Ögmundur Jónasson

Fréttamynd

Að trúa á netið

Tillögur sem nú eru til skoðunar í innanríkisráðuneytinu og lúta að því að verja börnin okkar fyrir ágengni klámiðnaðarins hafa vakið athygli á heimsvísu. Viðbrögðin hafa verið jákvæð og almennt yfirveguð. Þó er til það fólk sem rís upp gegn þessu af offorsi. Birgitta Jónsdóttir alþingiskona lýsti því yfir nýlega að hún hefði óbilandi trú á internetinu, ætti nánast heima þar og var svo að skilja á yfirlýsingum hennar að nú væri verið að trufla þennan átrúnað hennar. Frumvarp innanríkisráðherra Íslands mun aldrei ná fram að ganga, segir hún í grein í bresku stórblaði og vísar til þess að hún sjálf ætli að sjá til þess. Félagi hennar, Smári McCarthy, lætur jafnframt hafa eftir sér að frumvarpið sé fasískt og ráðherrann sjálfur geðveikur.

Skoðun
Fréttamynd

Vandi sem er ekki til

Ólafur Þ. Stephensen ritstjóri segir í leiðara Fréttablaðsins 30. janúar mig vilja smíða lög utan um vanda sem ekki sé til. Þar vísar hann í lagafrumvarp sem ég hef látið gera með það fyrir augum að takmarka landakaup útlendinga á Íslandi og er það í samræmi við þá stefnu sem ég hef margoft gert grein fyrir að halda beri eignarhaldi á landi innan íslensks samfélags. Slíkt sé enn mikilvægara nú en áður en auðlindalöggjöfin var samþykkt illu heilli árið 1998 þar sem eignarhald á auðlindum, þar með vatni, var bundið eignarhaldi á landi.

Skoðun
Fréttamynd

Smára svarað

Smári Sigurðsson, fyrrverandi yfirmaður Alþjóðadeildar Ríkislögreglustjóra, leggur orð í belg í umræðu um málefni hælisleitenda í Fréttablaðinu sl. þriðjudag.

Skoðun
Fréttamynd

Ofbeldisklám og börn

Þegar ég hafði nýverið tekið við embætti dómsmála- og mannréttindaráðherra, síðar innanríkisráðherra, haustið 2010 stóð ráðuneytið fyrir samráði um meðferð nauðgunarmála í réttarvörslukerfinu. Sú umræða var ekki úr lausu lofti gripin. Ítrekað höfðu komið fram ábendingar um að úrræði réttarkerfisins næðu eingöngu að takmörkuðu leyti utan um kynferðisbrot. Samráðið var ítarlegt og stóð yfir um nokkurn tíma með aðkomu lögreglu,

Skoðun
Fréttamynd

Orð og efndir

Skilja má á Stíg Helgasyni, blaðamanni á Fréttablaðinu, í skrifum á miðvikudag að honum finnist skjóta skökku við að ég ætli mér að taka málsferð hælisumsókna til skoðunar því nákvæmlega það hafi ég áður sagst vilja gera þegar ég setti á laggirnar starfshóp um málefni útlendinga utan EES í júlí 2011. En aldrei sé góð vísa of oft kveðin!

Skoðun
Fréttamynd

Svar til Stígamóta

Í Fréttablaðinu 9. janúar sl. birtist opið bréf Stígamóta til mín sem innanríkisráðherra þar sem skorað er á mig að taka til hendinni í kynferðisbrotamálum. Voru þar nefnd nokkur atriði sem Stígamót hafa sett á oddinn á síðustu árum. Þakka ég þessar ábendingar en vil einnig nota tækifærið til að víkja að nokkrum atriðum í baráttunni gegn kynferðisofbeldi sem ég hef komið að á þeim ríflega tveimur árum sem liðin eru frá því að ég tók við embætti dómsmála- og mannréttindaráðherra, síðar innanríkisráðherra.

Skoðun
Fréttamynd

Barnalög þurfa vandaða framkvæmd

Um áramót tóku gildi breytingar sem gerðar hafa verið á barnalögum. Þar er að finna mörg nýmæli sem styrkja og treysta réttarstöðu barna og þar á meðal má nefna lögfestingu á grunngildum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Skoðun
Fréttamynd

Persson og Skarphéðinsson

Enn reynir okkar ágæti utanríkisráðherra að sýna fram á hve hagstætt það yrði Íslendingum að ganga í Evrópusambandið. Í Fréttablaðinu er nú leiddur til vitnis sósíaldemókrat og fyrrum forsætisráðherra Svía, Göran Persson. Um þennan systurflokksmann sinn segir Össur Skarphéðinsson: "Persson benti á að eftir að Svíar gengu í Evrópusambandið árið 1994 hefðu þeir u.þ.b. tvöfaldað útflutning sinn. Síðustu 20 árin hefðu Svíar haft jákvæðan viðskipatjöfnuð við útlönd.“

Skoðun
Fréttamynd

Hringjum bjöllum gegn einelti

Ofsóknir, þrálát áreitni, stríðni og ofbeldi. Allt eru þetta orð sem koma upp í tengslum við skilgreiningu orðabókar á hugtakinu einelti. Þessi orð lýsa ekki saklausri háttsemi, þvert á móti, alvarlegu ofbeldi, sem í eðli sínu er niðurbrjótandi. Í því felst að niðurlægja, móðga, særa, mismuna og ógna manneskju ítrekað. Kynferðisleg áreitni fellur hér undir, en einnig andlegt og líkamlegt ofbeldi.

Skoðun
Fréttamynd

Lögregla og lýðræði

Ríkissjónvarpið sýndi á dögunum þýska framhaldsþætti sem kallast Berlínarsaga. Þættirnir bregða upp svipmynd af Austur-Þýskalandi fyrir þrjátíu árum, þegar múrinn stóð enn og leyniþjónustan Stasi gerði allt sem í hennar valdi stóð til að koma í veg fyrir að ?óvinurinn? efldist, sem í þættinum

Skoðun
Fréttamynd

Siðmennt en ekki Kárahnjúkar

Sagt hefur verið í mín eyru að það komi úr hörðustu átt þegar ég vilji að almennt gildi það um mál sem fyrir Alþingi eru lögð, að þau komi til atkvæðagreiðslu. Fyrr á árum hafi ég iðulega gengið hart fram í því að koma í veg fyrir einmitt þetta með langri og stundum óbilgjarnri umræðu í þingsal.

Skoðun
Fréttamynd

Leiðarahöfundur fari rétt með

Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, vitnar í gamlar þingræður mínar um jafnréttismál í leiðara föstudaginn 31. ágúst. Það þykir mér ágætt. Enda fagna ég umræðu um jafnréttismál og mun gera mitt til að framhald verði á þeirri umræðu sem nú fer fram um þau.

Skoðun
Fréttamynd

ESB og lýðræðisrétturinn

Þorsteinn Pálsson skrifar greinar í Fréttablaðið um helgar. Greinar hans eru mjög áþekkar og jafnan þar að finna sömu stefin. Eitt slíkt stef er að VG sé tvísaga í aðildarviðræðunum við ESB; sé fylgjandi aðild innan veggja Stjórnarráðsins en andvígt utandyra. Þjóðin hafi orðið þess vitni, skrifar hann nýlega, þegar ráðherrar VG stóðu "utan veggja Stjórnarráðsins og lýstu því yfir að rétt væri að endurmeta umsókn Íslands vegna óróa í peningamálum á evrusvæðinu.

Skoðun
Fréttamynd

Misskilningur leiðréttur

Merkilegt hve miklum misskilningi var hægt að koma fyrir í örlitlu plássi í þættinum Frá degi til dags á leiðarasíðu Fréttablaðsins í byrjun síðustu viku. Þar er sagt að á mínu borði "liggi álit frá Mannréttindadómstól Evrópu sem taldi að brotið hefði verið á tveimur sjómönnum sem tóku sig til og veiddu án kvóta. Ögmundur…mætti gera þó ekki væri nema eitthvað.“

Skoðun
Fréttamynd

Kosningalögum verður breytt

Öryrkjabandalag Íslands lét reyna á það í kæru til Hæstaréttar hvort ógilda bæri nýafstaðnar forsetakosningar þar sem fatlaðir kjósendur hefðu ekki getað haft aðstoðarfólk að eigin vali sér til aðstoðar í kjörklefanum. Nú hefur Hæstiréttur hafnað kröfunni og þar með staðfest túlkun innanríkisráðuneytisins á kosningalögunum.

Skoðun
Fréttamynd

Pawel Bartoszek svarað

Nokkuð er um liðið síðan Pawel Bartoszek beindi til mín spurningum sem snúa að fjárhættuspilum og þá sérstaklega á Netinu.

Skoðun
Fréttamynd

Reykjavíkurflugvöllur og almennur lýðræðislegur vilji

Undir fyrirsögninni Frá degi til dags á leiðarsíðu Fréttablaðsins fimmtudaginn 12. júlí veltir Kolbeinn Proppé fréttamaður vöngum yfir, annars vegar meintri lýðræðisást minni og hins vegar staðhæfingum um að flugvöllurinn verði ekki fluttur úr Vatnsmýrinni í Reykjavík án samráðs við ríkið, sem eigi hluta landsins undir vellinum. Kolbeinn minnir mig á að atkvæðagreiðsla hafi farið fram á sínum tíma og niðurstaðan orðið sú að meirihluti hafi viljað völlinn burt.

Skoðun
Fréttamynd

Skýr lög um vörslusviptingar

Um vörslusviptingar er ekki hægt að alhæfa. Einstaklingur gerir samning um að kaupa bifreið, fær bílinn í hendur en stendur ekki í skilum. Hann er sviptur umráðum yfir bílnum. Annar einstaklingur stendur í skilum lengi vel en springur á limminu í kjölfar efnahagshrunsins vegna verðbólguskots og kjaraskerðingar. Til er í dæminu að einstaklingur hafi talið sig vera búinn að greiða eignina upp en kaupleigufyrirtækið telji svo ekki vera. En þrátt fyrir ágreining voru þess mörg dæmi að handhafi hinnar umdeildu eignar hafi verið sviptur henni með valdi án þess að leitað hefði verið eftir úrskurði og heimildum sem lög þó kváðu á um.

Skoðun
Fréttamynd

Ein heildarlög um dvalar- og atvinnuleyfi

Lengi hefur verið í bígerð að endurskoða lög um útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins. Almennt er litið svo á þessi endurskoðun sé brýn. Það telja þau sem lögin fjalla um og einnig hin sem sinna þjónustu á grundvelli laganna. Bent hefur verið á að lögin og regluverkið sem á þeim byggist sé hornótt og auk þess illskiljanlegt. Þegar þessi mál voru til umræðu á Alþingi upp úr síðustu aldamótum var það sjónarmið ríkjandi að sameina bæri lög um dvalarleyfi annars vegar og lög um atvinnuleyfi hins vegar enda augljóst að fái einstaklingur leyfi til að dvelja hér á landi er rökrétt að almennt hafi viðkomandi einnig rétt til afla tekna til að framfleyta sér og sínum.

Skoðun
Fréttamynd

Virðingarvert framtak Kiwanis

Á miðnætti í lok þjóðhátíðardagsins sló ég fyrsta höggið í maraþon-golfleik sem Kiwanishreyfingin efnir til hringinn um landið til að afla fjár til góðra málefna.

Skoðun
Fréttamynd

Tímamót í fangelsismálum

Bygging nýs fangelsis á Hólmsheiði mun marka tímamót í sögu fangelsismála á Íslandi. Síðasta sérsmíðaða fangelsið á Íslandi, Hegningarhúsið við Skólavörðustíg, var reist og tekið í gagnið árið 1875, fyrir tæplega 140 árum síðan. Fangelsið á Litla-Hrauni var upphaflega byggt sem sjúkrahús fyrir Suðurland en hætt var við þau áform. Landstjórnin keypti bygginguna árið 1929 og breytti í fangelsi eða "letigarð fyrir slæpingja og landshornamenn“ eins og lesa má um í þingskjölum þess tíma.

Skoðun
Fréttamynd

Ný barnalög í augsýn

Á Alþingi stendur fyrir dyrum lokaafgreiðsla á frumvarpi til barnalaga. Verði frumvarpið að lögum munu grunngildi Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins vera lögfest hér á landi, m.a. um rétt barna til að tjá sig í öllum málum sem þau varða, að teknu tilliti til aldurs og þroska.

Skoðun
Fréttamynd

Dómstólaleið: Til upprifjunar

Þessa dagana heyrist sagt að annað hvort hafi menn viljað samningaleið eða dómstólaleið í Icesave; verið samningamenn eða dómstólamenn! Og nú hafi þeir sem vildu dómstólaleiðina fengið sínu framgengt!

Skoðun
Fréttamynd

Mannréttindi heima og heiman

Samkvæmt Íslenskri orðabók eru mannréttindi "tiltekin grundvallarréttindi hverrar manneskju, óháð þjóðerni, kynþætti, kyni, trú og skoðunum“. Mannréttindahugtakið hefur þróast í margar aldir. Fyrst um sinn náði það einkum utan um borgaraleg réttindi hins frjálsa manns, en ekki hinna sem voru ófrjálsir eða ófrjálsar. Í dag þætti fjarstæðukennt hér á landi að ætla aðeins sumum að njóta kosningaréttar, en ekki þarf að líta nema hundrað ár aftur í tímann til að sjá allt annan veruleika.

Skoðun
Fréttamynd

Auðlindir og almannahagur

Sú hugmynd, sem ég nýlega varpaði fram, að útgerðarfyrirtæki sem gerðust brotleg við skatta- og gjaldeyrislög skyldu svipt kvóta- eða veiðileyfisrétti hefur fengið nokkuð blendnar viðtökur.

Skoðun
Fréttamynd

Auðvelt að kaupa Ísland

Kínversk fjárfestingarfyrirtæki vildu nýlega kaupa Grímsstaði á Fjöllum eins og flestir vita. Um var að ræða þrjú hundruð ferkílómetra land. Hugmyndin var að reisa hótel og ferðamannabústaði. Jafnframt var látið fylgja með að áhugi væri á því að styrkja flugbraut sem þarna væri að finna. Kaupverðið var milljarður.

Skoðun
Fréttamynd

Lífeyriskerfið þarf að endurmeta

Róttækrar hugsunar er þörf til að endurskipuleggja lífeyriskerfi landsmanna. Í ljósi reynslunnar þarf að endurskoða alla stefnumótun og lagaumgjörð. Fólki mislíkar að fjármunir þess séu háðir duttlungum markaðar í þeim mæli sem nú er, en ekki nýttir til markvissarar uppbyggingar á innviðum samfélagsins eins og gert var í meira mæli fyrr á tíð.

Skoðun
Fréttamynd

Lygabrigsl fréttastofu

Árið 1996 kynnti þáverandi ríkisstjórn lagafrumvarp um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Ef frumvarpið hefði náð fram að ganga hefði lífeyriskerfi opinberra starfsmanna verið rústað. Þannig hefði svokölluð eftirmannsregla verið lögð af í einu vetfangi svo veigamikið atriði sé nefnt. Lífeyriskjör hefðu verið rýrð hjá fólki sem árum og áratugum saman hafði samið um lakari launakjör til að viðhalda eins traustum lífeyrisréttindum og kostur var. Þessu tókst að afstýra.

Skoðun
Fréttamynd

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í fyrirsögn hvort ég telji mig vita betur en aðrir hvað varðar leiðir til að leysa úr forsjárdeilum. Karvel Aðalsteinn vill að dómarar fái ákvörðunarvald til að fyrirskipa sameiginlega forsjá og bendir á að víða erlendis, t.d. á Norðurlöndum, sé sá háttur hafður á og séu hvergi uppi áform um að fella niður slíka heimild dómara. Staðreyndin er sú að reynslan af þessu fyrirkomulagi er ekki einhlít, langt í frá, og hef ég lesið skýrslur og reyndar einnig fylgst með meðferð einstakra mála sem vekja miklar efasemdir í mínum huga um að þetta sé rétt fyrirkomulag.

Skoðun
Fréttamynd

ESB, IPA, BHM OG BSRB

Þegar Alþingi Íslendinga samþykkti að gengið skyldi til viðræðna við Evrópusambandið um mögulega aðild Íslands að sambandinu stóðu mörg okkar í þeirri trú að það yrði tiltölulega einfalt ferli, enda Ísland þegar þátttakandi í EES-samstarfinu og þar með innri markaði ESB. Fyrirmyndina var að finna frá viðræðum ESB og Noregs í upphafi 10. áratugar síðustu aldar.

Skoðun