

Björk Eiðsdóttir, ævintýrakona og upplýsingafulltrúi Björgólfs Thor Björgólfssonar og fyrrverandi ritstjóri helgarblaðs Fréttablaðsins, segist hafa borið gæfa til að gera drastískar breytingar á högum sínum. Hún fagnar stórafmæli á árinu og ætlar á fimmtíu fjöll í tilefni af öllum árunum.
Ingi Þór Garðarsson, eða Ingi Bauer eins og hann er betur þekktur sem, skemmti sér vel um páskana með kærustunni, Dönu Sól Tryggvadóttur, í London.
„Ég bý við það óöryggi að ég held að enginn skilji mig,“ segir leikarinn Gunnar Smári Jóhannsson. Gunnar Smári er 31 árs gamall og hefur upplifað meira en flestir jafnaldrar hans. Sem barn missti hann báða foreldra sína sem og ömmu sína og afa og hefur hann tamið sér að ræða opinskátt um sorgina.
Varaborgarfulltrúi Viðreisnar náði þeim áfanga um hátíðarnar að leysa Rúbiks-kubb, eða töfratening, á undir hálfri mínútu. Hann stefnir á að verða fyrstur Íslendinga til að leysa þrjá kubba í röð blindandi í keppni.
Birta Líf Ólafsdóttir, markaðssérfræðingur og hlaðvarpsstjórnandi, og Gunnar Patrik Sigurðsson fasteignasali kynntust í gegnum sameiginlega vini fyrir um tíu árum. Síðan þá hafa þau búið í Englandi, verið í fjarbúð og eignast saman eina dóttur, Emblu Líf þriggja ára.
Söngvarinn Páll Óskar gekk í hjónaband með manni sínum, Edgar Antonio Lucena Angarita, við fallega athöfn heima í stofu í gær. Páll segist aldrei hafa verið jafn hamingjusamur.
Óviðeigandi brandari Jamie Carragher um samband Kate Abdo og Malik Scott vakti athygli nýverið. Scott varaði Carragher við því að grínast með ástarlíf annarra. Netverjar telja sambandinu frekar standa ógn af Thierry Henry, öðrum kollega Abdo. Spurningin er, hvenær rýnir maður um of í hlutina, hvenær teygir maður sig of langt og hvenær byrjar maður að skálda?
Listaparið Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir eiga von á stúlku ef marka má bleika litinn í óvæntu steypiboði Þórdísar um helgina. Hún sagðist alsæl hafa óskað eftir því að slík veisla yrði ekki haldin.
Liðin vika var heldur betur viðburðarík hjá stjörnum landsins. Hlustendaverðlaunin og plötuútgáfur báru þar hæst. Íslendingar eru þó alltaf á faraldsfæti og var fólk ýmist að sleikja sólina erlendis eða dilla mjöðmunum í austurrísku Ölpunum.
Daníel Már Pálsson atvinnupókerspilari vakti athygli á dögunum eftir að hann vann 26 milljónir íslenskra króna á stórmóti á Jeju Island í Suður-Kóreu á dögunum. Þetta er stærsti sigur Daníels á pókermóti hingað til. Hann segir baráttuna við gigtina hafa mótað sig mest í lífinu.
„Ég er ekki týpa sem pæli mikið í því hvað öðrum finnst,“ segir dansarinn, raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir. Hún er viðmælandi í Einkalífinu.
Stærsti draumur Tori Lynn Gísladóttur rættist um síðustu jól. Þá voru hún og bandarískur blóðfaðir hennar sameinuð á ný, eftir fimmtán ára aðskilnað. Sagan þar á bak við er flókin og óvenjuleg – og á sama tíma hjartnæm og falleg.
Tónlistarkonan Emilíana Torrini stefnir á að gefa út sína fyrstu sólóplötu í tíu ár í júní. Innblásturinn að plötunni má segja að sé ævintýri líkastur en lögin á plötunni fjalla um níu bónorðsbréf sem móðir vinkonu hennar fékk á lífsleiðinni og fundust eftir að hún dó.
Katla Hreiðarsdóttir, eigandi hönnunarverslunarinnar Systur og makar, og Haukur Unnar Þorkelsson eiga von á sínu þriðja barni saman. Katla fagnar fertugsafmæli sínu í dag með því að tilkynna óléttuna. Auk þess festi parið kaup á fallegu einbýli í Hafnarfirði.
Tónlistaparið Salka Sól Eyfeld og Arnar Freyr Frostason kynntust um verslunarmannahelgi árið 2015 á Sjallanum á Akureyri þar sem þau voru bæði að koma fram. Síðan þá hafa þau trúlofað sig, gengið í hjónaband og eignast saman tvö börn, þau Unu Lóu og Frosta.
Vorið er blómatímabil fyrir einhleypa einstaklinga. Með hækkandi sól og opnum hug ættu lesendur Vísis sem eru í leit að rétta makanum að líta vel yfir eftirfarandi lista sem samanstendur af eitursvölum og einhleypum karlmönnum.
Davíð Helgason fjárfestir og danska fyrirsætan Isabella Lu Warburg eiga von á öðru barni sínu. Fyrir eiga þau soninn Ágúst en Davíð á einnig tvö börn úr fyrra hjónabandi.
Leikkonan, handritshöfundurinn og söngkonan Silja Rós lýsir sjálfri sér sem miklum orkubolta og á erfitt með að sitja kyrr og bíða eftir tækifærunum. Hún lærði leiklist í Los Angeles og hefur frá útskrift verið að þróa þætti sem fara í loftið í næstu viku og heita Skvíz. Blaðamaður ræddi við Silju Rós um lífið, listina og ofur rómantískt bónorð.
Björgólfur Takefusa, fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu, og Sólveig Heimisdóttir viðskiptafræðingur eignuðust sitt fyrsta barn saman 14. mars síðastliðinn. Auk þess hefur Sólveig sett sjarmerandi eign sína í miðbæ Reykjavíkur á sölu.
Eyþór Ingi Gunnlaugsson segir það hafa dregið sig niður á jörðina að verða óvænt tveggja barna faðir þegar hann var tvítugur. Hann segist eiga sér fá áhugamál fyrir utan tónlistina og veltir fyrir sér hvernig ímynd hann sé fyrir dóttur sína.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir, athafnakona og fyrirsæta, vill að hópur frambjóðenda í forsetakosningunum í sumar sé sem fjölbreyttastur. Því hyggst hún fórna sér í baráttuna, segist vera komin í óformlegt forsetaframboð og safnar nú undirskriftum til þess að geta tekið þátt í kosningunum.
Heimir F. Hallgrímsson lögmaður, fasteignasali og ævintýramaður frumsýndi kærustuna, Dagmar Silju Kristjönu Svavarsdóttur nema við Háskólann í Reykjavík, á Instagram í gær þar sem þau voru að njóta lífsins í skíðaferð í Austurríki.
Skilnaður Ariönu Grande og Dalton Gomez er genginn í gegn. Hjónin sóttu um skilnað síðasta haust eftir þriggja ára hjónaband.
Fyrrverandi fegurðardrottningin og handboltakonan Hildur María Leifsdóttir og kærastinn hennar Sigurður Jakob Helgason lögmaður, skírðu dóttur sína við hátíðlega athöfn um helgina. Stúlkunni var gefið nafnið Lína María.
Fyrrum CrossFit heimsmeistarinn og afreksíþróttakonan Katrín Tanja nýtur lífsins í Norður-Idaho í Bandaríkjunum þar sem hún er búsett ásamt unnusta sínum, íþróttamanninum Brooks Laich. Parið festi nýverið kaup á svörtum Land Rover Defender jeppa og birti Katrín Tanja mikla gleðifærslu á Instagram í tilefni af því.
Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri og Sigurbjartur Sturla Atlason, þekktur sem Sturla Atlas, tónlistarmaður og leikari, hafa sést víða saman á opinberum vettvangi nýverið og virðast láta vel að hvort öðru.
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, reynir þessa dagana að komast í samband við tvo karlmenn sem hann telur vera bræður sína. Hann biður alla sem hafa tengingar í Wales að deila FB-færslu sinni í þeirri von að hún nái til skyldmenna sinna.
Þórhildur Þorkelsdóttir starfar sem framkvæmdastjóri Brú Strategy ásamt því að halda úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, Eftirmál, með vinkonu sinni Nadine Guðrúnu Yaghi. Þórhildur er landsmönnum að góðu kunn en hún starfaði sem fréttakona um árabil.
Athafnakonan, förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Heiðdís Rós Reynisdóttir er búsett í Miami í Bandaríkjunum. Hún horfir björtum augum á framtíðina ætlar sér að verða fyrsta íslenska konan sem kemst á lista Forbes.
Hjónin Guðný Matthíasdóttir og Róbert Halbergsson hafa undanfarið eitt og hálft ár búið í húsbíl ásamt börnunum sínum tveimur og heimsótt alls 26 lönd í Evrópu. Fjölskyldan deilir reglulega myndum og myndskeiðum á Instagram þar sem þau sýna frá daglegu lífi sínu á flakki á „Eurovagninum“ svokallaða, en lífstíll þeirra er mörgum framandi.