innlent
Fréttamynd

Íslensk stjórnvöld ættu að skammast sín

Íslensk stjórnvöld ættu að sjá sig um hönd, jafnvel skammast sín fyrir hvernig staðið hefur verið að framkvæmdum við álverið á Reyðarfirði. Þetta segir Hjörleifur Guttormsson sem gagnrýnir harðlega frummatsskýrslu Alcoa um umhverfisáhrif frá álverinu og framgang stjórnvalda í þeim efnum.

Innlent
Fréttamynd

Krefjast þess að verðhækkanir verði dregnar til baka

Neytendasamtökin hafa sent stórri ferðaskrifstofu bréf þar sem þau krefjast þess að ákvörðun þeirra um verðhækkun á pakkaferðum skrifstofunnar verði dregin til baka. Á heimasíðu Neytendasamtakanna segja samtökin að ferðaskrifstofan hafi sent mörgum neytendum sem greitt hafa svonefnt staðfestingagjald bréf þar sem þeim er tilkynnt um að verð ferðanna hafi verið hækkað eða verði hækkað vegna gengisbreytinga að undanförnu.

Innlent
Fréttamynd

Þingfundur stendur enn

Þingfundur stendur enn á Alþingi en hann hófst í dag laust eftir hádegi. Verið er að ræða breytingar á lögum um almannatryggingar vegna uppsagnar sjálfstætt starfandi sérfræðinga í hjartalækningum á samningi við ríkið.

Innlent
Fréttamynd

Sumarbústöðum fjölgar um ríflega þriðjung á átta árum

Sumarbústöðum í landinu hefur fjölgað um rúman þriðjung í landinu frá árinu 1997. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Í tölum frá Fasteignamati ríkisins kemur í ljós að 7617 sumarbústaðir voru í landinu árið 1997.

Innlent
Fréttamynd

Í-listinn fengi hreinan meirihluta

Í-listinn, sameiginlegt framboð Samfylkingarinnar, Vinstri - grænna, Frjálslyndra og óháðra á Ísafirði, næði hreinum meirihluta í bæjarstjórn ef kosið yrði nú. Þetta kemur í ljós í nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir NFS. Átta ára valdatíð sjálfstæðismanna og framsóknarmanna virðist á enda samkvæmt þessu.

Innlent
Fréttamynd

6 tonna steypuplata féll á starfsmann Ístaks

Það má með sanni segja að starfsmaður Ístaks á Keflavíkurflugvelli hafi ekki verið feigur þegar að sex tonna steypuplata féll á hann um klukkan fjögur í dag. Verið var að setja gólf í eitt flugskýlið þegar að steypuplatan hrundi ofan á manninn og brotnaði og var í fyrstu talið að um mjög alvarlegt vinnuslys væri að ræða

Innlent
Fréttamynd

Segir ummæli formanns KSÍ lykta af rangstöðu

Verkefnisstjóri Biskupsstofu segir þau ummæli formanns KSÍ, að það veki furðu að vændi á HM sé í brennidepli hjá kirkjunnar mönnum, lykta af rangstöðu. Að hans mati á Íþróttahreyfingin, líkt og kirkjan, að standa vörð um velsæmi

Innlent
Fréttamynd

Kjósa milli þriggja nafna á Ströndum

Heimabyggð, Strandabyggð, Strandahreppur og Sveitarfélagið Standir eru þær tillögur að nýju nafni á sameinað sveitarfélag Broddanes- og Hólmavíkurhreppa sem samstarfsnefnd um sameiningu hefur sent til umsagnar til örnefnanefndar. Þetta kemur fram á vefnum Strandir.is.

Innlent
Fréttamynd

Allir viðskiptabankarnir skiluðu methagnaði

Viðskiptabankarnir þrír skiluðu allir methagnaði á fyrstu þremur mánuðum ársins. Samtals nemur hagnaðurinn rúmlega fjörutíu milljörðum króna. Ef Straumur-Burðarás er tekinn inn í dæmið er fjórða metið fallið.

Innlent
Fréttamynd

Kynna skýrslu um íslenskt efnahagslíf í New York

Viðskiptaráð Íslands ætlar á morgun að bregðast við gangrýnisröddum innan lands sem utan og kynna skýrslu um íslenskt efnahagslíf sem Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, hefur unnið í samvinnu við einn virtasta hagfræðing í heimi á sviði fjármálastjórnar og fjármálastöðugleika. Skýrslan verðir kynnt fyrir bandarískum fjölmiðlum og fjármálamönnum í New York og er enginn kattarþvottur fyrir íslenskt efnahagslíf segir forstöðumaður Hagfræðistofnunar.

Innlent
Fréttamynd

Olíufélagið hækkar bensínverð

Olíufélagið hækkaði verð á bensíni í dag. Eftir hækkunina verður sjálfsafgreiðsluverð á bensínstöðvum félagsins á höfuðborgarsvæðinu tæpar 128 krónur. Á heimasíðu félagsins segir að ástæðan sé hækkandi heimsmarkaðsverð.

Innlent
Fréttamynd

Stúlkan sem saknað var fundin

Lögreglan á Selfossi lýsti í morgunn eftir fjórtán ára stúlku sem hvarf af heimili sínu á sunnudag. Að sögn lögreglu fannst stúlkan nú fyrir skömmu í heimahúsi í Reykjavík heil á húfi.

Innlent