Hafnabolti

Dæmdur í lífstíðarbann: Veðjaði meðal annars á eigin leiki
Hafnaboltakappinn Tucupita Marcano mun ekki spila í MLB-deildinni í hafnabolta svo lengi sem hann lifir en hann var í dag dæmdur í lífstíðarbann fyrir að veðja á hundruði leikja á meðan hann spilaði í deildinni. Veðjaði hann meðal annars leiki Pittsburgh Pirates þegar hann spilaði með liðinu á síðustu leiktíð.

Dagskráin í dag: Risaslagur í Bestu deild kvenna í fótbolta
Einn af stærstu leikjum sumarsins í Bestu deild kvenna í fótbolta fer fram á Kópavogsvelli í kvöld og er að sjálfsögðu sýndur beint á sportinu. Það verður líka hægt að sjá NBA, Seríu A, pílu og formúlu á sportstöðvunum í dag.

Veðjaði nítján þúsund sinnum með peninga stórstjörnunnar
Túlkur hafnaboltastjörnunnar Shohei Ohtani hefur verið ákærður fyrir að stela meira en tveimur milljörðum króna af honum.

Túlkur stórstjörnunnar stal af honum hundruðum milljóna
Bandaríska hafnarboltaliðið Los Angeles Dodgers hefur rekið túlkinn Ippei Mizuhara úr starfi eftir að upp komst um stórfelldan þjófnað hans.

Sagður þukla á mömmu sinni í myndbandi sem veldur hneykslun
Aroldis Chapman hefur valdið mikilli hneykslun á meðal hafnboltaáhugafólks með myndbandi sem hann birti á samfélagsmiðlum, þar sem hann sést þukla á brjóstum eldri konu, utan klæða. Talið er að konan sé móðir hans.

Skáru niður styttu af goðsögn, brenndu og hentu í ruslatunnu
Styttan af bandarísku hafnaboltagoðsögninni Jackie Robinson fékk ekki að vera í friði því hún var skorin niður og eyðilögð.

Keypti Porsche handa konu liðsfélaga síns
Hann var eftirsóttur og fékk stærsta samning sögunnar. Hann var líka mjög þakklátur einni konu.

Fær 97 prósent launanna ekki borguð fyrr en eftir árið 2034
Japanski hafnaboltamaðurinn Shohei Ohtani skrifaði undir risasamning við Los Angeles Dodgers á dögunum og færir sig því á milli liða í Los Angeles borg.

Þénar tæpa hundrað milljarða á stærsta hafnaboltasamningi í sögunni
Japanski hafnaboltamaðurinn Shohei Ohtani gekk í raðir Los Angeles Dodgers í MLB-deildinni í hafnabolta. Hann skrifaði undir stærsta samning í sögu íþróttarinnar.

Moneyball-liðið flytur til Las Vegas
Oakland Athletics hefur fengið leyfi frá eigendum bandarísku hafnaboltadeildarinnar að flytja liðið sitt á milli borga.

Nú á bara eitt atvinnumannafélag í Texas eftir að vinna titil
Texas Rangers varð í nótt bandarískur hafnarboltameistari eftir 4-1 sigur á Arizona Diamondbacks í lokaúrslitum. Þetta var í fyrsta sinn sem Rangers vinnur MLB titilinn.

Fenway Park á floti eftir úrhellisrigningu og leik frestað í fjórðu lotu
Fresta þurfti leik Boston Red Sox og New York Mets vegna úrhellisrigningu í Boston. Hinn sögufrægi völlur Fenwey Park var á floti eftir rigninguna en sumir áhorfendur skemmtu sér á meðan allt var á floti.

Heiðurshallarmeðlimur í hafnaboltanum starfar nú sem íþróttaljósmyndari
Randy Johnson átti magnaðan feril í bandaríska hafnaboltanum en nú hefur þessi fyrrum atvinnumaður í íþróttinni fundið sér annað starfsvettvang í íþróttunum.

Ömurlegir mánuðir fyrir íþróttaaðdáendur í Philadelphia
Sértu frá Philadelphia í Bandaríkjunum og elskar íþróttir má reikna með að það sé heldur þungt yfir þér um þessar mundir. Það hefur bókstaflega ekkert gengið upp hjá íþróttaliðum borgarinnar undanfarna sex mánuði.

Sex leikmenn sama félags hafa dáið úr sjaldgæfu krabbameini
Óhugguleg örlög leikmanna úr sama íþróttafélagi í Bandaríkjunum eru farnir að sannfæra marga um að orsakavaldurinn gæti hafi verið gervigrasið sem liðið lék heimaleiki sína á. Könunu á efnum úr grasinu staðfesti að sá grunur átti rétt á sér.

Veðjaði á sjálfan sig og fékk tuttugu milljarða betri samning ári síðar
Hafnaboltamaðurinn Aaron Judge spilar áfram í New York næstu árin eftir að hann gekk frá nýjum risasamningi við lið New York Yankees.

71 árs húsgagnamógull vann ellefu milljarða á sigri Houston Astros
Houston Astros var um helgina bandarískur meistari í hafnabolta eða urðu öllu heldur heimsmeistarar í hafnabolta eins og Bandaríkjamenn kalla titilinn sinn. Það var þó maður ótengdur félaginu sem fagnaði sigrinum kannski meira en flestir aðrir.

Sýndi stuðningsmönnunum fingurinn eftir að þeir létu eiginmanninn heyra það
Ofurfyrirsætan Kate Upton var í miklu stuði á leik fimm í úrslitum MLB-deildarinnar í hafnabolta vestanhafs á dögunum.

Börnin kynntu pabba sinn til leiks í lokaleiknum
Hafnaboltamaðurinn Stephen Vogt lék sinn síðasta leik á ferlinum á dögunum og fékk mjög sæta og skemmtilega kveðju við þau tímamót.

Hafnaboltaspjald seldist á tæplega tvo milljarða
Nýtt heimsmet var slegið á uppboði á laugardagskvöldið þegar dýrasta hafnaboltaspjald sögunnar var selt fyrir 12,6 milljónir bandaríkjadala. Spjaldið er 70 ára gamalt.

Dýrasta hafnaboltaspjald sögunnar
Safnkort af hafnaboltastjörnunni Mickey Mantle seldist í dag á uppboði á 12,6 milljónir dollara, tæpan 1,8 milljarð íslenskra króna. Með sölunni varð spjaldið að dýrasta hafnaboltaspjaldi sögunnar.

Missti símann úr vasanum í miðjum leik
Í flestum íþróttagreinum þarf íþróttafólkið að skilja símann við sig en greinilega ekki í öllum.

Stórveldið Yankees valdi Íslending í nýliðavalinu
Kristófer Jonathan Bow varð fyrsti Íslendingurinn til að vera valinn í nýliðavali MLB-deildarinnar. Nýliðaval MLB-deildarinnar í hafnabolta lauk síðasta þriðjudag þar sem Kristófer Jonathan Bow er kastari og var valinn númer 430 í fjórtándu umferð af stórveldinu New York Yankees.

Fékk aftur bolta í höfuðið á 150 km/klst
Kelsey Wingert, fréttakona AT&T SportsNet í Bandaríkjunum, er á batavegi eftir að hafa fengið bolta í höfuðið en talið er að boltinn hafi ferðast á 150 km/klst hraða.

Alyssa Nakken heldur áfram að brjóta blað í sögu hafnaboltans
Það er ljóst að hin 31 árs gamla Alyssa Nakken hefur skráð sig í sögubækur MLB-deildarinnar í hafnabolta. Hún er ekki aðeins fyrsta konan til að hafa verið ráðin í fullt starf sem þjálfari heldur er hún einnig fyrsta konan til að stíga inn á völlinn og þjálfa á meðan leik stendur.

Grínaðist með að hafa misst af módelstörfum eftir að hafa fengið hafnabolta í augað
Heppnin var ekki beint í liði með Rachel Balkovec á æfingu hjá hafnaboltaliðinu Tampa Tarpons á dögunum.

Atlanta Braves í úrslit MLB deildarinnar | Mæta óvinsælasta liði Bandaríkjanna
Þá er ljóst hvaða tvö lið munu mætast í heimsseríunni í bandarísku hafnaboltadeildinni, MLB. Atlanta Braves sigraði Los Angeles Dodgers í nótt, 4-2, og þar með seríuna í sex leikjum. Atlanta mætir hinu óvinsæla Houston Astros, sem sló út Boston Red Sox.

Móðir og tveggja ára sonur hennar létust á hafnaboltaleik
Lögreglan í San Diego í Bandaríkjunum rannsakar nú hræðilegt slys sem varð á hafnaboltaleik San Diego Padres og Atlanta Braves.

Conor McGregor með vandræðalega lélegt kast á hafnaboltaleik
Bardagamaðurinn Conor McGregor er ekki mikill kastari ef marka má frammistöðu hans á hafnaboltaleik Chicago Cubs og Minnesota Twins í Bandaríkjunum.

Dæmdur í ævilangt bann eftir að hafa kastað hafnabolta í leikmann
Stuðningsmaður New York Yankees sem kastaði hafnabolta í Alex Verdugo, leikmann Boston Red Sox, hefur verið dæmdur í ævilangt bann frá leikjum í MLB-deildinni.