Íshokkí

Fréttamynd

Halló boltafjörðurinn Hafnar­fjörður

Nú hefur Hafnarfjörður kynnt með stolti að til standi að byggja nýjan golfvöll í Hafnarfirði, sem eru að sjálfsögðu frábærar fréttir fyrir þá fjöldamörgu iðkendur sem stunda þá íþrótt. Hins vegar er tölfræðin fyrir þá íþrótt frekar sláandi fyrir okkur, sem berjumst fyrir öðrum íþróttum, en hvergi í heiminum, já öllum heiminum, eru fleiri golfvellir miðað við höfðatölu en á Íslandi eða sirka 5300 manns á hvern völl.

Skoðun
Fréttamynd

„Besta tap ævi minnar“

Það er ekki oft sem að íþróttafólk fagnar eftir að hafa tapað en það gerðu Slóvakar svo sannarlega eftir 5-3 tap gegn Svíum í íshokkí karla á Vetrarólympíuleikunum í gær.

Sport
Fréttamynd

Gómaður á ÓL eftir sex­tán ár á flótta

Maður á fimmtugsaldri frá Slóvakíu ætlaði sér að horfa á íshokkíleik Slóvakíu og Finnlands á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu en var handtekinn og fluttur í fangaklefa. Hann hafði verið sextán ár á flótta.

Sport
Fréttamynd

Mynduðu blátt P og minntust Pat­reks Freys

Haldinn var blár dagur í Borgarholtsskóla í dag til minningar um Patrek Frey Sveinsson sem lést í bílslysi á Miklubraut í síðustu viku. Seldar voru bláar vöfflur til styrktar fjölskyldu hans, nemendur og starfsfólk mættu í bláu og mynduðu stórt P á bílastæði skólans.

Lífið
Fréttamynd

Mínútuþögn á minningarleik um Pat­rek Frey

Mínútuþögn var í upphafi sérstaks íshokkíleiks í kvöld sem er spilaður til minningar um Patrek Frey Sveinsson, sautján ára dreng sem lést í bílslysi á Miklubraut í síðustu viku. Leikurinn hófst klukkan 19.45 í Skautahöllinni í Laugardal og var húsfyllir í höllinni. 

Lífið
Fréttamynd

Bæði lið í treyju Patta í kvöld

Til stendur að fylla Skautahöllina í Laugardal í kvöld þegar leikið verður til minningar um Patrek Frey Sveinsson, íshokkístrákinn sem lést í bílslysi í síðustu viku.

Sport
Fréttamynd

Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklu­braut

Sautján ára gamli pilturinn sem lést í bílslysi á Miklubraut hét Patrekur Freyr Sveinsson. Hann var liðsmaður í U18 liði Skautafélags Reykjavíkur en félagið birtir í dag samúðarkveðjur til fjölskyldu Patreks.

Innlent
Fréttamynd

Fjórar með nóró daginn fyrir fyrsta leik á ÓL

Finnska kvennalandsliðið í íshokkí hefur orðið fyrir barðinu á nóróveirunni á versta tíma, eða daginn fyrir fyrsta leik liðsins á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Önnur lið reyna nú að forðast smit.

Sport
Fréttamynd

Spiluðu ís­hokkí utan­dyra í Miami

Árlegi „Winter Classic“ leikurinn í NHL íshokkídeildinni fór ekki fram á norðurhveli Bandaríkjanna eða í Kanada þetta árið heldur í Miami í sólskinsríkinu Flórída. Umhverfis- og hefðarsinnar eiga það sameiginlegt að vera alls ekki ánægðir með þetta.

Sport