
Baráttan heldur áfram
Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðshreyfingarinnar er ekki bara vettvangur til að sýna samstöðu og minna á samtakamátt hreyfingarinnar, minnast þeirra sem ruddu brautina og sýna þeim stuðning sem hafa umboð til að ryðja hana áfram.

Hvað er að gerast innan verkalýðshreyfingarinnar?
Ég skrifaði nýlega grein um skuggahliðar verkalýðshreyfingarinnar þar sem ég lýsti eitruðum kúltúr og baktjaldamakki. Forseti ASÍ virtist koma af fjöllum og krafði mig opinberlega svara um hvað málið snérist því ekki kannaðist hún við málefnalegan ágreining né óeðlileg átök.

Skuggahliðar verkalýðshreyfingarinnar
Þegar ég náði kjöri árið 2017 sem formaður VR var framboð mitt vantraust á stefnu Alþýðusambandsins og forystu þess. Ég vildi gefa félagsmönnum VR val um aðra rödd og aðra stefnu en miðstýrða af forystu ASÍ og Gylfa Arnbjörnssonar undir merkjum Salek.

Nú verða stjórnvöld að bregðast við!
Það liggur fyrir að verðlagshækkanir frá heildsölum og framleiðendum hafa verið 3–10% í nóvember og 5–12% í desember. Nú berast tilkynningar um hækkanir í janúar sem nema frá 5 – 25%. Þetta eru svakalegar tölur. En af hverju er þetta ekkert rætt? Hvað er eiginlega í gangi hjá stjórnvöldum og Seðlabankanum?

Eru launahækkanir að sliga íslenskt atvinnulíf?
Ef við byrjum að fara yfir nokkrar staðreyndir. Staðreyndir sem virðast flækjast mikið fyrir nýkjörnum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins og stjórnendum fyrirtækja sem og Seðlabankastjóra, Viðskiptaráði og SA.

Stöndum þriðju vaktina saman!
VR er þessa dagana að fara í gang með herferð um hugtakið þriðju vaktina og það andlega álag sem fylgir henni. En hvað er þriðja vaktin og af hverju er VR að vekja athygli á þessu?

Neyðarkall!
Við stöndum frami fyrir neyðarástandi í kjölfar veirufaraldursins á alheimsvísu. Atburðarrás sem nú þegar er farin að hafa veruleg áhrif á lífskjör vinnandi fólks. Það hrikalega er að þessi staða mun fara ört versnandi og ekki útséð annað en muni enda með ósköpum ef ekkert verður að gert.

Felum klúðrið – fórnum heimilunum: Aftur!
Það er stundum hjákátlegt að fylgjast með aðferðum stjórnmálamanna og „kerfisins“ við að fría sjálfa sig ábyrgð en því miður eru afleiðingar þess ekki alltaf jafn sniðugar og bitna oftar en ekki á þeim sem síst skyldi.

Saga um staðfestan glæp gegn þjóðinni
Inni í félagsmálaráðuneytinu liggur skýrsla sem ekki fæst birt, enda leiðir hún í ljós hversu alvarlega ríkisstjórnir síðustu áratuga hafa brotið gegn heimilum landsins og við getum fullyrt að þær ríkisstjórnir sem setið hafa frá hruni hafi sýnt einbeittan vilja til þess að viðhalda brotunum gagnvart þjóðinni.

Áskorun!
Ég skora á Ásmund Einar Daðason félags og barnamálaráðherra að koma hreint fram og upplýsa kjósendur hvaða ráðuneyti og hvaða flokkur stóðu í vegi fyrir því að mikilvæg mál, er tengdust efndum stjórnvalda við Lífskjarasamninginn, voru kláruð.

Þau elska ykkur bara rétt fyrir kosningar
Nú er ljóst að hrun heimilanna 2.0 er yfirvofandi. Það er ekkert eftir að lofa, því þegar sagan er skoðuð sést greinilega að „þeim“ verður nákvæmlega sama um þig strax eftir kosningar.

25 milljarðar eru ekki mjólkurlaus speni
Og það eru margir sem sjúga fast. Grein um 25 milljarða árlegan kostnað við rekstur lífefyrissjóða. Halldór Benjamín framkvæmdastjóri SA fer mikinn í grein sem hann kallar, hljóð og mynd fara saman. Þar opinberar Halldór yfirlætið og hrokan sem sjóðfélagar lífeyrissjóða mega þola og hafa mátt þola frá varðhundum kerfisins áratugum saman.

Bankarnir eru baggi á samfélaginu
Núna hafa bankarnir birt uppgjör sín eftir fyrri hluta þessa árs og samanlagður hagnaður þeirra nemur 37 milljörðum króna. Ef síðari hluti ársins verður þeim jafn gjöfull, gæti árshagnaður þeirra orðið 74 milljarðar.

Hvar værum við án framlínufólks í verslun?
Í dag er frídagur verslunarmanna. Dagur sem flestir landsmenn kenna við stærstu fríhelgi ársins og njóta ýmist utan sem innanbæjar til skemmtunar og afþreyingar.

Miskunnarleysi, tómlæti og mannfyrirlitning
Það steðjar alvarleg ógn að íslenskum heimilum nú þegar verðbólgan er að fara á flug, ekki síst þeim sem eru með verðtryggð húsnæðislán eða greiða leigu, því öll leiga er verðtryggð.

Lán með breytilegum vöxtum ólögleg - Taktu þátt og verðu rétt þinn
Vextir húsnæðislána á Íslandi hafa líklega aldrei verið jafn lágir og undanfarið. Þó er óvinnandi vegur fyrir venjulegt fólk að skilja hvað ræður vaxtaákvörðunum lánastofnana. Þær virðast stundum ekki skilja það sjálfar.

Sköpum fleiri störf og brúum stafræna bilið
Þróun og nýting stafrænnar tækni hefur tekið risavaxin og hröð skref síðustu misserin. Vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins hefur þessi þróun orðið svo ör í t.d. verslunar- og þjónustugreinum, að ekki er hægt að lýsa því öðruvísi en sem byltingu.

Hvað með allt hitt?
Það var dapurlegt að horfa á Kveik í gærkvöldi þar sem flett var ofan af sjálftöku félags sem hefur um áraraðir tekist að draga hundruðir milljóna í vasa eigenda sinna fyrir þjónustu við lífeyrissjóðina. Það skal tekið fram að LIVE og VR eru með sitt eigið skráningarkerfi og því ekki hluti af þessu tiltekna svindli.

Föst í klóm sérhagsmunaafla
Það er löngu tímabært að rætt sé um það kverkatak sem sérhagsmunaöfl hafa á íslenskri þjóð, þar sem hagsmunum almennings er alltaf fórnað fyrir hagsmuni þessara ósýnilegu en allt umvefjandi afla.

Samtryggingarfólkið
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um skyldutryggingar lífeyrisréttinda. En málið er hluti af gömlu samkomulagi fyrri forystu ASÍ um að lögfesta iðgjaldahækkun í lífeyrissjóði úr 12% í 15,5%.